Bæjarins besta - 09.04.2009, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 2009
Aldrei fór ég..... hvert?
Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefnum
hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar
smáar
Sýning um
Kaldalón og
Sigvalda
Kaldalóns
Sögusýningin Kaldalón og Sig-
valda Kaldalóns verður opnuð í
sal Tónlistarskólans á Ísafirði kl.
17 á skírdag, en hún fjallar um
tónskáldið og lækninn Sigvalda
Kaldalóns og tengsl hans við
Djúpið. Sigvaldi kenndi sig við
Kaldalón, en hann bjó á Ármúla
og starfaði þar sem héraðslæknir
á öðrum áratug 20. aldar. Þar
samdi hann mörg sín þekktustu
lög, Þú eina hjartans yndið mitt,
Ég lít í anda liðna tíð, Svanurinn
minn syngur og Hamraborgina.
Við opnun sýningarinnar munu
ísfirskar listakonur flytja nokkur
lög eftir Sigvalda. Guðfinna Hreið-
arsdóttir mun jafnframt kynna
bók sína um Höllu skáldkonu og
Ólafur J. Engilbertsson fylgja
sýningunni úr hlaði.
Að sýningunni og dagskránni
stendur Snjáfjallasetur í samstarfi
við Tónlistarskólann á Ísafirði
og Tónlistarfélag Ísafjarðar.
Gera má ráð fyrir fimm ára
tímabili í þróun og uppbyggingu
Nýsköpunarháskóla Íslands yrði
hann settur á stofn. Þetta segir
nefnd sem skipuð var til að gera
tillögur um leiðir til eflingar há-
skóla- og fræðastarfs á Vestfjörð-
um. Hún hefur lagt til að fjár-
veitingar til Háskólaseturs Vest-
fjarða haldi sér þar til NHÍ tekur
við haustið 2009 en falli þá niður
enda verði setrið sameinað NHÍ.
Þetta kemur fram í drögum í
skýrslu sem menntamálaráðu-
neytið hefur birt með þeim fyrir-
vara efnahagsástandið hefur
breyst mjög til hins verra síðan
skýrslan var unnin. Í skýrslunni
er minnt á að hugmyndir um efl-
ingu háskóla- og fræðastarfs á
Vestfjörðum er liður í byggða-
áætlun og einnig mótvægisað-
gerðum ríkisstjórnarinnar vegna
samdráttar í þorskafla.
Litið verði á fjármagn sem
framlag ríkisins til að leggja
grunn að háskóla- og fræðastarfi
á Vestfjörðum. „Útfæra þarf sér-
staklega hvernig samningar
verða gerðir vegna þeirra fræði-
manna sem lagt er til að ráðnir
verði til starfa í Tækni- og vís-
indagörðum NHÍ. Kortleggja
þarf hvaða fræðastarfsemi á
sérstaklega að efla á svæðinu og
þá aðkomu þeirra ráðuneyta eða
stofnana sem styðja þá starf-
semi“, segir í drögunum.
Áætla má að fjárfesting ríkis-
sjóðs í verkefninu til ársins 2012
verði: 160 milljónir krónur fyrir
kennslu, rannsóknir og undir-
búning á árinu 2009, 290 millj-
ónir króna fyrir kennslu og rann-
sóknir fyrir árið 2010, 400 millj-
ónir króna fyrir kennslu og rann-
sóknir árið 2011, 500 milljónir
fyrir kennslu og rannsóknir árið
2012.
„Með þessa framtíðarsýn telur
nefndin að hægt verði að snúa
byggðaþróun við og byggja upp
öflugt og eftirsóknarvert þekk-
ingarsamfélag þar sem gott sam-
spil daglegs lífs, menntunar-
möguleika, atvinnu og tóm-
stundaiðkunar skilar áhugaverðri
útkomu og eftirsóknarverðri fyrir
ungt fólk nútímans. Aukin þekk-
ing, menntun og góð þjónusta /
góðir innviðir eru þau verðmæti
sem skila þeim arði sem þarf til
að bjóða upp á áhugaverða búsetu
á Vestfjörðum á 21. öld. Besta
framtíðarfjárfesting Vestfjarða til
lengri tíma er menntun“, segir í
drögum skýrslunnar.
– thelma@bb.is
„Besta framtíðarfjárfest-
ing Vestfjarða er menntun“
Lagt hefur verið til að háskóli verði stofnaður á Ísafirði.
