Bæjarins besta - 25.09.2008, Qupperneq 2
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 20082
Afmælisfagnaður
Í tilefni af 40 ára afmæli Hamraborgar er
boðið til afmælisfagnaðar í Arnardal, laug-
ardaginn 27. september kl. 20:00-24:00.
Allir fyrrverandi og núverandi starfsmenn
Hamraborgar og hótels Hamrabæjar eru
hjartanlega velkomnir.
Vinsamlegast skrá-
ið ykkur í síma 456
3166 eða á netfangið
hamraborg@heimsnet.is.
Rútuferð verður frá
Hamraborg kl. 20:00
og heim að veislunni
lokinni.
Hætt var við fyrirhugaða
óvissuferð Nemendafélags MÍ,
sem vera átti á föstudag í síð-
ustu viku. Jón Reynir Sigur-
vinsson skólameistari MÍ seg-
ir að ekki sé hægt að leyfa
slíka ferð í nafni skólans
vegna orðspors hennar undan-
farin ár. „Ég lít svo á að mörg
undanfarin ár hafi alltaf verið
uppákomur og eftirmál. Um-
gengi og umgjörð þessarar
ferðar hefur verið með þeim
hætti að ég vil ekki bendla
skólann við slíkar ferðir. Nem-
endur skólans verða að fara
að taka sig á hvað þetta varð-
ar,“ segir Jón Reynir. „Ég vil
ekki að foreldrar unglinga sem
eru ekki orðnir 18 ára geti
skrifað upp á leyfi til þess að
fara í ferðir sem eru ekki undir
annarri yfirskrift en að fara á
fyllerí“.
Jón Reynir segir að það hafi
ekki dugað til að hafa herta
gæslu eins og hafi verið reynt
áður. „Þrátt fyrir kennarafylgd
og nánast gjörgæslu með lög-
reglu- og björgunarsveitar-
mönnum voru samt nemendur
sem voru drukknir og einnig
þeir sem höfðu aldrei drukkið
áður og þurfti að senda þá
heim í lögreglufylgd. Til þess
að hægt sé að halda svona
ferð verðum við að sjá breyt-
ingu í hegðun nemenda til
batnaðar, og ég hef fulla trú á
því,“ segir Jón Reynir.
„Þetta kemur okkur afar
spánskt fyrir sjónir,“ segir
Brynjólfur Óli Árnason for-
maður NMÍ. „Sérstaklega
vegna þess að í upphafi skóla-
árs þegar við settumst niður
með stjórn skólans og rædd-
um þessa ferð, mælti hann
með því að við færum frekar í
Reykjanes heldur en á aðra
staði. Þannig að það var ekki
að heyra í honum að hann
ætlaði að slá óvissuferðina af
þá,“ segir Brynjólfur. „Það er
mikill pirringur í nemendum
skólans vegna þessa og út af
busuninni og við bíðum átekta
með hvað hann bannar næst.
Verður það kannski Skrall-
ið?,“ segir Brynjólfur.
Hætt við óvissuferð NMÍ vegna
slæms orðspors nemenda skólans
Vatnsútflutningsfyrirtæki
hafa sprottið upp í ýmsum
landshlutum á síðustu árum .
Öðru hverju berast fréttir af
undirbúningi vatnsútflutnings
frá Hafnarfirði, Fjarðabyggð
og Rifi á Snæfellsnesi og jafn-
vel fleiri stöðum en fremur
lítið hefur heyrst af gangi mála
hjá Brúarfossi ehf. sem hygg-
ur á vatnsútflutning frá Ísa-
firði. Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar,
veit hins vegar ekki til annars
en undirbúningurinn gangi
samkvæmt áætlun. „Við gerð-
um samning við Brúarfoss í
mars síðastliðnum og sam-
kvæmt honum hefur fyrirtæk-
ið tíma til loka apríl 2010 til
þess að komast í full afköst í
vatnsútflutningi. Fyrirtækið
hefur níu mánaða svigrúm frá
því að samningurinn var und-
irritaður til að leggja fram
áætlanir um uppbyggingu svo
að við getum tekið tillit til
þeirra við endurskoðun á okk-
ar aðal- og deiliskipulagi. Við
þurfum auðvitað nokkuð rúm-
an tíma til að breyta gildandi
skipulagi. Enn bendir ekkert
til annars en að áætlanir Brú-
arfoss standist enda þurfa þeir
ekki að leggja fram áætlanir
sínar samkvæmt framansögðu
fyrr en um áramót“, segir Hall-
dór.
