Bæjarins besta - 24.07.2008, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 7
Nýr og glæsilegur pútt-
völlur verður opnaður innan
skamms á Torfnesi og sam-
kvæmt golfvallarsérfræðingi
verður aðstaðan til fyrirmynd-
ar fyrir unga sem aldna golf-
áhugamenn. Völlurinn er um
80 metrar á lengd en fram-
kvæmdir hófust síðasta haust,
að byggingu vallarins standa
HSV, Ísafjarðarbær, Golf-
klúbbur Ísafjarðar og Félag
eldri borgara í Ísafjarðarbæ.
Hannes Þorsteinsson er golf-
vallararkitekt og náttúrufræð-
ingur sem fenginn var til að
skoða hvernig framkvæmdir
hafa gengið. Hannes þykir fær
í sínu fagi en hann hannaði
einmitt golfvöllinn í Tungudal
á sínum tíma. „Fyrsti og
fremst er þetta auðvitað frábær
staðsetning, ég hef hvergi séð
aðstöðu sem þessa á jafn
hentugum stað fyrir bæjarbúa.
Þetta er miðsvæðis og nálægt
sjúkrahúsinu og dvalarheimil-
inu þannig að fólk þarf ekki
að leita langt til að nýta sér
þetta svæði. Hérna við hliðina
er auðvitað líka leikskóli og
það er alveg kjörið fyrir börn
og eldra fólk að koma hingað
Frá vinstri: Tryggvi Sigtryggsson, formaður Golfklúbbs Ísafjarðar, Hannes
Þorsteinsson, Björn Helgason og Stefán Haukur Ólafsson, gjaldkeri Félags eldir
borgara á Ísafirði.
og æfa sig í að pútta“, segir
Hannes. Að sögn Björns
Helgasonar, sem hefur unnið
að verkefninu undanfarin ár,
er púttvöllurinn hugsaður sem
afþreying fyrir alla bæjarbúa.
Að sögn Hannesar hefur
verið vel staðið að fram-
kvæmdum og farið eftir kúnst-
arinnar reglum. „Undirbygg-
ingin er mjög góð og þetta er
vel sendinn jarðvegur sem er
hérna undir. Þetta er mjög gott
gras sem sett hefur verið tyrft
með og völlurinn verður
kjörinn til golfs. Á suður-
endanum væri jafnvel hægt
að gera halla þar sem hægt
væri að æfa sig í að „chippa“
þannig að á svæðinu verði
aðstaða til að allan stuttan leik
í golfi“. Að sögn Björns og
Hannesar yrði þá ekkert því
til fyrirstöðu að alvöru golfara
gætu æft sig á vellinum og
jafnvel að farið yrði í skipu-
lagðar æfingar hjá golf-
klúbbnum, en svæðið er það
stórt að þar fer vel um marga
golfara.
Búist er við að völlurinn
verði tilbúinn í haust og að
Ísfirðingum verði gefinn
möguleiki á að spreyta sig á
vellinum áður en vetur ber að
garði. Að sögn Björns verður
haldin vígsluathöfn í septem-
ber þar sem völlurinn verður
formlega opnaður.
– nonni@bb.is
Púttvöllurinn glæsilega verður formlega opnaður í haust.
„Frábær púttaðstaða
fyrir unga sem aldna“
Samdráttur um
31% á milli ára
Næstum þriðjungi minna
af þorski hefur verið landað
á Vestfjörðum það sem af er
árinu miðað við sama tíma í
fyrra. Samkvæmt tölum frá
Hagstofu Íslands var 11.565
tonnum af þorski landað í
vestfirskum höfnum á tíma-
bilinu janúar til júní í fyrra
en aðeins 8.011 tonnum
hefur verið landað á sama
tímabili í ár. Nemur munur-
inn því um 31%. Er þetta í
takt við þá þróun sem sést á
öllu landinu en þar hefur
þorskafli dregist saman um
22%; 112.342 tonn á tíma-
bilinu janúar til júní 2007
samanborið við 87.467 tonn
á sama tímabili í ár.
Aðeins betri tölur er að
finna þegar litið er á heildar-
fiskafla. Á Vestfjörðum
dróst heildarfiskafli saman
um 14% á tímabilinu, úr
24.499 tonnum í 21.066
tonn. Á landinu í heild sinni
nam minnkunin um 27%;
624.198 tonn á tímabilinu
janúar til júní í ár saman-
borið við 858.910 tonn á
sama tímabili í fyrra.
Minnkun á fiskafla hefur
gríðarleg áhrif á bæjarfélög
á Vestfjörðum en á svæðinu
er hátt hlutfall fólks í vinnu
við fiskveiðar og fiskvinnslu
miðað við landið í heild. Í
skýrslu um áhrif aflasam-
dráttar í þorski á fjárhag
sveitarfélaga sem Hagfræði-
stofnun Háskóla gaf út í
fyrra kemur meðal annars
fram: „Óhætt að draga þá
ályktun að tiltölulega lítil
sjávarþorp verði fyrir
þyngstum búsifjum af
skerðingu aflaheimilda en
stærri sveitarfélög með
fjölbreyttari atvinnurekstur
finni minna fyrir skerðing-
unni. Fyrir stóra bæi eins og
Akureyri og Reykjavík er
tekjutapið ekki tilfinnanlegt.
Jafnvel gæti svo farið að
kvótaskerðingin styrkti hag
sumra stórra staða því að
ætla má að hún leiði til þess
að kvóti flytjist frá sumum
smáum stöðum til þeirra
stærri“.
– nonni@bb.is
Farandsali
handtekinn
Lögreglan á Vestfjörðum
handtók í síðustu viku far-
andsölumann á Ísafirði sem
hafði verið á ferð í byggðar-
lögum á norðanverðum
Vestfjörðum og líklega víðar
um land. Maðurinn hafði
gengið í hús og boðið til
sölu olíumálverk og annan
varning. Maðurinn er af
erlendu þjóðerni og hefur
hvorki dvalar- né atvinnu-
leyfi hérlendis. Hann er
grunaður um að hafa flutt
varninginn ólöglega til
landsins og skorti hann
jafnframt nauðsynleg leyfi
til sölumennskunnar. Talið
er að atferli mannsins sé m.a.
brot á tollalögum, lögum um
atvinnuréttindi útlendinga,
lögum um verslunaratvinnu
og lögreglusamþykkt Ísa-
fjarðarbæjar.
Maðurinn gisti fanga-
geymslur á Ísafirði á meðan
mál hans var rannsakað og
ákvarðaði Héraðsdómur
Vestfjarða að maðurinn
skyldi vera í farbanni til 21.
júlí samkvæmt beiðni lög-
reglustjórans á Vestfjörðum.
Lagt hefur verið hald á 905
myndir og muni sem tilheyra
manninum auk nokkurs af
fjármunum. Rannsókn máls-
ins er lokið og hefur lög-
reglustjóri þegar gefið út
ákæru á hendur manninum
fyrir ofangreind brot.
Maðurinn er frjáls ferða
sinna. – thelma@bb.is
Sjóræningjar í Bolungarvík?
Sjóræningjar virðast hafa fundið sig knúna til að leggja bát sínum að
smábátahöfninni í Bolungarvík . Sjóræningjafáninn blaktir á bátnum og hvít
hauskúpan á fánanum horfir með spurnaraugum til lands. Það skal ósagt
látið hvort sjóræningjarnir séu þeir sömu og rændu Tyrkja-Guddu á sínum
tíma en trúlega er vissara að hafa varann á og líta eftir eigum sínum þegar
umræddur bátur er í landi. Frá þessu var sagt á vikari.is.