Bæjarins besta


Bæjarins besta - 24.07.2008, Síða 15

Bæjarins besta - 24.07.2008, Síða 15
FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 15 Sælkeri vikunnar er Lína Þóra Friðbertsdóttir í Hnífsdal Hrísgrjónaréttur og ljúffeng kaka Sælkeri vikunnar býður upp á dýrindis hrísgrjónarétt með kjúkling. Einnig býður hún upp á uppskrift af einfaldri en ljúffengri köku sem ætti ekki að svíkja neinn kökuunnanda. Lína var beðin með afar litlum fyrirvara um að hlaupa í skarð- ið og koma með uppskrift í blaðið sem hún gerði með glæsibrag. Hrísgrjónaréttur 2 pokar af hrísgrjónum Kjúklingabringur 2-3 dósir af kjúklingasúpu 1 Paprika 1 dós sveppir 1-2 tsk majones 2 dl mjólk eða rjómi Smá ost saman við Sjóðið hrísgrjónin og steik- ið kjúklinginn. Blandið síðan öllu saman í skál og hrærið vel saman. Setjið í eldfastamót og setjið svo ost ofan á og hitið í ofni. Fín kaka í eftirrétt 2 Betty Crocker ½ l þeyttur rjómi 2-3 bananar Súkkulaðispænir Bakið tvo Betty Crocker brúna botna. Blandið saman þeytta rjómann, bönunum og slatta af súkkulaði spænum setjið á milli. Glassúr ofaná kökuna: 500 g flórsykur 2-3 msk kakó Slatti af kaffi 2 tappar vanilludropar Setjið á kökuna og stráið kókosmjöli yfir. Ég skora á Jónu Björk Brynjarsdóttur á Þingeyri að verða næsti sælkeri vikunnar. frjálsum ef áhuginn er til staðar. Það er enn í dag fólk á Ísa- firði sem veit ekki að það sé æfð glíma hér. Þegar maður kveikir á sjónvarpinu sér maður fótbolta og körfubolta og þannig. Bara lítill hluti af samfélaginu veit að glíma sé til en aðrir halda að hún sé útdauð og eigi heima á safni. Það er alls ekki rétt og glíman lifir góðu lífi í dag“, segir Brynjólfur. – Fyrsta heimsmeistaramót IGA í íslenskri glímu sem fram fer í Danmörku dagana 9.-12. ágúst. Landsliðshópur Íslands hefur á að skipa 24 glímumönnum og -konum, og þar af fjórum Harðverjum, sem munu etja kappi við glímumenn frá 12 löndum og þremur heimsálfum. „Fimmtán þjóðir sem keppa í íslenskri glímu, lausatökum og hryggspennu. Það verða yfir 120 keppendur og þar af eru Rússarnir með flesta keppendur. Íslendingar eru eina þjóðin sem sendir kepp- endur í alla flokka. Fjórir Ís- firðingar voru valdir en það er sem sagt ég, Steinar Bjarki Marinósson, Auðunn Elvars- son, Arnar Halldórsson. Mót- ið fer fram á víkingasafni rétt hjá Hróaskjöldu og áætlað er að um 10.000 manns muni koma að horfa á“, segir Bryn- jólfur. –Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Brynjólfur er sendur út í heim til að keppa í glímu. „Ég fór á glímusýningu í Noregi, þar sem ég sýndi glímu fyrir fleiri manns í vík- ingaþorpi. Þar voru menn sem hafa það að starfi að vera vík- ingar og ferðast um heiminn til að sýna fangbrögð og slíkt. Síðan keppti ég fyrir þremur mánuðum á Evrópumeistara- móti á Kanaríeyjunum í gúren, en það er íþrótt sem er svipuð og júdó. Svo áttum við að fara til Eþíópíu að keppa í belt wrestling en þá brutust óeirð- irnar út“, segir Brynjólfur og að þeim orðum slepptum er viðtalinu slitið og systkinin sýna blaðamanni hina fjöl- mörgu verðlaunagripi og – peninga sem þau hafa unnið. Taka undir áskorun Riley hjónanna Guðmundur M. Kristjáns- son hafnarstjóri segist geta tekið undir áskorun Jean og Roger Riley um að það vanti fleiri