Bæjarins besta - 25.09.2008, Side 3
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 3
Rafvirki/
rafveituvirki
Orkubú Vestfjarða leitar að starfsmanni
til fjölbreyttra starfa í vinnuflokki OV á Ísa-
firði. Störfin felast meðal annars í almenn-
um nýframkvæmdum og viðhaldi á rafbún-
aði dreifi-, aðveitu- og kyndistöðva, upp-
setningu og viðhaldi iðntölvustýringa í að-
veitu- og kyndistöðvum, uppsetningu og
viðhaldi á há- og lágspennubúnaði og
reglubundnu eftirliti með fjölbreyttum stýri-
búnaði veitunnar auk annarra tilfallandi
starfa við rafveitur.
Menntunarkröfur:
Sveinspróf í rafvirkjun eða rafveituvirkjun.
Reynsla af störfum við rafveitur er æskileg,
en ekki skilyrði. Nauðsynlegt er að viðkom-
andi geti unnið sjálfstætt sem og í hóp.
Ófaglærður starfs-
maður í vinnuflokk
Orkubú Vestfjarða leitar að duglegum
einstaklingi sem hefur gaman af að takast
á við fjölbreytt verkefni. Störfin felast meðal
annars í vinnu við nýlagnir og viðhald, jafnt
innanbæjar sem og í sveitum og ferða-
lögum um fjöll og firnindi til vinnu við línur
og strengi, jafnt að sumri sem vetri. Við-
komandi þarf að hafa gaman af útiveru og
ævintýrum. Meirapróf og vinnuvélaréttindi
er kostur en ekki skilyrði.
Hæfniskröfur:
Hæfileg lífsreynsla og almenn skynsemi.
Viðkomandi mun fá þjálfun í starfi, jafnt
í viðhaldi innanbæjarkerfa sem og í línu-
vinnu. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti
unnið sjálfstætt sem og í hóp.
Nánari upplýsingar veitir verkstjóri í raf-
veituflokki Orkubús Vestfjarða á Ísafirði,
Henrý Bæringsson í síma 450 3202 og
894 0899.
„Við erum bara að reka okk-
ar fyrirtæki alveg eins og við
höfum gert síðan 1941. Auð-
vitað erum við búnir að fara í
gegnum ótal gengisbreytingar
upp og niður á þeim tíma“,
segir Einar Valur Kristjáns-
son, framkvæmdastjóri Hrað-
frystihússins Gunnvarar hf.
þegar hann er spurður um
áhrifin af falli krónunnar á
reksturinn. Margir hafa talið
að gengishrunið hafi gósentíð
í för með sér fyrir útgerðina
og útflutning á fiski og fisk-
afurðum. „Auðvitað aukast
tekjur fyrirtækisins, en þó sér-
staklega tekjur sjómannanna
þar sem mjög aukinn olíu-
kostnaður svo og annar kostn-
aður fellur allur á útgerðina.
Að því leyti fara hagsmunir
fyrirtækisins og sjómanna
saman. Landverkafólkið nýtur
hins vegar ekki góðs af þessu.
En við skuldum náttúrlega í
erlendum gjaldmiðlum og
skuldirnar hækka að sjálf-
sögðu hjá okkur eins og allir
vita“, segir Einar Valur.
„Við fylgjumst auðvitað
með umræðunni í þjóðfélag-
inu um gjaldeyrismálin. Vand-
inn er sá að við verðum að
afla meira en við eyðum. Það
er grundvöllurinn í rekstri
bæði hjá fyrirtækjum og ein-
staklingum. Við reynum að
haga seglum þannig. Þess
vegna er dálítið gaman að
fylgjast með evru-umræð-
unni. Það er eins og menn
telji að við það eitt að taka
upp evru muni allt lagast. Eins
og einhver sagði: Það breytir
engu um líðan sjúklingsins
hvort hann er mældur með
Fahrenheit eða Celsíus, sjúk-
dómurinn verður ennþá til
staðar – við höfum eytt meiru
en við höfum aflað.
Vissulega er ágætur skriður
hjá okkur sem stundum út-
flutning núna, en við höfum
áhyggjur af ástandinu. Við
erum í samfélagi þar sem öll-
um þarf helst að líða nokk-
uð bærilega. Við höfum líka
miklar áhyggjur af því að það
skuli ekki mega veiða nema
130 þúsund tonn af þorski.
