Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.12.2009, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 30.12.2009, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009 Gott að læra strax að hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér – spjallað við Matthildi Helga- og Jónudóttur framkvæmdastjóra frá Alviðru í Dýrafirði og ég segi stundum. Ég fæddist í sjúkraskýlinu á Þingeyri 4. janúar 1965 en nokkrum dögum seinna var ég komin heim í Alviðru. Þar átti ég heima alveg fram á ungl- ingsár þegar ég varð að fara að heiman í skóla. Framan af var ég reyndar í skóla á Núpi og þá gat maður bara labbað á milli því að þetta er aðeins steinsnar frá. Á Núpi komu saman saklausu sveitabörnin og óþekku vand- ræðagemsarnir að sunnan. Úr varð skemmtilegur bræðingur og þessir hópar lærðu sitthvað hvor af öðrum. Það var líka oft að foreldrar mínir tækju að sér og hýstu þá nemendur sem ekki gátu farið eftir reglum skólans og voru reknir en gátu af ýmsum ástæðum ekki farið heim. Þetta var eins konar þegnskylduvinna þeirra og þeim bæði ljúft og skylt. Aldrei kom til tals að þau fengju neina greiðslu fyrir. En svona var nú tíðarandinn, þegar einhver var í vandræðum, þá var hann einfald- lega hýstur. Við erum fimm systkinin sem ólumst upp heima í Alviðru og ég er í miðjunni. Svo voru líka alltaf einhverjir krakkar í sveit heima á sumrin. Amma bjó þarna líka en ég man lítið eftir afa mín- um sem dó þegar ég var mjög ung. Við vorum látin vinna eins og krakkar í sveitum. Okkur þótti það nú ekkert mjög skemmtilegt en höfðum bara gott af því. Ann- ars var lífið ljúft. Ég lærði það strax í æsku að það þarf að koma hlutunum í verk því að þeir gerast ekki af sjálfu sér. Það er gott að vita það alveg frá fyrstu tíð. Sveitabýli er fjölskyldufyrir- tæki og það er mikil gæfa að vera alin upp í slíku umhverfi. Að ég tali nú ekki um öll dýrin og fjöllin og fjöruna. Þetta eru forréttindi, finnst mér, þó að ég hafi kannski ekki alltaf átt úr mjög mörgum leikfélögum að velja. Í sveitinni lærir maður kann- ski frekar en annars staðar það sem reynist mörgum erfitt, en það er að vera einn með sjálfum sér og kunna að meta það. Fara bara upp í fjall og setjast á stein og hugsa sitt eins og allir þurfa að gera.“ Elti strák til Reykjavíkur – Hvert fórstu í skóla þegar Matthildur Helga- og Jónu- dóttir hefur í liðlega áratug verið framkvæmdastjóri netþjónust- unnar Snerpu á Ísafirði eða tvo þriðju hluta af starfsævi fyrir- tækisins. Hún er sveitastúlka að uppruna, alin upp í Alviðru í Dýra- firði langt fram á unglingsár og kann að meta það sem sveitalífið hafði og hefur að bjóða. Matt- hildur lauk á sínum tíma stúd- entsprófi syðra og var um tíma í Þýskalandi og hugði á nám í kvikmyndagerð. Hún undi sér hins vegar ekki vel þar í landi og kom aftur og settist að á Ísafirði, í grennd við æskuslóðirnar. Lengst af var hún einfaldlega þekkt sem Matthildur Helga- dóttir. Nú síðari árin ber hún hins vegar í þjóðskrá nafnið Matt- hildur Á. Helgad. Jónudóttir (ekki meira pláss þar fyrir fulla skráningu sem væri Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir) en skrifar sig jafnan Matthildi Helga- og Jónudóttur. Beint ligg- ur við að spyrja hvernig á því standi að hún skráir sig með þess- um hætti. „Það hefur verið leyfilegt í nokkur ár að kenna sig við hvort heldur föður eða móður eða þau bæði. Þetta er kannski ekki mikið notað og einmitt þess vegna fannst mér það athyglisvert. Sumarið þegar ég tók þetta upp varð móðir mín sjötug. Mér fannst þetta tilhlýðileg gjöf til móður sem átti allt nema helst börnin sín vegna þess að þau voru öll kennd við föðurinn. Svo fannst mér þetta líka dálítið flott!