útibekki og borð fyrir ferðamenn en segir það er ekki á könnu hafnarinnar. Hjá Heimi Hanssyni, forstöðu- manni Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna, fengust þau svör að fjölgun bekkja væri hlutur sem vert væri að skoða. Heimir bendir á að þegar komið er upp í bæ séu talvert að bekkjum. Til dæmis á Silfurtogi, við verkalýðshúsið og kirkjuna sem og við kaffi- hús bæjarins. „En þegar kom- ið er á hafnarsvæðið fer þeim ört fækkandi og það mætti alveg koma fyrir bekkjum á gönguleiðinni frá skemmti- ferðaskipunum og upp í bæ. En það er annað mál að það er ekkert meira viðeigandi þegar þú ert niður á höfn að tylla sér á bryggjupolla og njóta út- sýnisins“. segir Heimir. Ensku hjónin Roger og Jean Riley sem komu til Ísafjarðar með skemmtiferðaskipinu Thompson Celebration skora á bæjaryfirvöld að bæta að- stöðu fyrir farþega skemmti- ferðaskipa. Roger og Jean eru bæði komin vel yfir miðjan aldur og segja þau skort á bekkjum í bænum og í kring- um hafnarsvæðið vera baga- legan fyrir eldra fólk. Sjálf tylltu þau sér á hnalla og brunnlok á höfninni til að kasta mæðinni og ekki síður til að setjast niður og njóta útsýnisins milli fjalla blárra sem þau segja vera stórfeng- legt. – smari@bb.is Roger og Jean tylltu sér á brunnlok á Ásgeirsbakka. Ensk hjón skora á bæinn Þetta telst vart viðunandi aðstaða. Þátttakendur í Reykjavík- urmaraþoni Glitnis sem fram fer þann 23. ágúst geta safnað áheitum og hlaupið í þágu líknarfélaga, þar á meðal Krabbameinsfélags- ins Sigurvon á norðanverð- um Vestfjörðum. Fjárhæð áheita sjálfstæð ákvörðun hvers þátttakanda fyrir sig. „Um leið og við óskum Vestfirskum hlaupurum og öllum öðrum sem þátt taka í hlaupinu góðs gengis viljum við þakka fyrir að fá að vera með í þessu frábæra verk- efni“, segir í tilkynningu frá Sigurvon. Krabbameins- félagið Sigurvon er áhuga- mannafélag rekið fyrir vel- vild almennings. Hlauparar geta skráð sig á marathon.is og valið vega- lengd og góðgerðarsamtök sem eiga að njóta góðs af Geta hlaupið til styrktar Sigurvon hlaupinu. Þannig geta vinir og velunnarar hlauparanna heitið á þá og hvatt þá til dáða á sama tíma og gott málefni er styrkt. Fjöldi Vestfirðinga tekur þátt í Reykja- víkurmaraþoninu ár hvert. Ísfirðingurinn Kristbjörn Sigurjónsson hljóp heilt maraþon á síðasta ári. Helgarveðrið Horfur á föstudag, laugardag og sunnudag: Austlæg átt og fremur hlýtt í veðri, einkum norðan- og vestanlands. Rigning öðru hverju sunnan- og vestanlands, en annars bjart með köflum. Um 100 manns í Dalaportinu Um 100 manns sóttu Dalaportið sem haldið var í hlöðunni á Heimabæ í Arnardal á laugardag. „Við erum hæst ánægð og ætlum að endurtaka leikinn í haust og svo ætlum við að vera með jólamarkað fyrir jólin“, segir Anna Sigríður Ólafsdóttir, hjá ferðaþjónustunni Arnardal sem stóð að Dalaportinu. Um var að ræða allsherjar bílskúrssölu þar sem Kolaportstemning sveif yfir vötnum eins og nafnið gefur til kynna. Að auki var boðið upp á kökuhlaðborð í Fjósinu á Heimabæ. „Fólkið sem kom á laugardaginn var í sól og sumaryl í dalnum fagra og börnin voru rosa kát að fá að leika úti í sveitinni og heimabaksturinn rann ljúflega niður“, segir Anna Sigríður.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.