Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.06.2011, Side 6

Bæjarins besta - 09.06.2011, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011 Útgefandi: Gúttó ehf., kt. 680501-2620, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564. Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is. Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is. · Kristján Torfi Einarsson, sími 456 4560, kte@bb.is · Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson. Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Lausasöluverð er kr. 400 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. ISSN 1670 - 021X Spurningin Eiga bæjaryfirvöld í Ísafjarðarbæ að loka versluninni á Hlíf? Alls svöruðu 688. Já sögðu 105 eða 15% Nei sögðu 583 eða 85% Netspurningin er birt viku- lega á bb.is og þar geta lesendur látið skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér. Helgarveðrið Horfur á föstudag: Norðaustlæg átt 5-10 m/s, en hvassara norðvestantil. Rigning með köflum, en úrkomulítið suðvestantil. Hlýnar lítið eitt í veðri. Horfur á laugardag, sunnudag og mánudag: Útlit fyrir austlæga átt með dálítilli vætu í flestum landshlutum. Heldur hlýnandi veður. Ritstjórnargrein Meðal tíu áhugaverðustu Atvinnumálanefnd Ísa- fjarðarbæjar telur mikilvægt að sveitarfélagið sjái til þess að rekin séu tjaldsvæði í öll- um byggðakjörnum. Nefnd- in hefur því falið upplýsinga- fulltrúa bæjarins að kanna hvers vegna bærinn kemur ekki að rekstri tjaldsvæðis á Suðureyri í sumar. Á Ísafirði eru tvö tjald- svæði. Í Tungudal er aðal- tjaldsvæði Ísfirðinga og ann- að tjaldsvæði er ofan við Menntaskólann á Ísafirði en þar er nýtt aðstaða heima- vistar skólans yfir sumartím- ann undir sumarhótel Hótels Eddu. Tjaldsvæði eru líka á Flateyri og Þingeyri, í Korpu- dal í Önundarfirði og á Dynj- anda, að því er fram kemur á heimasíðu Ísafjarðarbæjar. Tjaldsvæði séu í öllum byggðum Suðureyri. Daglegar ferðir í náttúruperl- una Vigur á Ísafjarðardjúpi hefj- ast 10. júní. Nokkur umferð ferðamanna hefur þó verið í eyj- una að undanförnu enda eyjan vinsæll áfangastaður hjá starfs- mannahópum og skólafólki snemma sumars. „Við höfum tekið á móti nokkrum hópum í maí, að ógleymd- um ferðamönnum frá skemmti- ferðaskipunum,“ segir Hugrún Magnúsdóttir bóndi í Vigur. „Það er erfitt að sjá fyrirfram hvernig traffíkin verður þar sem það er lítið um að fólk bóki með löngum fyrirvara. Það liggja helst fyrir bókanir frá skemmtiferða- skipunum en flest ætla þau bjóða farþegum sínum upp á ferðir í eyjuna í sumar,“ segir Hugrún. Fuglalífið í Vigur er auk annars náttúrufars eitt helsta aðdráttarafl Vigur og segir Hugrún fuglalífið vera í miklum blóma. „Lundinn er vinsælastur en svo er teistan líka einstaklega falleg og auk þess er nóg af æðarfugli og kríu.“ Fréttir hafa borist af slæmu ástandi lundastofnsins í kringum Vestmanneyjar en Hugrún segir það ekki eiga við um lundann í Djúpinu. „Við höfum ekki orðið vör við annað en að ástandið sé gott, allavega er nóg af honum,“ segir hún. – kte@bb.is Gott ástand á lundanum í Vigur ,,En það er annað Ísland: hljóðlátt leyndarmál um landshluta sem litla athygli hefur fengið en hefur í ár vakið hrifningu sem erfitt er að horfa fram hjá. Staðurinn er Vestfirðir, skringilega skapaður skagi sem er aðeins tengdur restinni af landinu með mjórri ræmu. Það er eins einangrað og það er stórkostlegt.“ Með þessum ummælum af hálfu eins umsvifamesta útgefanda ferðabóka í heiminum, Lonely Planet, voru Vestfirðir settir á meðal 10 eftirsóknarverðustu staða, sem ferðalöngum heimsbyggðarinnar stendur til boða. Hornstrandir hafa árum saman verið griðland þeirra sem komast vilja burt frá ysi og þysi borgarlífsins og upplifa í senn undur fagra og hrikalega náttúru; nokkuð sem enginn gleymir. En Vestfirðir eru annað og meira en Hornstrandir. Heimsókn á Látrabjarg, með vest- asta odda landsins, Bjargtanga, festist hverjum og einum í minni, sem þar stígur niður fæti. Stjórnvöldum þótti á sínum tíma ekki taka að hafa Vestfirði með í ,,hringveginum um Ísland.“ Vestfirðir státa hins vegar af eigin hringvegi, stóra Vestfjarðahringnum, eins og hann er stundum kallaður. Út frá honum er hægt að fara ýmsa smærri hringi eða útúrkróka til fjölda forvitnilegra staða. Fjölbreyti- leikinn sem blasir við á vestfirska hringveginn er einstakur. Þetta vita Vestfirðingar manna best og þess vegna leggja þeir ríka áherslu á að vegakerfinu innan fjórðungsins verði komið í það horf, að boð- legt þyki. Vestfirðir, paradís ferðamannsins. Vestfirðingar líkt og aðrir landsmenn eru meðvitaðir um að ferðaþjónusta er meðal líklegustu atvinnutækifæra framtíðarinnar. Þeim er líka ljóst að þessi einstaki landshluti sem þeir búa á hefur alltof lengi verið ,,hljóðlátt leyndar- mál.“ Útgefendur Bæjarins besta hafa lagt sitt lóð á vogarskálina til að halda nafni Vestfjarða á lofti. Sautjánda árið í röð er nú komið út vandað og efnismikið ferðaþjónustublað, VESTFIRÐIR 2011, sem dreift er á alla helstu áningarstaði ferðamanna, vítt og breitt um landið. Öll þessi ár hefur verið lögð rík áhersla á vandaða umfjöllun í máli og myndum um þá staði sem teknir hafa verið til kynningar hverju sinni. Efling atvinnulífs á Vestfjörðum er allra hagur. Sam- heldnin um að halda slíku blaði úti ber því vitini. Erlendum skemmtiferðaskipum með viðkomu á Ísafirði fjölgar ár frá ári. Sífellt fleiri ferðamenn leggja leið sína vestur. Markmiðið er að greiða leið þessa fólks um allan fjórðunginn, að það fái með að- gengilegum hætti notið þess, sem þessi einstaki landshluti hefur upp á að bjóða. Bæjarins besta býður alla velkomna til Vestfjarða, hvenær sem er, í þeirri fullvissu að hver og einn sem hingað kemur í fyrsta sinn bíði spenntur næstu heimsóknar. s.h.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.