“ – Þú ert fædd í byrjun janúar. Ertu stefnuföst og ákveðin eins og sagt er að steingeitur séu? „Ég neita því ekki að það er örugglega til í mér. En svo er þar auðvitað margt annað líka. Ég kann nú ekki mikið í þessum fræðum en ég get verið óttalegur galgopi líka. Ég fæ margar hug- myndir og byrja á sumum þeirra en klára þær ekkert allar. Það er sérstaklega gott í vinnu að nota þessa staðfestu en svo er líka gott að vera mátulega laus í rás- inni og njóta lífsins.“ Sólarmegin í Dýrafirði Matthildur er dóttir hjónanna Jónu Bjarkar Kristjánsdóttur og Helga Árnasonar, búenda í Al- viðru í Dýrafirði. „Sólarmegin í Dýrafirði, eins Núpsskóla lauk? „Þá lá beinast við að ég færi í Menntaskólann á Ísafirði. Ég fór þar í fyrsta og annan bekk en svo elti ég nú strák til Reykjavíkur og hélt áfram og kláraði Mennta- skólann við Sund. Svo lufsaðist ég eitthvað áfram í skóla. Þegar ég var liðlega tvítug fór ég til Þýskalands og var þar í ár. Ég ætlaði mér að læra þýskuna fyrst en fara svo í kvikmyndanám og verða heimsfrægur leikstjóri eða kvikmyndatökumaður! En mér líkaði ekkert allt of vel við Þýska- land og fann að ég myndi aldrei halda út að vera þar fjögur ár í námi. Fyrir ekki svo mörgum árum ákvað ég að skella mér í fjarnám í Háskólanum á Akureyri og ætl- aði að ljúka viðskiptafræði en áhuginn dvínaði og ég lauk því aldrei, fannst líklega frítíminn of dýrmætur. Galgopinn hefur lík- lega haft hina staðföstu undir í námsferlinum, en hver veit hvað morgundagurinn færir okkur og ég næ mér kannski á endanum í einhverja gráðu. Það eru nú allir með einhverja gráðu í dag og ég segist vera með BS.D. og þar stendur D fyrir droppát.“ Landsbankinn og Ísafjarðarbær – Starfsferillinn í stórum drátt- um. „Þegar ég kom heim frá Þýska- landi átti ég náttúrlega ekki aur. Þá kom ég aðeins vestur að heim- sækja fjölskylduna og Vestfirð- irnir toguðu alltaf í mig en annars hafði ég hugsað mér að flytja austur á firði. Það hljómar kann- ski undarlega en ég hafði aldrei komið til Austfjarða og þess vegna langaði mig að prófa að flytja þangað. Það hefði verið lítið mál á móti því að flytja til Þýskalands. En það varð aldrei úr því. Ég fór í Landsbankann á Ísafirði að taka út síðustu krónurnar mínar og heyrði þá að þar var verið að tala um að það vantaði starfmann. Ég hafði einmitt unnið sumar- vinnu í Landsbankanum í Reykja- vík svo að ég munstraði mig í bankann á Ísafirði og var þar í nokkur ár og er bara ekkert farin austur ennþá. Hvort ég flyt nokk- urn tímann veit ég ekki. Ég hef auðvitað komið þar sem ferða- maður síðan. Þegar ég hætti í Landsbankan- um fór ég að vinna hjá Ísafjarðar- bæ sem aðstoðarfjármálastjóri. Þrátt fyrir fínt starfsheiti ég aðal- lega bara rukkari. Svo fór ég að eiga börn og það slítur nú svolítið í sundur hjá manni vinnutímann og starfsferilinn. Þá var ég um tíma hjá Hafsteini Vilhjálmssyni og svo fór ég í Snerpu fyrir rúm- um 10 árum.