„Forsvarsmenn Brúarfoss
hafa greint okkur frá því að
fyrirtækið hafi fengið húsnæði
við Sindragötu á Ísafirði þar
sem búið er að leggja inn sér-
staka mjög afkastamikla vatns-
lögn á kostnað fyrirtækisins.
Jafnframt er fyrirtækið komið
með starfsmann í hlutastarfi á
Ísafirði og hefur gefið okkur
þær upplýsingar að stefnt sé
að því að fyrsta tilraunasend-
ingin fari utan jafnvel í þess-
um mánuði. Ef við miðum
okkur við aðra staði, þá hefur
undirbúningur að vatnsút-
flutningsverkefninu á Rifi sta-
ðið í fjögur-fimm ár og hefur
dregist um líklega tvö-þrjú ár
frá því sem áætlað var, þannig
að það er komið langt á eftir
áætlun“, segir Halldór Hall-
dórsson bæjarstjóri Ísafjarðar-
bæjar. Hann kveðst hins vegar
ekki þekkja gang þessara mála
í Fjarðabyggð eða í Hafnar-
firði.
– htm@snerpa.is
Undirbúningur vatnsútflutn-
ings frá Ísafirði á áætlun
Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar mundar hér pútterinn.
Nýr púttvöllur á Torfnesi
á Ísafirði var formlega vígð-
ur á föstudag. Við opnunina
fluttu Björn Helgason, for-
maður púttvallarnefndar,
Halldór Hermannsson, for-
maður Félags eldri borgara
á Ísafirði, og Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar ávörp. Að vell-
inum koma Golfklúbbur
Ísafjarðar, Félag eldri borg-
ara og Ísafjarðarbær. Um er
að ræða stærsta púttvöll
sinnar tegundar á landinu.
Völlurinn er um 80 metrar
á lengd en framkvæmdir
hófust síðasta haust.
Staðsetning vallarins þyk-
ir til fyrirmyndar, en hann
er bæði miðsvæðis og ná-
lægt sjúkrahúsinu og dval-
arheimilinu Hlíf, að ekki sé
minnst á leikskólann. Pútt-
völlurinn hefur lengi verið
á dagskrá og stóð til að
byggja hann fyrir þremur
árum, en vegna annríkis
iðnaðarmanna var verkinu
frestað. – thelma@bb.is
Nýr púttvöllur
vígður á Torfnesi
Nýr púttvöllur var vígður á Torfnesi á föstudag.
Kristján Möller, samgöngu-
ráðherra segir ljóst að strand-
flutningar milli Reykjavíkur
og Ísafjarðar geti ekki staðið
undir sér nema með styrk frá
ríkinu að undangengnu út-
boði. Eins og greint hefur ver-
ið frá hefur Eimskip hafið
strandsiglingar til Ísafjarðar
en um er að ræða tilrauna-
verkefni til þriggja mánaða.
Kristján segir ánægjulegt að
þessi tilraun sé hafin. Undan-
farin ár hafa strandsiglingar
verið stopular; nokkur fyrir-
tæki hafa reynt fyrir sér með
þær, einkum milli Reykjavík-
ur og Vestfjarða, en horfið frá
þar sem flutningarnir hafa
ekki staðið undir sér.
Vöruflutningar um land allt
hafa færst á flutningabíla og
umferð þeirra orðið mikil á
vegakerfinu. Undan því hefur
verið kvartað, bæði vegna
mikils vegaslits og vegna
slysahættu. Kristján Möller
segir talsverðan áhuga vera
fyrir að taka aftur upp strand-
siglingar, ekki síst vegna
álagsins á vegi og umferð og
hann hefur átt fundi með full-
trúum skipafélaganna. Frá
þessu segir í fréttum Svæðis-
útvarps Vestfjarða.
– thelma@bb.is
Strandsiglingar geta ekki staðið
undir sér nema með styrk frá ríkinu
Reykjafoss skip Eimskipa við bryggju á Ísafirði.