Bæjarins besta - 24.07.2008, Page 6
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 20086
„Standmynd, sem
steypt er í eir“
Ritstjórnargrein
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564
Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693
og 849 8699, thelma@bb.is · Jón Gunnarsson, símar 456 4560 og 848 4847, nonni@bb.is · Ritstjóri
netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is.
Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk.
Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ·
Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
Vinur allra landsmanna, Vestfirðingurinn Hemmi Gunn,
tveggja sumra safnstjóri á Hrafnseyri, hefur áhyggjur af því að
fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar verði ekki í búningi er hæfa
þykir þá þess verður minnst árið 2011, að 200 ár verða liðin frá
fæðingu frelsishetjunnar, sóma Íslands, sverðs þess og skjaldar,
eins fyrirmenn komust yfirleitt að orði í hátíðaræðum á afmælis-
degi forsetans fyrr á árum, þótt minna hafi farið fyrir orðskrúð-
inu á síðari tímum.
,,Jón Sigurðsson, forseti, standmynd, sem steypt er í eir,“
viðtakandi blómsveigs frá íslensku þjóðinni að morgni hvers
afmælisdags, en að mestu gleymdur að áliðnum degi, eða
hvað? Í ræðu á Hrafnseyri, 17. júní, ýjaði fyrrum forseti Al-
þingis að því að til heiðurs Jóni ætti að reisa byggingu á Þing-
völlum, sem nýta mætti til þingfunda og gestamóttöku. Um
þessa hugdettu hefur Hallgrímur Sveinsson, bóndi og staðar-
haldari á Hrafnseyri í 40 ár, þetta að segja: ,,Ef grannt er skoð-
að, höfum við ekkert með slíkt hús að gera, burt séð frá allri
hugmyndafræði. Sannleikurinn er sá, að á Íslandi er til nóg af
húsum af öllum stærðum og gerðum. Við þurfum ekki meiri
steinsteypu eða gler í bili, síst í minningu Jóns Sigurðssonar.“
(Mbl. 28. júní.) Og hann heldur áfram: ,,Það er beinlínis
lífsnauðsynlegt fyrir hina íslensku þjóð, að hún láti ekki henda
sig, að þeir sem eiga að erfa landið viti ekki hvers vegna 17.
júní var valinn þjóðhátíðardagur á Íslandi. Ef við gleymum að
fræða ungu kynslóðina um þessi efni, getum við alveg eins
gleymt öllu afmælistilstandi í kringum Jón Sigurðsson. Sagan
af Jóni Sigurðssyni er ævintýri sem allir Íslendingar ættu að
kunna nokkur skil á,“ segir Hallgrímur, og vitnar að lokum í
gamalt spakmæli: ,,Þeir sem gleyma fortíð sinni, eru líklegir
til að glata framtíð sinni.“
Til áhersluauka, ýmist til stuðnings eða andstöðu við aðild
að Efnahagsbandalaginu, hafa stjórnmálamenn í vaxandi mæli
vitnað til Jóns forseta og spurt: Hvað ætli Jón Sigurðsson
hefði sagt? Í annarri grein í Mbl. veltir Hallgrímur fyrir sér ár-
áttu þessara manna til að draga hugsanleg viðhorf Jóns Sig-
urðssonar inn í umræðu dagsins og spyr: ,,En meðal annarra
orða. Hvað ætli Jón Sigurðsson mundi segja um bruðlið,
græðgina og heimtufrekjuna sem viðgengst í dag hjá hluta af
þjóð hans? Og á hinn bóginn: Hvert skyldi vera álit hans á því
að sumt fólk á landi hér lepur dauðann úr skel og á varla mál-
ungi matar? Ætli hann sé ekki hissa?“
Ef svo fer sem horfir að þeim fækki stöðugt sem vita hvers
vegna 17. júní var valinn þjóðhátíðardagur Íslendinga, þurfum
við ekki fleiri eirstyttur og þaðan af síður glerhýsi á Þingvöllum
til að tengja við nafn Jóns forseta Sigurðssonar frá Hrafnseyri
við Arnarfjörð, fyrri hluta dags, einu sinni á ári. s.h.
