Bæjarins besta - 25.09.2008, Page 14
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 200814
Mannlífið
Netspurningin er birt vikulega
á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar
eru síðan birtar hér.
Smáauglýsingar
Til sölu eru fjögur nýleg 13"
nagladekk. Verð kr. 8000. Uppl.
í síma 698 1850.
Til leigu er 3ja herb. rúmgóð
íbúð á jarðhæð í Skipholti í
Reykjavík. Fæst leigð með hús-
gögnum. Uppl. gefur Guðmund-
ur í síma 899 8819.
Til sölu er Nissan X-trail árg.
2003, ekinn 95 þús. km. 4X4,
sjálfskiptur, með krók, köstur-
um, loftkælingu o.fl. Einnig nýj-
um stigbrettum og dekktum
filmum. Rúmgóður og þægileg-
ur bíll sem eyðir litlu. Tilboð 1,5
millj. og gott 100% lán áhvílandi
frá Lýsingu. Upplýsingar í síma
843 0028.
Til leigu er 3ja herb. íbúð að
Aðalstræti 20 (ofan við Ríkið).
Uppl. í síma 893 4604.
Til sölu er sjónvarpsskápur,
uppþvottavél, skrifborð, DVD
spilari og ryksuga. Uppl. í síma
893 4604.
Til leigu er lítið 64m² einbýlis-
hús í Hnífsdal. Húsið leigist til
1. júní og er fullbúið húsgögn-
um og húsbúnaði. Uppl. í síma
869 4566 (Erna).
Til leigu er 70m², 2-3ja herb.
íbúð. Laus strax. Uppl. í síma
694 9913.
Til sölu er Pajero sport árg. 06.
Sumar- og vetrardekk fylgja.
Húddhlíf og gluggahlífar. Góð-
ur bíll. Uppl. í síma 861 2265.
Til sölu eru tvö Queen size rúm.
Uppl. í síma 869 4838.
Til sölu er NMT sími með ferða-
einingu og loftneti. Verð kr. 10
þús. Uppl. í síma 895 4115.
Mig bráðvantar Hoover þvotta-
vél. Á ekki einhver eina slíka í
geymslunni? Uppl. gefur Gréta
í síma 456 4998 eða 869 6396.
Til sölu er Mitshubishi Motero
árg. 2001, ekinn 110 þús. km.
Sumar- og vetrardekk. Uppl. í
síma 861 4681.
Bifreið óskast að verðmæti 500
þúsund til 1. milljón. Uppl. í
síma 897 6795.
Er með pláss fyrir fellihýsi, hjól-
hýsi og húsbíla í einangruðu
og þurru húsnæði. Uppl. í síma
895 7131 (Siggi) og 893 8269
(Ómar).
Til leigu er stúdíóíbúð á Ísafirði.
Fullbúin húsgögnum og hús-
búnaði. Hentar vel fyrir einstakl-
inga eða par. Íbúðin er laus.
Uppl. gefur Gunnar í síma 899
4901.
Vantar lítið píanó eða píanettu
til kaups eða láns. Uppl. gefur
Magnús í síma 844 7153.
Óska eftir rúmi 120 cm á breidd
og hornsófa, ódýrt eða gefins.
Má vera gamalt. Uppl. í símum
456 4093 eða 841 1813.
Það er mun ódýrara að vera
áskrifandi að BB heldur en að
kaupa það í lausasölu. Gerist
áskrifendur með því að hringja
í síma 456 4560.
Alls svöruðu 1.043.
Já sögðu 471 eða 45%
Nei sögðu 572 eða 55%
Spurning vikunnar
Telur þú tímabært að
Súðavík og Bolungarvík
sameinist Ísafjarðarbæ?
Ekki þörf á grenndarkynningu
Jóhann Birkir Helgason forstöðumaður tæknideildar Ísafjarðarbæjar segir
sparkvöllinn við Grunnskóla Ísafjarðar ekki hafa þurft að fara undir grennd-
arkynningu vegna þess að ekki var verið að breyta skipulagi lóðarinnar sem
hann var settur á. „En varðandi girðinguna sem á að vernda húsið fyrir ónæði
vegna boltaleiks nemenda þá er hún fjögurra metra há. Ég hefði talið að það
ætti að duga en ef svo er ekki verðum við að skoða hvað við getum gert til að
vernda húsin betur í umhverfi sparkvallarins,“ segir Jóhann.
Dagskráin hófst með ferð tónlistartrukksins um bæinn.
Kærleiksríkur og gleðilegur dagur
Mikil hátíðarhöld fóru fram
á Ísafirði á laugardag er 60
ára afmæli Tónlistarfélags Ísa-
fjarðar og Tónlistarskóla Ísa-
fjarðar var fagnað. „Ég er al-
veg himinlifandi með hvernig
til tókst. Ég á ekki alveg í
fórum mínum lýsingarorð yfir
það hversu einstaklega vel
heppnaður dagur þetta var.
Þetta var svo kærleiksríkt og
mikil gleði í öllu, svo margir
Dagskránni var slúttað á glæsilegri flugeldasýningu.
þátttakendur og fólk svo til í
þetta allt“, segir Anna Sigríður
Ólafsdóttir, skipuleggjandi
dagsins. Dagurinn hófst með
tónlistartrukksins um bæinn
með skólalúðrasveitina sem
blés inn veisluna. Þá bauð
Music-Aid flokkurinn gestum
og gangandi í miðbæ Ísafjarð-
ar upp á lifandi hljóðfæraleik.
Sögusýning í boði Glitnis
var opnuð í Hömrum en þar er
saga Tónlistarskóla Ísafjarðar
og Tónlistarfélag Ísafjarðar
sögð í máli og myndum. Um
kvöldið safnaðist margmenni
saman á Silfurtorgi og söng
saman afmælislag hátíðarinn-
ar Á vængjum söngsins. Því
næst var haldið í Edinborgar-
húsið þar sem Fjallabræður
þöndu raddböndin áður en
dagskránni var slitið með
magnaðri flugeldasýningu á
Pollinum.
„Ég vil nota tækifærið til
að þakka öllum sem lögðu
hönd á plóginn. Það var ein-
vala frábært lið sem lét þetta
verða svona flott eins og raun
ber vitni. Ég fann mjög sterkt
fyrir því hvert sem ég leitaði
hvað það er mikill hlýhugur
gagnvart skólanum“, segir
Anna Sigríður.
– thelma@bb.is
Þakkir
Við þökkum öllum vinum okkar á Íslandi
fyrir ykkar miklu hjartahlýju, hjálp og samúð
sem við höfum fundið mikið fyrir á þessum
erfiða tíma eftir andlát unnusta míns, Bogu-
slaw, sem lést af slysförum í Mjóafirði.
Patrycja, Ewa og Andrzej Lopacinscy.
Fólk safnaðist saman á Silfurtorgi og söng saman afmælislagið.