Bæjarins besta


Bæjarins besta - 25.09.2008, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 25.09.2008, Blaðsíða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 400 m/vsk Fimmtudagur 25. september 2008 · 39. tbl. · 25. árg. Elías Jónatansson bæjarstjóri í Bolungarvík í opnuviðtali um erfiða stöðu bæjarfélagsins, hugsanlega sameiningu sveitarfélaga á norð- anverðum Vestfjörðum, gríðarlega möguleika í þorskeldi og sitthvað fleira Sveitarfélögin verði sameinuð – að því tilskildu að fólkið sjálft vilji Byrjað að bora eftir heitu vatni Borun eftir heitu vatni í Tungudal í Skutulsfirði hófst aðfaranótt mánudags. „Menn voru alla síðustu viku að stilla bornum upp“, segir Sölvi Sól- bergsson, framkvæmdastjóri orkusviðs hjá Orkubúi Vest- fjarða. „Borinn og búnaðurinn sem fylgir honum er um 300 tonn og mikið verk að stilla þessu upp.“ Gert er ráð fyrir því að borunin taki rúman mánuð héðan í frá, þannig að henni ætti að vera lokið um mánaðamótin október-nóv- ember. Sölvi segir að hér sé um svokalla stefnuborun að ræða. „Fyrst verður borað lóð- rétt niður á 350 metra en síðan verður borað um 35 gráður út úr lóðlínu þannig að á þúsund metra dýpi ætti lengd holunnar að vera eitthvað um 1200 metrar. Í útboði var gert ráð fyrir að heildarlengdin gæti orðið talsvert meiri en það.“ Sölvi segir að reynt verði að þvera sprunguna þar sem leitað er að vatni með því að halla borstönginni. Hann segir að þetta sé ein af fyrstu holun- um þar sem þessari aðferð er beitt í lághitaleit. Hins vegar sé hún orðin algeng í háhitan- um. „Þessi aðferð að þvera sprungur gefur betri raun en vera lóðrétt í þeim“, segir hann. Verkið mun kosta á bilinu 150 til 200 milljónir króna. Um síðustu mánaðamót var tilkynnt að Orkubú Vestfjarða hefði fengið 102 milljóna króna lánveitingu úr Orku- sjóði til að leita að heitu vatni í Tungudal en það er hæsta upphæð sem veitt verið úr sjóðnum í eitt verkefni. „Þetta er áhættuverkefni þótt ég telji meiri líkur en minni að það heppnist“, sagði Kristján Har- aldsson orkubússtjóri þegar greint var frá láninu frá Orku- sjóði. Ef borunin reynist ár- angurslaus eða árangur mun lakari er gert er ráð fyrir hefur iðnaðarráðherra heimild til að fella niður endurgreiðslu- skyldu lánsins. – htm@snerpa.is Borun eftir heitu vatni í Tungudal í Skutulsfirði hófst aðfaranótt mánudags. Uppgræðsla á snjó- flóðavarnargarðinum fyr- ir ofan Múlaland í Skut- ulsfirði hefur ekki gengið vel. Verkinu hefur ekki verið sinnt sem skyldi og er þörf á stórtækari að- gerðum til að ná gróður- ástandi hans í þokkalegt form að sögn Jóhanns Birkis Helgasonar for- stöðumanns tæknideildar Ísafjarðarbæjar. „Ísafjarðarbær mun fara í samstarf við Land- græðsluna á næsta ári. Vonum við að það muni nást betri árangur í upp- græðslu hans með fag- þekkingu starfsmanna hennar,“ segir Jóhann Birkir. „Reynt var að handsá í varnargarðinn eftir að verktakinn kláraði sinn hluta verksins en það er þörf á stórtækari aðgerð- um til að ná betri árangri í uppgræðslu hans. Að hluta til næst aldrei að græða allan varnargarð- inn upp vegna þess að efsti hluti hans er einung- is klöpp og festir ekki gróður þar. Ég tel þörf á að leggja vatnslögn að varnargarðinum til að geta vökvað hann svo gróður geti dafnað. Á næsta ári vonumst við eftir miklum framförum í uppgræðslu hans,“ segir Jóhann Birkir. Uppgræðsl- an mistókst

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.