Safna efni í ungl-
ingabók um Ísland
Á þessum degi fyrir 50 árum
Fréttamaður Morgunblaðsins hitti nýlega að máli tvo ferðalanga
sem dvöldust hér á landi um hálfs mánaðar skeið til að kynnast landi
og þjóð, en eru nú farnir heim sín vestur þangað sem heitir Connecticut
í Bandaríkjunum. Það voru hjónin Herbert Best, enskur rithöfundu, og
Erick Berry eins og kona hans kallar sig á titilblöðum bóka sinna en
hún er einnig rithöfundur, bandarísk að þjóðerni. Aðalerindi þeirra
hingað til lands var að safna efni í bók um Ísland, sem frúin hyggst rita
á næstunni. Verður hún eins og aðrar bækur hennar ætluð ungum les-
endum. Talið barst fyrst að ritstörfum þeirra hjóna og ferðinni hingað
norður í höf. „Við höfum skrifað einar 80 bækur“, segir frúin. „Ég segi
við því maðurinn minn og ég vinnum saman að bókum okkar, þótt þær
séu gefnar út undir nafni þess okkar, sem átt hefur frumkvæðið og ber
sjálfsábyrgðina. Mínar bækur eru allar ætlaðar börnum og unglingum,
en lesendur 16 ára og yngri – eða hin vinsælu barnabókasöfn – kaupa
1 af hverjum 4 bókum sem seldar eru í Bandaríkjunum. Að undanförnu
hef ég haft í smíðum bækur um Finnland og Lappland og eru þær
væntanlegar á markaðinn næsta vor. Bókin um Ísland verður gefin út
af sama forlagi og þær bækur, Lippincourt í New York. Þar verður
fjallað í léttum tón um land og þjóð, sögu og hennar siði.“
Skemmdir hafa verið unnar
á vegglistaverki sem krakkar
á námskeiði í veggjalist gerðu
um helgina. Félagsmiðstöðvar
Ísafjarðarbæjar héldu í síðustu
viku þriggja daga námskeið í
samstarfi við Vinnuskóla
Ísafjarðarbæjar þar sem
krökkum voru kennd undir-
stöðuatriði þessarar listgrein-
ar. Leiðbeinandi á námskeið-
inu var Árni Már Erlingsson,
en hann er reyndur vegglista-
maður og hefur komið áður á
Ísafjörð til að kenna ísfirskum
krökkum hvernig skreyta skal
vegg og siðfræðina að baki
veggjalist.
Námskeiðið endaði á laug-
ardag en lokaverkefni þátt-
takenda námskeiðsins var að
mála listaverk á veggi gang-
anna á milli Hafnarstrætis og
Aðalstrætis. Nú hafa ein-
hverjir óprúttnir aðilar tekið
sig til og eyðilagt hluta verks-
Skemmdarverk unn-
in á vegglistaverki
Skemmdir hafa verið unnar á nýju vegglistaverki eftir
aðeins tvo daga.
ins, aðeins tveim dögum eftir
að það var málað, en svo
virðist vera sem einhvers-
konar verkfæri hafa verið
notuð við það að rispa og rista
í verkið.
„Þetta er auðvitað leiðinda-
mál“, segir Helga Lind Mar,
starfsmaður Félagsmiðstöðv-
arinnar á Ísafirði, „Krakkarnir
voru búnir að vera duglegir
að vinna við þetta skemmti-
lega verk og ömurlegt það séu
einhverjir í bænum sem sjá
sig knúna til að eyðileggja
þetta. Krakkarnir ætla að klára
verkið um helgina og ég vona
bara að þessir aðilar sjái sér
fært að leyfa fullkláruðu verki
að standa í friði“.