Í miðju óskýrra stjórnmála,
þar sem loforð standast ekki hver
sem þau gefur, þar sem athafnaleysið hrópar á almenning, þar
sem hvert axarskaftið af öðru blasir við, hver sem heldur um
stjórnartaumana, er það eins og dásamlegur lífselexsír að eiga
hátíðina Aldrei fór ég suður til þess að létta alþýðunni lund. Enn
eitt árið eru þeim sem að þessari frumlegu hátíð standa færðar
þakkir. Listin gleður svo lengi sem stjórnmálamenn taka hana
ekki í þjónustu sína. Alvöru tónlist, rokk, blús, jass, teknó, karla-
kórssöngur eða blanda radda kvenna og karla í einum kór léttir
lund. Hún hefur eiginleikann þegar flutningur er vandaður að
fólk gleymir stund og stað. Það er gott og yljar sálum fólks.
Á sama tíma og stjórnmálamenn vita ekki hvert þeir ætla að
fara og hvert þeir ætla að leiða leiða þjóð, sem hefur fengið nóg
af dekri þeirra við auðmenn og linku við sanna frásögn af tengsl-
um við þá, þá vita Ísfirðingar og Vestfirðingar hvert þeir eiga
ekki að fara, að minnsta kosti um páskana, ekki suður! Heitið
Aldrei fór ég suður vísar til þess að þangað hafi ekki verið neitt
bitastætt að sækja, að heima sé hinn raunverulega vísdóm að
finna, að við Ísfirðingar og allir okkar nágrannar og gestir geti
fengið hér næringu sálarinnar, án þess að sækja suður. Kannski
ættu hinir misvitru stjórnmálamenn allra flokka að líta upp úr
staglinu og kosningabaráttunni, sem líka er þreytt stagl, í besta
falli ógáfulegt, í hinu versta sönnun þess að þeir ættu að líta upp
fyrir Elliðaár og heimsækja Ísafjörð og njóta alvöru boðskapar
sannra manna, alvöru listamanna.
Listinn yfir listamenninna sem ætla að gleðja okkur er langur
og merkilegur. Ekki er hægt að telja alla upp, mjög margir eiga
hér heima, eiga rætur sínar meðal Ísfirðinga og er þá vísað til
allra sem teljast með einhverjum hætti til Ísafjarðarsýslna, vest-
ur, norður og Ísafjarðarkaupstaðar. Nöfn eins og Reykjavík!,
Skúli Þórðar og Sökudólgarnir, Stórsveit Vestfjarða, Mugison,
Fjallabræður úr Önundarfirði og Ragnar Sólberg að ógleymdum
Dr. Spock heiðra hátíðina með nærveru sinni. Fjöldi góðra tón-
listarmanna fyllir listann, allir góðir, hver á sínu sviði.
Hátíðin Aldrei fór ég suður hefur vaxið með hverju árinu og
er til sóma Mugga hafnarstjóra og Mugison. Hún sýnir hversu
miklu hægt er að hrinda í framkvæmd hafi menn trú á sjálfum
sér og öðrum og séu að auki tilbúnir að leggja á sig vinnu til að
láta hugmyndir verða að veruleika. Það er sterkasti boðskapurinn
til þjóðarinnar nú og gætu stjórnmálamenn lært af því hefðu þeir
tíma og vit til. Vegtyllurnnar reka menn ekki til halda hátíðina
heldur löngunin til þess að gera eitthvað gagnlegt, láta gott af sér
leiða og skapa umhverfi til dægrastyttingar fyrir fjölda fólks, að
gefa því tækifæri til að njóta lífsins og þess góða sem það hefur
að bjóða.
Þeir sem njóta segja með sönnum huga, Aldrei fór ég suður.
Gleðilega páska!
Til sölu er Yamaha Venture
600 cc vélsleði (1996). Mjög
góður sleði sem lítur vel út og
hefur alltaf verið geymdir inni.
Uppl. í síma 861 4850.
Óska eftir bensínslöngu og
tanki fyrir 25 ha. Yamaha Kero-
sene utanborðsmótor. Uppl. í
síma 864 5199.
Falleg smábarna taska með
leikföngum fannst hjá Heilbr.
stofnun Vestfjarða. Eigandi
getur vitað hennar þar.
Sektaður fyrir
að pissa á
almannafæri
Tvítugur menntaskóla-
nemi á Ísafirði fékk 10 þús-
und króna sekt fyrir að kasta
af sér þvagi í fjörunni við
Pollgötu, á móti Edinborgar-
húsinu á Ísafirði, aðfararnótt
sunnudagsins 29. mars. Brot-
ið varðar við 5. grein lög-
reglusamþykktar Ísafjarðar-
bæjar. Verði sektin ekki greidd
innnan 30 daga frá undirritun
sáttar, er heimilt að gera fjár-
nám ella sæti hann tveggja
daga fangelsi.
Neminn sagði í samtali við
RÚV, sektina fáranlega því
engin almenningssalerni
væru í bænum. Honum hafi
verið mál að pissa og farið í
fjöruna til að gæta velsæmis.
Hann segir ekki koma til
greina að borga sektina.