Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2008, Qupperneq 10

Bæjarins besta - 24.07.2008, Qupperneq 10
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 200810 STAKKUR SKRIFAR Gildi og sannleikur Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. nokkra menn með sér í vinnu, að verkefnin virðast vera næg. Eins og staðan er núna ber maður ekki sérstakan kvíð- boga fyrir þeirri atvinnugrein. Þegar uppsveifla er í samfé- laginu, þá upplifum við ekki eins gríðarlega uppsveiflu hérna og verður á suðvestur- horninu. Þar af leiðandi förum við ekki fram af hengifluginu eins og virðist vera að gerast þar heldur förum við rólega niður hæðina. Lendingin hjá okkur verður þess vegna ekki eins harkaleg og á suðvestur- horninu. Við sjáum það líka, að hér á okkar svæði hafa verslun og þjónusta heldur verið að styrkjast. Við sjáum í ríkara mæli að keðjuverslanir hafa verið að eflast, svo sem hjá N1, sem eru að verða meiri og meiri þjónustuverslanir þar sem öflugt móðurfyrirtæki heldur utan um reksturinn. Það erum við líka að sjá með fleiri verslanir á svæðinu, eins og Samkaup-Strax, sem eru hér nokkuð víða, og Bónus, að það er ekkert fararsnið á þeim verslunum. En það er vissulega áhyggju- efni hjá smábátasjómönnum - þeir eru nokkrir en ekki nærri allir innan okkar vébanda - hvað kvótaniðurskurðurinn hefur haft gríðarleg áhrif. Sumir hafa neyðst til að hætta en hjá öðrum hefur orðið meiri skuldsetning og erfiðara að verða sér úti um kvóta. Þetta bitnar líka á þeim hluta ferða- þjónustunnar sem snýr að sjó- stangaveiðinni, en hún hefur verið gríðarleg lyftistöng fyrir svæðið.“ Taxtar og yfirborganir „Hér hefur þegar á heildina er litið verið ódýrara að stunda rekstur en á suðvesturhorninu. Ástæðan er sú, því miður, að launaþróunin hér og syðra hef- ur ekki haldist í hendur. Þetta hefur meðal annars bitnað á svæðinu að því leyti, að skóla- fólk sem fer héðan í burtu til framhaldsnáms hefur að námi loknu ekki átt kost á sam- bærilegum launum hér, jafn- vel ekki fyrir sömu vinnu. Hér er ég reyndar ekki aðeins að tala um Vestfirði heldur lands- byggðina yfirleitt. Hún hefur dregist aftur úr. Kjarasamningarnir sem voru gerðir í febrúar síðastliðnum voru hins vegar mjög mikils virði fyrir landsbyggðina. Við formenn félaga á landsbyggð- inni drógum enga dul á það, að þetta væru góðir samningar fyrir okkar fólk. Hlutfallslega breyttu þeir ekki svo mjög miklu á höfuðborgarsvæðinu. Þar var bróðurparturinn af launþegum á öðru en taxta- kaupi. Það þekkist í minna mæli á landsbyggðinni að fólk sé yfirborgað. Hér er meira um að fólk sé á strípuðum töxtum, sem er alger misskiln- ingur hjá atvinnurekendum, því að taxtar eru eingöngu til að verja lágmarksréttindi laun- þegans. Það er öllum frjálst að semja um betra kaup og betri kjör við sitt starfsfólk. Þegar um gott starfsfólk er að ræða er um að gera að um- buna því til að halda því hjá sér. Þetta er reginfirra margra atvinnurekenda að þeim sé nauðugur sá kostur að greiða lágmarkstaxta. Það er alltaf verið að kenna verkalýðsfé- lögunum um að halda niðri launum með því að við séum að semja um þessa taxta. Þeir eru hins vegar einungis til þess að tryggja lágmarksrétt hvers og eins launþega. Ekkert ann- að. Tryggja að það sé ekki verið að svína á honum. Við upplifðum það mjög sterkt í vetur, að bæði iðnaðar- menn og verslunar- og skrif- stofufólk hérna á svæðinu báru töluvert meira úr býtum en aðrir. Og ég segi: Það er bara gott að fólk fái vel borg- að. Spurt hefur verið hvers vegna við hefðum ekki náð þessu líka fyrir aðra. Það var hins vegar erfiðara. Á höfuð- borgarsvæðinu var mikið um yfirborganir hjá iðnaðar- mönnum og þó einkum skrif- stofufólki. Þess vegna kostaði hækkun lágmarktaxta nánast ekkert þar. Hins vegar gaf þetta fólki á landsbyggðinni góðar kjarabætur þó að verð- hækkanir á lífsnauðsynjum hafi núna étið þær upp.“ Lítill tími fyrir áhugamálin – Hver eru helstu áhuga- málin og viðfangsefnin í tóm- stundum? „Þau hafa ekki komist mik- ið að hjá mér síðustu misserin. Það hefur farið alveg gífurleg- ur tími í félagsmálin. Í fyrra þegar ég tók við formennsk- unni í Verk-Vest var ég ennþá í vinnu hjá Flugfélagi Íslands. Ég var ekki búinn að fá mig lausan því að það átti að vera svo rólegt að taka við að sumri, lítið um að vera, lítið að gerast. En það var öðru nær. Hvert verkefnið rak annað alveg þangað til undirbúningur kjarasamninga hófst. Ég átti að fara í sumarfrí hjá Flugfé- laginu í ágúst en þá hafði ég verið að vinna þar á vöktum og var svo alltaf á skrifstofu Verk-Vest á frívöktunum. Ég sá að það gengi aldrei upp að vera bæði formaður verka- lýðsfélagsins og jafnframt í annarri vinnu. Ég