Bæjarins besta - 25.09.2008, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 15
Horfur á föstudag: Suðlæg átt og rigning, einkum S- og
V-lands. Snýst í norðvestanátt um kvöldið. Hiti 7-13
stig. Horfur á laugardag: Vestlæg átt og léttir til, en
skúrir eða slydduél í fyrstu NA-lands. Kólnandi veður.
Horfur á sunnudag: Hæglætis veður, yfirleitt þurrt og
bjart. Hiti 5-10 stig, en víða næturfrost í innsveitum.
Helgarveðrið
Hópurinn með Katri nútímadanskennara en hún er mjög þekkt í heimalandi sínu Finnlandi og er mjög virtur dansari.
Ballettferð til Finnlands
Sex stúlkur sem nema ball-
ett hjá Listaskóla Rögnvaldar
Ólafssonar fóru í sumar í dans-
ferð til Finnlands. Margt dreif
á daga þeirra á meðan ferð
þeirra stóð, til að mynda fóru
þær á námskeið, sáu danssýn-
ingar og tóku þátt í einni sýn-
ingu sem fór fram á torgi í
miðbæ Koupio. Blaðamaður
ræddi við þær Salóme Katrínu
Magnúsdóttur, Rannveigu
Jónsdóttur, Sólveigu Maríu H.
Aspelund, Kristínu Hálfdán-
ardóttur og Erlu Sighvatsdóttir
um dansinn og ferðina. Einn
ferðalanganna, Hanna Lára
Jóhansdóttur, var fjarverandi
þar sem hún var stödd í Ung-
verjalandi þegar viðtalið fór
fram.
„Við fórum í daga a ferð til
Finnlands og dvöldum í Kou-
pio sem er skammt frá Hel-
sinki. Við fórum á tvö nám-
skeið í djazz og nútímadansi
og sáum þrjár sýningar. Einn-
ig sýndum við einu sinni á
stóru torgi þar sem oft voru
söng- eða dansatriði og þar
voru seldir ávextir og alls kon-
ar. Við vorum með íslenska
fánann og þetta var mjög
gaman.“
– Hver var hápunktur ferð-
arinnar?
„Ég myndi segja að há-
punkturinn hafi verið síðasta
danssýningin, hún var svo
flott og allt öðruvísi en hinar
tvær. Þar var sýnd blanda af
nútíma og klassísku, allt mjög
fágað“, segir Rannveig og
hinar taka undir með henni en
flissa svo að segja að það hafi
líka staðið upp úr hversu mik-
ið hafi verið verslað.
„Afgreiðsludömurnar í búð-
unum voru farnar að kveðja
okkur og segjast sjá okkur
aftur á morgun við vorum svo
miklir fastakúnnar þarna.
Mömmur okkur fóru með
okkur og þær voru nú alveg
jafn skæðar í verslunarleið-
angrinum og við. Meðan við
vorum í danstímum voru þær
á búðarrápi.
– Hvernig kom það til að
þið fóruð í þessa ferð?
„Síðustu tveir danskennarar
hafa verið Finnar og því
vaknaði áhugi á því að fara til
landsins. Fyrrum kennari okk-
ar Henna Riikka Nurmi fylgdi
okkur eftir alla ferðina, en hún
býr í Helsinki. Við höfum allar
verið frá upphafi í ballettinum,
eða frá því að kennsla hófst
2001. Við vorum allar saman
í tímum en svo splundraðist
hópurinn þar sem mikill ald-
ursmunur er á okkur. Þess
vegna var mjög gaman að fara
í þessa ferð saman,“ sögðu
stelpurnar við blaðið.
Stúlkurnar ásamt Hennu þar sem að við erum fyrir utan ráðhúsið í Koupio
og erum nýkomnar af sviðinu sem að við vorum að dansa á.
