Bæjarins besta - 24.07.2008, Side 11
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 11
Mun ekki beita sér fyrir frekari fram-
lögum til nýbyggingar Byggðasafnsins
Menntamálaráðuneytið
mun ekki beita sér fyrir frekari
framlögum til nýbyggingar
Byggðasafns Vestfjarða sam-
kvæmt bréfi frá menntamála-
ráðuneytinu sem lagt var fyrir
á fundi bæjarráðs fyrir
skemmstu. Í bréfinu kemur
meðal annars fram að verk-
efnið hefur notið framlaga úr
ríkissjóði umfram það sem
fólst í samning þess efnis sem
var undirritaður árið 2004. Í
þeim samning kom fram að
ríkissjóður skyldi leggja fram
kr. 35.041.827 til verksins og
Menntamálaráðuneytið mun ekki beita sér fyrir frekari framlögum til nýbyggingar
Byggðasafns Vestfjarða.
var sú upphæð að fullu greidd
fyrir árslok 2005. Samkvæmt
bréfinu eru framlög ríkisins
til nýbyggingarinnar nú kom-
in í rúmar 50 milljónir króna
en samkvæmt safnalögum er
gert ráð fyrir að framlag úr
ríkissjóði til að afla húsnæðis
fyrir safn geti numið allt að
þriðjung kostnaðar.
Samkvæmt upplýsingum í
greinargerð Byggðasafns
Vestfjarða nam framlag Ísa-
fjarðarbæjar til nýbyggingar-
innar á tímabilinu 2004-2006
33 milljónum króna. Í greinar-
gerðinni kemur einnig fram
að heildarkostnaður við bygg-
inguna var orðinn kr.
60.402.793 í árslok 2005, en
hlé hefur verið á framkvæmd-
um frá því sumri.
Í bréfinu segir að það sé því
ljóst að ríkissjóður hafi lagt
fram um 60% af þeim fram-
lögum sem hafa verið veitt til
nýbyggingar safnhúss
Byggðasafns Vestfjarða og að
„ráðuneytið mun því ekki
beita sér fyrir frekari framlög-
um til verkefnisins“.
– nonni@bb.is
Böðvar Sigurbjörnsson,
einn rekstraraðila skemmti-
staðarins Krúsarinnar á Ísa-
firði, fagnar styrkveitingu
Ísfjarðarbæjar til Kaffi Edin-
borgar. Bæjarráð samþykkti
að styrkja fjölskylduskemmt-
un Kaffi Edinborgar síðasta
laugardag um 50 þúsund
krónur. Stærsta númer
skemmtunarinnar er Euro-
bandið en auk Eurovision-
faranna kemur Morrinn og
hljómsveitin Apollo fram. Um
kvöldið mun Eurobandið spila
á balli í Edinborgarhúsinu.
„Við hljótum að fagna því að
hægt er að fá styrki frá bænum
til að fá ballhljómsveitir til
Ísafjarðar. Ég og mín fjöl-
skylda höfum verið í þessum
bransa í tuttugu ár og aldrei
dottið í hug að sækja um styrki
til bæjarins“, segir Böðvar.
Hann segir að nú muni hann
fara í það af krafti að bóka
stærstu ballhljómsveitir Ís-
lands og ætlar jafnframt að
sækja um styrki til bæjarins.
„Við fáum þá böndin til að
spila fyrir utan Krúsina um
daginn fyrir gesti og gangandi
og þá er komin ljómandi
fjölskylduskemmtun.“
Böðvar segist undrast hvað
styrkbeiðni Kaffi Edinborgar
var afgreitt með miklum flýti
eða í sömu viku og skemmt-
unin verður haldin. Hann býst
við að Krúsin fái sambærilega
flýtimeðferð.
– smari@bb.is
Gangi áætlun Böðvars fram verða haldnar
fjölskylduskemmtanir fyrir framan Alþýðuhúsið.
Krúsin fagnar styrkveit-
ingu til Kaffi Edinborgar
Vinnubúðir á snjó-
flóðahættusvæði
boði fyrir verktakann. „Við
gerum okkur grein fyrir því
að búðirnar eru á snjóflóða-
hættusvæði en staðsetningin
er sú eina sem er í boði og er á
því svæði sem Vegagerðin
úthlutaði okkur“, segir Rúnar.
Hann leggur áherslu á að
aðalvinnubúðir Ósafls og þær
sem svefnaðstaða starfsmanna
verður, er í Bolungarvík en
ekki í Hnífsdal.
Ekki er ósennilegt að rýma
þurfi búðirnar í einhver skipti
vegna snjóflóðahættu og segir
Rúnar að menn geti lifað við
það. „En ef við þurfum að
rýma búðirnar oft þá fer það
að valda okkur vandræðum“,
segir Rúnar. – smari@bb.is
Vinnubúðir verktakafyrir-
tækisins Ósafls, sem vinnur
að gerð Bolungarvíkurganga,
eru staðsettar undir Búðargili
í Hnífsdal sem er mikið og
þekkt snjóflóðasvæði. Engin
svefnaðstaða verður í búðun-
um í Hnífsdal heldur verður
þar verkstæði, matssalur og
aðstaða fyrir eftirlit.
Jóhann Birkir Helgason
bæjartæknifræðingur segir að
Veðurstofan og Ísafjarðarbær
hafi verið í samstarfi með þetta
mál og gert verktakanum ljóst
að þetta sé ekki æskileg
staðsetning fyrir vinnubúðir.
Að sögn Rúnars Jónssonar,
staðarstjóra Ósafls, er þessi
staðsetning sú eina sem var íVinnubúðirnar eru staðsettar beint undir Búðargili.