Bæjarins besta - 25.09.2008, Síða 4
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 20084
Verkefnastaða steypufyrir-
tækisins Ásel hefur verið góð
í sumar að sögn Grétars Helga-
sonar framkvæmdastjóra. Eru
þeir að leggja lokahönd á verk
við Grunnskóla Patreksfjarðar
sem er stórt og mikið og hefur
staðið yfir síðan síðasta sumar.
„Svo unnum við að hellulagn-
ingu við Grunnskóla Ísafjarð-
ar í sumar. Við erum að bíða
eftir að það viðri vel svo við
getum klárað að leggja tartan-
efni við skólann,“ segir Grétar.
„Það minnkar núna verk-
efnastaða okkar eins og gefur
að skilja á þessum árstíma.
Við keyrum á fáum starfs-
mönnum yfir vetrartímann. Þá
erum við að undirbúa okkur
fyrir næsta sumar með því að
steypa hellur fyrir verkefnin
sem við ráðumst í“, segir Grét-
ar.
„Við erum í samstarfi við
BM-Vallá í sambandi við Bol-
ungarvíkurgöng en við sjáum
um að harpa fyrir þá efni og
koma því til Bolungarvíkur. Í
vetur verðum við í Félags-
heimili Bolungarvíkur að vinna
verk þar að innan dyra. Þannig
að það er nóg að gera hjá Ás-
el,“ segir Grétar.
Góð verkefna-
staða hjá Ásel
Athafnasvæði Ásels ehf., á Ísafirði.
Nýbygging Grunnskólans á
Ísafirði var formlega afhent
við hátíðlega athöfn á fimmtu-
dag í síðustu viku. Við athöfn-
ina afhenti Garðar Sigurgeirs-
son hjá Vestfirskum verktök-
um, Þorsteini Jóhannessyni,
formanni bygginganefndar
framtíðarhúsnæðis Grunn-
skólans á Ísafirði lyklana að
húsinu, sem hann afhendi síð-
an Halldóri Halldórssyni, bæj-
arstjóra Ísafjarðarbæjar, sem
færði Olgu Veturliðadóttur,
skólastjóra GÍ, lyklana með
formlegum hætti. Margir voru
saman komnir til að verða
vitni af þessum tímamótum.
Birna Lárusdóttir forseti bæj-
arstjórnar stjórnaði athöfninni
og sagði þessi áfangi ætti sér
langan aðdraganda en góðir
hlutir gerðust hægt. Í boði
voru ýmis tónlistaratriði, m.a.
fjöldasöngur þar sem allir við-
staddir voru beðnir um að taka
hraustlega undir í laginu Í
faðmi fjalla blárra.
Einar Ólafsson arkitekt fór
yfir hönnun hússins og fólk
gat skoðað sig um. Þá var nýr
flygill afhentur skólanum, en
hann er gjöf frá þeim Margréti
Hreinsdóttur og Þorsteini
Jóhannessyni. Framkvæmdir
við bygginguna hófust í júní
2006 og þá hafði tengibygging
milli gamla skólans og barna-
skólans verið rifin. Þeim lauk
nú í september. Nýbyggingin
sem um ræðir er um 1.800m²
að stærð á tveimur hæðum og
á að hýsa kennslu í sérgrein-
um. Kostnaður var um 500
milljónir.
– thelma@bb.is
Nýbygging GÍ formlega afhent
Margir bæjarbúar lögðu leið sín aí skólann til að verða vitni að þessum merku tímamótum. Hér eru
Sunna Hreinsdóttir og Agnes Ósk Marzellíusardóttir, nemar við GÍ, að syngja fyrir viðstadda.
Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar færði
Olgu með formlegum hætti lyklana að húsinu.
Við þetta tækifæri færði Þorsteinn Jóhannesson og
Margrét Hreinsdóttir skólanum flygil að gjöf.