Verkið hefur vakið athygli
og ánægju íbúa á svæðinu og
þeirra sem leggja leið sína í
gegnum göngin. Eitt vekur
sérstaka athygli og það eru
stensilmyndir af Jakobi Frí-
manni Magnússyni, fram-
kvæmdarstjóra miðborgar-
mála Reykjavíkurborgar. Að
sögn Helgu Lindar er þetta
létt skot á Jakob Frímann
Í verkinu er meðal annars
létt skotið á Jakob
Frímann Magnússon,
framkvæmdastjóra
miðborgarmála
Reykjavíkurborgar.
vegna frétta um að hann hafi
látið mála yfir allar veggja-
listmyndir í miðborg Reykja-
víkur. „Myndina bjuggu
krakkarnir sjálfir til og sýnir
Jakob Frímann haldandi á
úðabrúsa. Krakkarnir áttu að
koma sjálfir með myndir til
að setja á vegginn og þetta
fannst þeim viðeigandi“, segir
Helga Lind.
– nonni@bb.is
Það er kúl að vera í kór eða
svo finnst þeim í önfirska
karlakórnum Fjallabræður
sem mun opna stórtónleika
Rásar 2 og Landsbankans á
Menningarnótt í Reykjavík í
ágúst. Halldór Pálsson kór-
stjóri segir að ráðning Fjalla-
bræðra sé frágengin og tón-
leikarnir séu tvímælalaust
stærsta „giggið“ til þessa.
„Við lítum á þessa tónleika
sem rökrétt framhald þess sem
við höfum verið að gera. Fyrst
á Aldrei fór ég suður, síðan á
Iceland Airwaves og nú er það
Menningarnótt. Hróarskeldu-
hátíðin hlýtur að fylgja í
kjölfarið“, segir Halldór sem
heldur því fram að það sé kúl
að vera í kór og segir það vera
einkunnarorð Fjallabræðra.
Uppistaðan í kórnum eru
Kúl að vera í kór
Önfirðingar en aðeins hefur
verið slakað á kröfunum. „Við
vorum t.d.að fá nýjan meðlim
sem er ekki Önfirðingur en
hann vann í frystihúsi á
Flateyri og það taldist nóg.“
Þrátt fyrir skjótan frama í
tónlistarheiminum liggur eitt
atriði eins og mara á kór-
stjóranum. „Við höfum ekki
komið fram á Vagninum og
það er afar leitt. Ég verð
eiginlega að lofa því hér með
að það muni gerast á þessu
ári.“
Stofnun Fjallabræðra var
tilviljunarkennd eins og svo
margt annað í hinni dýru list.
Halldór var að reyna að kenna
félaga sínum á kontrabassa og
við þær æfingar urðu til
allnokkur lög sem eitthvað
þurfti að gera við. „Við stofn-
um bara kór sagði ég og
hringdi í félagana og stuttu
síðar við byrjaðir að taka upp
plötu.“ Halldór kórstjóri er
ekki að flækja raddsetninguna
um of. „Í kórnum eru bassar,
tenórar og þeir sem ekki falla
undir þá skilgreiningu eru
bartónar“, segir Halldór og
upplýsir að meginmarkmið
kórsins er að komast í kór-
ferðalag. – smari@bb.is
Fjallabræður á æfingu. Mynd Önundur Pálsson.
Fækkun í Reykjarfirði
Ferðamönnum hefur heldur fækkað í Reykjarfirði milli ára. Ragnar Jakobsson frá Reykjarfirði segir
að leiðindaveður og bjarndýrin á Skaga hafi sett strik í reikninginn. „Bjarndýrin náðu að hræða fólk
frá ferðalögum á þessum slóðum og svo tíðin ekki verið sú skemmtilegasta“, segir Ragnar. Fréttir
hafa borist af meiri reka á Ströndum en undanfarin ár. Ragnar staðfestir það en segir viðinn vera
lélegan. „Þetta er meiri reki en síðustu fimm ár en ekki það sem við kölluðum reka í gamla daga.“
Reykjarfjarðarbændur eru hættir að nýta reka til annars en heimabrúks og segir Ragnar það vera
vegna erfiðleika við flutninga eftir að Fagranesið fór.