Það eru hinar stóru áhyggjur.
Þetta veldur því að við getum
ekki aflað þjóðarbúinu meiri
tekna. Við hefðum viljað gera
betur, höfum til þess tæki og
tól. Við vitum að það munar
um þann gjaldeyri sem sjávar-
útvegurinn aflar, auk þess sem
talið er að hvert eitt starf í
sjávarútvegi skapi þrjú önnur,
því má ekki gleyma.
Ég hef hamrað á þessu við
bankamenn og sérfræðinga –
það er ekki nema ár síðan Við-
skiptaráð var að tala niður til
sjávarútvegsins. Þeir voru að
hneykslast á því að menn
skyldu voga sér að skjóta hval
– með því væri verið að spilla
fyrir útrásinni. En menn verða
að átta sig á því að það hefði
aldrei orðið nein útrás ef ekki
hefðu verið stundaðar fisk-
veiðar og hvalveiðar við Ís-
land. Ég er hræddur um að
menn hafi farið fram úr sér í
þessum efnum“, segir Einar.
Segir ástandið í gengismál-
um ekki ganga til lengdar
Aðsóknin að Byggðasafni
Vestfjarða eykst nokkuð
Aðsókn að Byggðasafni
Vestfjarða á Ísafirði var
heldur meiri í sumar en í
fyrra, að sögn Jóns Sig-
urpálssonar forstöðu-
manns. „Síðustu ár hefur
aðsóknin verið heldur að
aukast. Fyrir nokkrum
árum stóð gestafjöldinn í
stað og jafnvel var einhver
fækkun milli ára en núna
er þetta heldur upp á við“,
segir hann. Hlutföllin milli
innlendra og erlendra
gesta eru nánast jöfn og
hefur svo verið um árabil.
Engar byltingar eru vænt-
anlegar á safninu fyrir
ferðamannatíðina á næsta
ári. „Við reynum hins
vegar alltaf að bæta ein-
hverju við á hverju ári og
koma með nánari útfærsl-
ur á því sem við erum
með. Við leggjum sérstaka
áherslu á sjávarútvegs-
þáttinn í safninu og mun-
um halda því áfram, bæði
hvað varðar bátana og
saltfiskvinnsluna.“
Veitingareksturinn í
Tjöruhúsinu gamla hefur
sett skemmtilegan svip á
svæði Byggðasafnsins í
Neðstakaupstað á Ísafirði.
Hann hefur um árabil
verið í höndum hjónanna
Magnúsar Haukssonar og
Ragnheiðar Halldórs-
dóttur og segist Jón Sig-
urpálsson eindregið vona
að svo verði áfram á næsta
ári. „Þau hafa byggt þetta
upp og hlotið alþjóðlega
athygli og viðurkenningu
fyrir“, segir Jón Sig-
urpálsson.
– htm@snerpa.is
Byggðasafn Vestfjarða er
til húsa í Neðstakaupstað.
Fjallabræður þóttu standa sig frábærlega á tónleikum þeirra á Tónlistardeginum mikla á Ísafirði á laugardag. Má
það þakka góðri undirbúningsvinnu sem þeir lögðu á sig fyrir tónleikana. Þeir byrjuðu á því að hittast á Vagninum á
Flateyri þar sem farið var yfir mikilvæg málefni fyrir tónleikana. Síðan var boðið upp á kjötsúpu og nýmjólk til að hlaða
inn allri þeirri nauðsynlegu karlmennsku sem þarf til að flytja Fjallabræðralögin. Mældist hún vel fyrir og var haft á
orði að krafturinn sem henni fylgdi nægði til að flytja fjöll. Svo hoppaði allur kórinn upp í rútu sem flutti þá beint í
hljóðprufu í Edinborgarhúsið á Ísafirði. Fullt var út úr dyrum í Edinborgarhúsinu þegar Fjallabræður hófu upp raust
sína. Fluttu þeir sitt eigið efni við mikið lof áhorfenda og leiddu svo gesti í fjöldasöng á lagi Magnúsar Þórs Sigmunds-
sonar „Ísland er land þitt“. Að tónleikunum loknum var aftur haldið á Vagninn á Flateyri þar sem Fjallabræðrabandið
lék fyrir dansi fram á rauða nótt. – birgir@bb.is
Fjallmyndarlegir á sviði