Bæjarins besta - 25.09.2008, Page 5
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 5
Bæjarráð Bolungarvíkur
hefur samþykkt að láta kanna
möguleika á því að mennta-
mála- og samgönguráðuneyt-
in geri úttekt á samstýringu
tónlistar- og grunnskóla sveit-
arfélagsins. Þá skal vera tekið
tillit til fjárhagslegs ávinnings
en horft jafnframt til gæða
þjónustu. Var það ákveðið í
kjölfar þess að Soffía Vagns-
dóttir bæjarfulltrúi K-listans
lagði fram eftirfarandi bókun:
„Fyrir nokkrum árum lagði
ég fram tillögu um að sam-
stýra tónlistar- og grunnskóla.
Til þess að liðka fyrir þeirri
framkvæmd sagði ég upp
stöðu minni sem tónlistar-
skólastjóri. Tækifærið var ekki
nýtt þá. Í 45. grein nýrra grunn-
skólalaga er nú opnað á þann
möguleika að samstýra leik-
skólum, tónlistarskólum og
grunnskólum í sveitarfélög-
um,“ segir í bókun Soffíu.
Þar segir einnig: „Með tilliti
til þeirrar erfiðu fjárhagsstöðu
sem nú er í sveitarfélaginu geri
ég að tillögu minni að gerð
verði úttekt á því hvort hægt
sé að taka upp samstýringu á
tónlistar-, leik - og grunnskóla
Bolungarvíkur. Þessi úttekt
verði gerð í nánu samráði við
samgöngu- og menntamála-
ráðuneytið. Komi til samstýr-
ingar verði tryggt að hvergi
verði slegið af kröfum eða
gæðum í menntun og þjón-
ustu.“
– thelma@bb.is
Kanna möguleika á samstýr-
ingu tónlistar- og grunnskóla
Frá Bolungarvík.
Orðin þreytt á mótbyrnum
„Ég er orðin þreytt á þeim
mótbyr sem hugmyndir um
atvinnuuppbyggingu fá ef þær
eru ekki unnar af rétta fólk-
inu,“ segir Soffía Vagnsdóttir,
athafnamanneskja, skólastjóri
og bæjarfulltrúi í Bolungarvík
í grein sem hún birtir á bb.is.
Eins og fram hefur komið er
samningur á milli Kjarna-
búðar, fyrirtækis Soffíu og
systkina hennar, og Kingfish-
er reisen, eins af stærstu ferða-
þjónustuaðilum í Evrópu, um
sölu stangveiðiferða í Bolung-
arvíkur í uppnámi vegna þess
að fyrirtækið fær ekki úthlutað
lóðum vegna deiliskipulags-
vinnu. „Ég undrast það áhuga-
leysi sem bæjarbúar sýna.
Hvers vegna láta þeir ekki í
sér heyra um það verklag sem
viðhaft er varðandi afgreiðslu
mála hjá bæjaryfirvöldum?
Eða eru kannski allir búnir að
gefast upp? Hér er eytt millj-
örðum króna í opinberar fram-
kvæmdir við garð, göng og
höfn,“ segir Soffía.
Kjarnabúð hugðist ráðast í
framkvæmdir og uppbygg-
ingu fyrir verkefnið fyrir tæpar
300 milljónir á næstu þremur
árum. Strax á næsta ári áttu
tíu hús að vera tilbúin en sala
í þessa menningartengdu
Hinir árlegu minningar-
tónleikar um hjónin Ragnar
H. Ragnar og Sigríði Jóns-
dóttur verða haldnir í Hömr-
um næsta sunnudag kl. 15,
en sá dagur er einmitt af-
mælisdagur Ragnars. Minn-
ingartónleikarnir eru nú
haldnir í 21. sinn en Ragnar
lést árið 1987 og Sigríður
sex árum síðar. Tónleikarnir
nú eru með miklum hátíðar-
brag. Þar kemur fram Kamm-
ersvetin Ás, sem lagt hefur
áherslu á tónlist frá barokk-
tímanum og leikur á upp-
runaleg hljóðfæri.
Flytjendur í sveitinni að
þessu sinni eru þau Martin
Frewer, fiðla og víóla,
Hildigunnur Halldórsdóttir,
fiðla, tenor gamba og sópr-
an, Svava Bernharðsdóttir,
víóla,Sigurður Halldórsson,
selló, tenor gamba og pic-
colo selló og Dean Ferrell
violone (kontrabassi) og
basse de violon (selló stærð).
Á efnisskránni eru Branden-
borgarkonsert nr. 6 eftir
Bach, tvær einsöngskantöt-
ur eftir Bach og kvintettar
eftir Fischer og Boccherini.
Aðgangseyrir er 1.500
kr., 1.000 kr.fyrir lífeyris-
þega en ókeypis fyrir skóla-
fólk 20 ára og yngra.
– thelma@bb.is
Styttist í minn-
ingartónleikana
ferðaþjónustu á að hefjast í
haust. Hætta var á að samn-
ingurinn félli úr gildi ef ekki
fengjust tilskilin leyfi í tíma.
„Það er sárara en tárum tekur
að upplifa þau átök sem hafa
fylgt því sem verið er að reyna
að gera, og fullyrðingar um
hrokafullar hótanir hins þýska
ferðamálafrömuðar um 16
klst. “hótunarfyrirvara” eru út
úr korti. Maðurinn hafði beðið
svara í tæpa 5 mánuði í gegn-
um sitt samstarfsfólk hér. Hins
vegar þegar hann var orðinn
úrkula vonar, tók hann þá
ákvörðun að koma að hitta
bæjaryfirvöld. Hans orð voru
hins vegar þau að hann hefði
vonast eftir því að fá einhver
skýrari svör, áður en hann yfir-
gæfi Bolungarvík aftur, degi
eftir fundinn. Svo var því mið-
ur ekki,“ segir Soffía.