“ Sótti ekki um starfið hjá Snerpu – Þú tókst strax við starfi fram- kvæmdastjóra hjá Snerpu. „Já, mér var boðið það starf. Þeir voru eitthvað búnir að vera að auglýsa en mér datt nú ekki í hug að sækja um. Svo var það Fylkir heitinn Ágústsson sem kom þessu til leiðar. Við höfðum unnið dálítið saman þegar ég var hjá Hafsteini. Ég varð reyndar frekar undrandi. Þó svo að ég þekkti bókhald og slíkt mætavel, þá fannst mér ég nú kannski ekki alveg tilbúin að fara að stjórna fyrirtæki.“ – Og nú er kominn fullur ára- tugur. „Já, það eru komin yfir 10 ár því fyrirtækið gengur ágætlega. Fylkir hefur haft eitthvað til síns máls. Ég hef nú stundum sagt í gríni, vegna þess að ég get verið svolítið ráðrík, að starfshamingja mín aukist í réttu hlutfalli við völd mín og mér hugnast ágæt- lega að vera við stjórnvölinn. Það er svolítið sérstakt að reka tæknifyrirtæki eins og Snerpu úti á landi. Þó að ég sé ekki mjög flokkspólitísk, þá þarf ég að gefa mér tíma í alls konar pólitískt pot og lobbýisma til þess að berj- ast fyrir bættum aðstæðum og að sá grunnur sem nauðsynlegur er fyrir öll fyrirtæki sé til staðar. Í mörg ár hef ég barist fyrir bættu ljósleiðarasambandi á Vestfjörð- um og að svokallaðri ljósleiðara- hringtengingu verði komið á til að auka öryggi í gagnaflutningi. Segja má að þetta sé hluti af því að eiga hér heima, en því miður búum við á Vestfjörðum við lakara vegakerfi en nokkur annar landshluti og rafmagn fer mörgum sinnum oftar af hér en annars staðar á landinu. Ég er einmitt að vinna í nefnd um afhendingaröryggi raforku á Vest- fjörðum og það er ljóst að núver- andi ástand er óviðunandi með öllu. Annað hvort þarf að virkja á Vestfjörðum eða byggja upp tvöfalda tengingu inn í fjórðung- inn. Það er mikilvægt að við sofn- um ekki á verðinum og látum bjóða okkur að vera annars flokks þegnar á Íslandi. Við eigum ekki að kalla það ölmusu eða aðstoð, við viljum einfaldlega að skatt- peningar okkar séu notaðir til uppbyggingar á Vestfjörðum. Í gegnum tíðina hafa mikil verð- mæti skapast hér á Vestfjörðum og við eigum vel inni fyrir mynd- arlegri uppbyggingu. Málunum hefur verið frestað of lengi, mikið hefur verið talað en nú er komið að því að fara að vinna.“ – Kaffihúsið Langi Mangi við Aðalstræti á Ísafirði kemur við sögu hjá ykkur hjónunum. „Já, ég skautaði nú yfir það áðan, að maðurinn minn var ástæðan fyrir því að ég settist að til frambúðar hérna fyrir vestan. Ég kynntist Gumma Hjalta þegar ég var að vinna hérna í bankan- um. Ég ætlaði bara að vera ör- stutt. Það var hann sem hélt í mig hérna. Við opnuðum síðan bygginga- vöruverslunina Gvend á Eyrinni, sem reyndar fór ekki nógu vel. Ég var í sjálfu sér ekkert mikið í þessu fyrirtæki því að á þeim tíma áttum við lítil börn og ég var að vinna hjá Hafsteini, þannig að Gummi var að mestu aleinn í því basli. Svo kaupum við Langa Manga árið 2005 og vorum hálfpartinn nörruð út í það eins og gengur. Við ákváðum síðan seinnipart sumars 2008 að loka honum en þá var Gummi veikur og líka var óvissa með framhaldið á rekstrin- um. Við reyndum að selja en það þorði enginn að kaupa. Þó að þessi fyrirtækjarekstur okkar hafi ekki gengið allt of vel, þá hefur þetta gefið manni heilmikla reynslu. Flest í kring- um Langa Manga var líka óskap- lega skemmtilegt. Að vísu fyrir utan þennan óskiljanlega ofsa í einum nágranna!“ Tók það nærri sér að skulda „Maður kynntist svo mörgu fólki og þetta var svo mikið ævin-

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.