Sælkeri vikunnar er Jolanta Högnason á Ísafirði
Kryddaðar fiskibollur
og spænsk ostaterta
Sælkeri vikunnar býður upp
á kryddaðar fiskibollur í ofni
og spænska ostatertu. Jolanta
mælir með því að bera fiski-
bollurnar fram með sopnum
hrísgrjónum og fersku salati
Kryddaðar fiskibollur,
gratíneraðar í ofni
600 g ýsuflök, beinhreinsuð
og roðflett
2 egg
1 dl rjómi
2-4 msk hveiti
2 msk maizena mjöl
1 skalott laukur skorinn í
bita
½ -1 chilipipar, kjarna-
hreinsaður og skorinn í bita
½ græn paprika, skorinn í
bita
1 lítið búnt steinselja
2 tsk jurtasalt
Hvítur pipar úr kvörn
Olía til steikingar
Látið allt matvinnsluvélina
og keyrið þar til það er orðið
vel hakkað saman. Athugið
að bæta smá hveiti saman við
ef farsið er of blautt. Saltið
vel og piprið að smekk. Mótið
fiskibollurnar úr farsinu með
skeið og lófa. Steikið á pönnu.
Látið forsteiktar bollurnar í
eldfast fat.
Sósa
1-2 laukur, saxaðir
1-2 gulrætur, skornar í ten-
inga
1-2 sellerístönglar, skornir
í teninga
3-6 hvítlauksgeirar, fínt
saxaðir
1 msk ólífuolía
2 ½ dl fisk- eða kjúklinga-
soð
1 dl rjómi
Maizena mjöl til að þykkja
2 eggjarauður
2 dl rifinn ostur
Salt og pipar úr kvörn
Léttsteikið grænmetið í víð-
um potti. Hellið soðinu og
rjómanum yfir og þykkið með
maizenamjöli. Saltið og piprið
að smekk. Látið rjúka aðeins
úr sósunni. (Gott er að byrja á
sósunni og láta rjúka á meðan
verið er að steikja bollurnar.)
Þegar sósan hefur kólnað að-
eins er eggjarauðunum bætt
út í ásamt rifna ostinum. Hrær-
ið saman, hellið yfir fiskiboll-
urnar og bakið í 180 gráðu
heitum ofni í 20-30 mínútur
eða þar til gullinbrún húð
hefur myndast ofan á sósunni
og bollunum.
Spænsk ostaterta
Kexbotn
½ pakki hafrakes
20 g smjör
25 g sykur
Myljið kex í matvinnsluvél
og bætið sykri út í. Bræðið
smjör og blandið því saman
við með höndunum. Setjið í
botn á 26 sm springformi.
Fylling
340 g rjómaostur
2 stk egg
1 stk vanillustöng
100 gsykur
Hrærið rjómaost með sykri.
Skafið fræin innan úr vanillu-
stönginni og blandið saman
við og síðan eggjum, einu í
einu. Hellið yfir kexbotninn
og bakið við 180 °40-50 mín.
Toppur
220 g sýrður rjómi
100 g sykur
½ stk vanillustöng, fræ
Jarðarber í skraut
Kljúfið vanillustöng og
skafið úr henni fræin. Hrærið
sýrðum rjóma, sykri og van-
illufræjum saman og setjið
yfir ostakökuna kalda. Skreyt-
ið með ferskum jarðarberjum.
Ég skora á Sóley Arnórs-
dóttur á Ísafirði að verða
næsti sælkeri vikunnar.
Umferðar- og hegningarlagabrotum fjölgar
Umferðarlagabrotum fjölgaði mikið í ágúst á Vestfjörðum miðað við sama tíma í fyrra. 96 brot voru framin í um-
dæmi lögreglunnar í síðasta mánuði á móti 68 í fyrra en árið 2006 voru þau101. Þá fjölgaði hegningarlagabrotum
einnig mikið milli ára en 25 slík brot voru framin í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum í ágústmánuði í ár á móti
10 fyrir ári síðan, en árið 2006 voru hegningarlagabrotin 15 talsins. Ekkert fíkniefnabrot var framið í umdæminu í
ágúst, í fyrra voru þau sex og tvö árið 2005. Tölurnar eru fengnar úr afbrotatölfræði lögreglunnar fyrir september
sem hefur verið birt á vef ríkislögreglustjóra. Rétt er að geta þess að við samantekt tölulegra upplýsinga eru tilgreind
öll brot sem tilkynnt voru lögreglunni að frátöldum þeim sem reynast við nánari athugun ekki vera brot.