komst ekki í neitt sumarfrí í fyrra og áhuga- málin komust ekkert frekar að. Linda spurði mig eitt sinn í vetur hvort ég væri hættur í hestamennskunni. Þá var ég á kafi í kjarasamningunum. Þú verður nú að gefa mér smás- éns, sagði ég. En það hefur verið helsta áhugamálið mitt að vera með henni í hesta- mennskunni. Ég sagði nú allt- af við að það væri stússið í kringum hestana sem skipti mestu máli, að fara í hesthúsið og gefa þeim og snúast í kring- um þá. Útreiðartúrarnir voru kannski ekki aðalatriðið. Ég bý ennþá að því að hafa farið á járninganámskeið og járna því okkar hesta sjálfur, þó svo hafi nú ekki verið í vetur. Líka hef ég alla tíð verið dálítið veikur fyrir stanga- veiði, bæði sjóstangaveiði og silungsveiði. Ég er enginn sér- stakur laxakarl en silungurinn hefur alltaf heillað mig. Svo var það sportið sem ég lagði að mestu á hilluna þegar ég kynntist konunni, ég hafði bara engan tíma til að stunda það - það var golfið. Núna er ég aðeins farinn að fikta við það aftur eftir nánast tveggja áratuga hlé. En það er eins og annað, enginn tími til að stunda þetta. Og fjölskyldan er stór og henni þarf að sinna líka. Þá reyni ég að gefa mér tíma til að mæta á kóræfingar hjá karlakórnum Erni sem og æfingar hjá lúðrasveit Tón- listarskóla Ísafjarðar, en þar spila ég á trompet. Starfið hjá Verk-Vest er reyndar þess eðlis að maður verður nokkuð samofinn því, slítur sig aldrei almennilega frá því. Það eru góðar auglýs- ingar sem hafa komið frá Verslunarmannafélagi Reykja- víkur sem lýsa þessu ágæt- lega, þar sem fólkið er að burðast með vinnuna undir hendinni. Linda sagði að ég væri orðinn alveg eins í vetur þegar mest gekk á kjarasamn- ingunum. Kominn með papp- írana upp í rúm á kvöldin, kominn með vinnuna í rúmið. En ég er að reyna að venja mig af þessu og slíta mig frá vinnunni. Það er nauðsynlegt ef maður á ekki að brenna út í starfi löngu fyrir aldur.“ Efnahagsmálin hafa verið fyrirferðarmikil að undanförnu, ekki að ósekju. Þjóðin hefur um fátt annað hugsað enda hefur þrengt að ótrúlega góðum lífskjörum. Öllum er hollt að muna sögu Biblíunnar um hin sjö feitu og hin sjö mögru ár. Í lífinu skiptast oft á skin og skúrir. Aðeins hefur dregið ský fyrir sólu, en fáir eru aðkrepptir að undanskildum þeim sem veðjað hafa á erlend lán vegna kaupa á íbúðarhúsnæði. Flestum hlýtur að vera kleift að skera aðeins niður lífsstílinn um sinn og hugsa sitt ráð og leita þess er skiptir máli í lífinu. Því miður hafa mannleg gildi oft vikið í lífsgæða- kapphlaupinu. Fjölmiðlar hafa fjallað um að Kenýumanninum Paul Ramses skyldi vísað úr landi. Auðvelt er að hneyskslast og taka þátt í mótmælum fólks sem leggur fyrir sig að standa í slíku og nefna mætti atvinnumótmælendur. Það leggur sig fram um að hafa uppi andmæli við flestu sem snertir fram- kvæmd laga og réttar á Íslandi með alls kyns aðgerðum. Sem betur fer hefur það rétt til og kemst upp með að þreyta almenning og aðra, verndað af lög- reglu og lögum. Það þýðir hins vegar ekki að meirihluti almennra borgara styðji málstað þeirra. Hann fær þó gott pláss í fjölmiðlum og oftast gagn- rýnislaust. Á Íslandi hafa menn rúmt frelsi til þess að koma skoðunum sínum á fram- færi, óháð því hversu innihaldsríkar eða vel grundaðar þær eru. Það er fagn- aðarefni. Undrun vekur þó hve fjölmiðlungar leggja á sig litla vinnu til að kynna sér mál áður en talað er við mótmælendur. Kom það í ljós vegna burt- sendingar mannsins frá Íslandi til Ítalíu í samræmi við Dyflinarsamningin sem Ísland er þátttakandi í. Létt er að snúa aðgerðum ríkisstjórnar, sem eru löglegar, upp í mannvonsku ef aðeins er litið á eina hlið máls. Kenýamaðurinn og kona hans hafa dvalið ólöglega á Íslandi. Dvalarleyfi hefur hún í Svíþjóð og getur snúið þangað og á að gera, en vill greinilega taka lögin í sínar hendur. Hann dvaldi hér líka ólöglega á grundvelli vega- bréfsáritunar frá Ítalíu. Verra er að af þeirra hálfu hefur ekki verið sagt satt og rétt frá atvikum og atburðarás. Þá vaknar sá grunur að nýta hafi átt sér samúð íslensks almennings, sem þrautreyndir mótmælendur með feril hafa kynt undir. Miskunnsemi er góð, en gæta þarf samræmis og jafnræðis. Vilji Íslendingar opna landið upp á gátt fyrir fólki, sem ákveður sjálft hvort það er pólitískir flótta-menn er hollt að hafa í huga að fyrr en varir mun straumurinn verða endalaus. Geðþóttaákvörðun á vart við þótt auðvelt sé að hafa samúð með fólki. Hvert mál þarf að skoða og hafa í huga að samhengið við Evrópu er mikið. Við skulum virða það að óbreyttum lögum. Gildin eru mörg og misjöfn. Eitt gildanna er jafnræðisreglan sem ekki er leikfang.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.