Eins og greint hefur verið
frá sagði Soffía í Kastljósi að
önnur sveitarfélög hefðu farið
á fjörurnar við hana um að
koma með verkefnið til þeirra.
Sveitarstjórar þeirra sveitarfé-
laga sögðust hins vegar ekki
hafa sent formlegt boð um
slíkt. „Verst finnst mér svo að
blanda þeim ágætu sveitarfé-
lögum inn í sem nefnd hafa
verið í tengslum við verkefn-
ið. Fréttaflutningur gaf til kynna
að um hreinar lygar hefði verið
að ræða af minni hálfu. Það
eru ekki sveitarstjórnirnar
sjálfar sem vinna endilega að
slíkum samningaviðræðum,
heldur fulltrúar, einstaklingar
eða fyrirtæki úr þessum sveit-
arfélögum. Uppsetning frétt-
arinnar var með þeim hætti að
ætla mætti að tilgangurinn
hefði verið sá einn að rýra
mig trausti. Þeir einstaklingar
sem við okkur hafa talað frá
þessum sveitarfélögum vita að
orð mín eru sönn.“
Soffía segir að hefðu sér
dottið í hug þau eftirköst, sem
það að gera heiðarlegar til-
raunir til atvinnuuppbygging-
ar í Bolungarvík, hafa haft í
för með sér hefði hún látið
það vera, og vekur athygli á
því að síðan henni og systkin-
um hennar tókst að landa
samningi við fyrirtækið Ósafl
vegna þjónustu við jarðganga-
menn, hefur hver hindrunin
rekið aðra. „Gera bæjarbúar
sér grein fyrir að í tengslum
við samninga okkar vegna
verkefna á svæðinu eru hér
nú starfandi 32 Slóvenar, 3
Austurríkismenn, 2 Pólverjar,
12 aðkomumenn að sunnan,
25 heimamenn og að auki
vinna nú 8 manns í tíma-
bundnum störfum og 5 í fram-
tíðarstörfum hjá fyrirtækjum
systkinanna? Þessi stóri hópur
(rúmlega 50 manns fyrir utan
heimamenn) borðar nú hér og
sefur og innan skamms mun
hann hefja útsvarsgreiðslur til
Bolungarvíkur vegna þess að
samningnum var landað hing-
að,“ segir Soffía.
– thelma@bb.is
„Það er orðið ansi þreytandi
ástandið hjá mér,“ segir Pálína
Pálsdóttir íbúi Grundargötu 2
á Ísafirði. Pálína á þar við
sparkvöll á skólalóð Grunn-
skóla Ísafjarðar sem var form-
lega opnaður fyrir stuttu. Pál-
ína segir sparkvöllinn hafa
verið reistan í óþökk íbúa í
nágrenni skólans. Að hennar
sögn fór framkvæmdin ekki
undir grenndarkynningu og
fengu því íbúar í nágrenni
sparkvallarins ekki að mót-
mæla formlega framkvæmd
hans. Hún segir aðeins sjö
metra skilja að enda vallarins
og svefnherbergisglugga íbúð-
ar hennar. Hún segir ónæðið
sem fylgir boltasparki nem-
enda skólans á lóðinni valdi
henni gífurlegu ónæði. Nú
þegar hafi ein rúða brotnað
vegna þess og gróður sem er í
garðinum fyrir utan heimili
sitt sé allur traðkaður niður.
„Það vekur furðu mína
hversu lág girðingin er sem á
að vernda húsið sem ég bý í
fyrir boltasparki. Boltarnir
svífa margir hverjir yfir hana
og bað ég um að hún yrði
hækkuð hið fyrsta en hef ekk-
ert svar fengið frá Ísafjarðarbæ
eins og er um hvort það verði
gert. Hér áður fyrr var Grunn-
skóli Ísafjarðar tryggður fyrir
skemmdum sem urðu vegna
leik barna skólans. Þá brotn-
uðu rúður í húsum nágrenni
skólans ítrekað vegna bolta-
leiks nemenda við mark sem
snéri að íbúðum á skólalóð-
inni. Var þá starfsmaður hjá
Grunnskóla Ísafjarðar sem
skipti um rúður. Nú er ástand-
ið ekki svo gott. Nú síðast
þegar brotnaði rúða í íbúð
minni þá var ég svo lánsöm
að drengurinn sem varð fyrir
því óhappi að sparka bolta í
rúðuna kom til mín og baðst
afsökunar á því. Þá var það á
ábyrgð föður hans að skipta
um rúðu en hefði ég ekki vitað
hver braut rúðuna hefði ég
þurft að bæta tjónið sjálf,“ seg-
ir Pálína sem gerir sér fulla
grein fyrir að það sé og verði
mikill atgangur á skólalóð við
heimili sitt en vill þó að frá-
gangi sé þannig sinnt við
sparkvöllinn að ekki verði
skemmdir á eignum íbúa.
Sparkvöllur veldur ónæði
Frá vígslu sparkvallarins við Grunnskóla Ísafjarðar. Fjölbýlishúsið að Grundargötu 2 sést í baksýn.