Bæjarins besta - 09.04.2009, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2009
Þúsundir námsmanna standa
frammi fyrir atvinnuleysi í sumar
samkvæmt niðurstöðum könn-
unar sem framkvæmd var meðal
stúdenta við háskóla landsins.
Stúdentaráð Háskóla Íslands
berst nú fyrir því að kennt verði
í sumar svo þær þúsundir náms-
manna sem standa frammi fyrir
atvinnuleysi geti stundað nám
yfir sumartímann. „Ég hef ekki
heyrt mikið um það en það hefur
alltaf verið eitthvað um atvinnu
fyrir námsmenn tengt ferðaþjón-
ustu á Vestfjörðum. Reyndar hef-
ur stundum gengið frekar erfið-
lega að ráða. Síðustu tvö sumur
hafa vestfirskir námsmenn ekki
komið heim yfir sumarið,“ segir
Guðrún Stella Gissurardóttir, for-
stöðumaður Vinnumálastofnun-
ar á Vestfjörðum, um atvinnu-
horfur vestfirskra námsmanna í
sumar á Vestfjörðum.
Hún segir nokkuð um að náms-
menn hafi verið fastir í leigu í
Reykjavík. „Sumar íbúðir eru
leigðar í ársleigu, eins og hjá
stúdentum, sem gerir það að
verkum að fólk er að leigja allt
árið og því heldur það bara áfram
að vera í Reykjavík, fyrst það er
hvort sem er að greiða leigu. En
það verður kannski einhver
breyting á því núna,“ segir Guð-
rún Stella. Hún segir fyrirtæki á
svæðinu vera byrjuð að senda
stofnuninni fyrirspurnir um
starfskrafta fyrir sérverkefni.
Í niðurstöðum könnunarinnar
kemur fram að rúm 64% stúd-
enta, eða sem samsvarar um
12.810 einstaklingum, hafa ekki
enn fengið sumarvinnu. Og af
þeim telja tæp 76% litlar líkur á
því að þeir fái vinnu í sumar.
Tæp 76% stúdenta telja líklegt
að þeir myndu stunda sumarnám
fái þeir ekki vinnu, ef það stæði
til boða. Könnunin var lögð fyrir
stúdenta við Háskóla Íslands, Há-
skólann í Reykjavík, Háskólann
á Akureyri, Háskólanna á Bifröst,
Landbúnaðarháskóla Íslands,
Listaháskóla Íslands og Háskól-
ann á Hólum dagana 9.-23. mars.
Þátttakendur voru 3491 talsins.
– birgir@bb.is
Námsmenn koma síð-
ur heim yfir sumarið
„Svæðinu til framdrátt-
ar að vinna eigin áætlun“
„Ég tel að það sé mjög gott
mál og svæðinu til framdráttar
að marka sína eigin framtíðarsýn
og vinna tillögur í samræmi við
hana“, segir Sigríður Elín Þórðar-
dóttir starfsmaður Byggðastofn-
unar aðspurð um afstöðu stofn-
unarinnar til þess að Vestfirðir
ætli að vinna sína eigin sértæku
byggðaáætlun. „Ein tillaga byggða-
áætlunar er um svæðisbundnar
þróunaráætlanir þar sem sveitar-
félög og svæði vinna sínar áætl-
anir og að vissu leiti kemur áætl-
un Vestfirðinga inn á það. Þar er
markmiðið að samþætta allar
áætlanir þannig að þær gangi í
takt og styðji hver við aðra“,
segir Sigríður. Aðspurð hvort
fleiri svæði séu að vinna sínar
eigin áætlanir segir Sigríður sér
ekki vera kunnugt um það.
„Sveitarfélögin hafa verið með
ákveðnar áætlanir í gangi og
vaxtasamningar koma inn á þessa
þætti en mér er ekki kunnugt um
að unnar hafa verið byggðaáætl-
anir með þessum hætti sem Vest-
firðingar eru að gera.“
Eins og fram hefur komið ætla
Fjórðungssamband Vestfirðinga
og Atvinnuþróunarfélag Vest-
fjarða að vinna landshlutaáætlun
sem stefnt er að verði klár í haust.
Þar verða lagðar áherslur á sér-
stöðu Vestfjarða, til að mynda í
sjávarútvegi.
Byggðaáætlun sem nú er í
vinnslu hjá stofnuninni gildir frá
2010-2013 og hefur hún verið
kynnt á samráðsfundum um allt
land. Að sögn Sigríðar hafa fund-
irnir gengið vel. „Á þeim fundum
sem ég sat á komu fram mjög
gagnlegir óskir um það hefði átt
að vera meiri áhersla á landshluta
og sérstöðu landsvæðanna en
kemur fram í byggðaáætlunin.
Áætlunin tekur ekki á svæðis-
bundnum málum og meira heild-
arplagg fyrir stefnu ríkisins í byggða-
málum. Gagnrýnt var að ekki
var sérstaklega minnst á sjávarút-
veg, landbúnað og samgöngur,
þó það megi segja að þær atvinnu-
greinar geti flokkast undir ný-
sköpun og atvinnuþróun. Við
munum taka saman það sem fram
kom á fundunum og vonandi
kemst það inn í byggðaáætlun-
ina.“
– thelma@bb.is
Atvest og Fjórðungssam-
bandið vinna að sértækri
áætlun fyrir Vestfirði.
Flateyringar hafa eignast nýja hafnsögubát en hann kemur úr
smiðju skipasmíðastöðvar Úlfars Önundarsonar á Flateyri. Báturinn
hefur fengið nafnið „Muggi“ í höfuðið á Guðmundi M. Kristjánssyni,
hafnarstjóra Ísafjarðarbæjar, og segir Úlfar smíði bátsins vera algjör-
lega eftir sínu höfði. Nafngiftina má rekja til þess að helstu hafnar-
stjórar hafa alltaf fengið nafn sitt á hafnsögubáta. „Það er hefð fyrir
því. Svo þegar kemur slíkur hafnsögubátur til Flateyrar, þá verðum
við að leita að slíkum mönnum,“ segir Úlfar.
Nýr hafnsögubátur á Flateyri!
Hafnsögubáturinn Muggi. Ljósm: Páll Önundarson.