Bæjarins besta - 24.07.2008, Qupperneq 12
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 200812
Páll Pálsson fjórði aflahæstur
Páll Pálsson ÍS landaði fjórða mesta aflaverðmæti íslenskra ísfisktogara á síðasta ári.
Aflaverðmæti Páls var 572 millj. króna. Mestu aflaverðmæti landaði Suðurey VE
eða 621 millj. króna. Þetta kemur fram í samantekt Fiskifrétta sem byggð er á
nýbirtri skýrslu Hagstofu Íslands um afla og aflaverðmæti einstakra skipa á árinu
2007. Páll Pálsson ÍS er gerður út af Hraðfrystihúsinu – Gunnvöru Hf. Skipið var
smíðað í Japan árið 1972 fyrir Hraðfrystihúsið í Hnífsdal og hefur skilað sínu og
gott betur á þeim 36 árum sem eru liðin frá fyrstu veiðiferð skipsins. Páll Pálsson ÍS á veiðum.
„Frábær og flottur fjölskyldudagur“
Ísfirska hljómsveitin Apollo var meðal þeirra sem skemmtu gestum.
Fjölmenni sótti fjölskyldu-
skemmtun í Edinborgarhús-
inu á Ísafirði á laugardag.
Fram komu Evróvisjónfararn-
ir í Eurobandinu, götuleikhús-
hópurinn Morrinn og ísfirska
hljómsveitin Apollo. „Þetta
var rosalega skemmtilegur og
flottur dagur. Um 400 manns
komu og fengu sér grillaða
pylsu og hlýddu á skemmti-
atriði. Það var líka frábært að
fá Eurobandið sem spilaði frítt
á fjölskylduskemmtuninni og
héldu uppi góðu stuði. Bæði
börn og fullorðnir dönsuðu
fram eftir degi“, segir Erik
Newman, vert á kaffi Edin-
borg og skipuleggjandi fjöl-
skylduskemmtunarinnar.
Að sögn hans var Euro-
bandið mjög ánægt með heim-
sóknina til Ísafjarðar. „Grétar
Örvarsson, umboðsmaður
Eurobandsins, vildi þakka
kærlega fyrir góðar móttökur
en þeim fannst frábært að sjá
hversu margir komu á fjöl-
skyldutónleikana og eins
dansleikinn um kvöldið og
sagðist vonast til að geta
endurtekið leikinn að ári.
Tæplega 400 gestir komu á
ballið og dönsuðu margir frá
fyrsta lagi til hins síðasta.“
Fjölskylduskemmtunin var
í boði Kaffi Edinborgar, Spari-
sjóðs Vestfirðinga, Ísafjarðar-
bæjar og Landflutninga. „Ég
vil koma á framfæri þakklæti
til allra sem komu að og
styrktu þessa fjölskylduhátíð
og vona að við getum endur-
tekið svona flottan fjölskyldu-
dag að ári“, segir Erik.
Boðið var til grillveislu.
Eurobandið.
Fjölmenni sótti skemmtunina.