Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.06.2011, Side 8

Bæjarins besta - 09.06.2011, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011 Tvær stjórnsýslukærur Innanríkisráðuneytinu hafa borist tvær stjórnsýslukærur á hendur Ísafjarðarbæ vegna ráðningar sviðsstjóra Skóla- og tómstundasviðs. Samkvæmt heimildum BB eru það Sigur- lína Jónasdóttir og Kristín Ósk Jónasdóttir sem leggja fram kærurnar en hvorug þeirra vildi tjá sig um málið þegar blaðið hafði samband. Jóhannes Tómasson, upp- lýsingafulltrúi innanríkisráðu- neytisins, segir kærurnar hafa borist ráðuneytinu 24. og 25. maí. Hann segir að það taki ráðuneytið fáeinar vikur, jafn- vel nokkra mánuði, að kveða upp úrskurð. „Fyrsta skrefið er að gefa hinum kærða kost á að svara kærunni efnislega. Ef eitthvað nýtt kemur upp í svar- inu er kærendum einnig gefinn kostur á að svara til baka. Þetta ferli getur því tekið nokkra mánuði,“ segir Jóhannes. Ungmenni læri algeng útistörf Vinnuskóli Bolungarvíkur er hafinn og stendur til 29. júlí. Hann er fyrir unglinga sem eru fæddir árin 1994 til 1997 og verkstjóri í sumar er Trausti Bernódusson. Markmiðið er að skólinn sé fræðandi og upp- byggjandi og ungmennin læri hin algengu útistörf. Verkefni Vinnuskólans eru fjölbreytt og víða um sveitarfé- lagið. Aðallega er unnið við græn og opin svæði innanbæj- ar, við bæinn sjálfan og um- hverfi hans. Helstu verkefni eru hreinsun á bæjarlandi og umhverfi þess, almenn um- hirða grænna svæða, viðgerðir ýmiskonar, málningarvinna og margt annað. „Við viljum minna bæjarbúa á að taka tillit til ungmenna meðan á skólanum stendur,“ segir í tilkynningu frá Sigurði Friðgeir, umhverfisfulltrúa Bol- ungarvíkurkaupstaðar. Besti blússöngvar- inn á Norðurlöndunum Tónlistarmaðurinn Mugison fær fullt hús stiga hjá tónlistar- vefnum undertoner.dk fyrir tónleika sína á Spot-hátíðinni í Árósum sem haldin var um fyrri helgi. „Mugison er án efa besti blússöngvari Norður- landa. Ef ekki væri fyrir Muddy Waters, Sonnyboy Williamson og tvo eða þrjá til viðbótar væri hann sá besti,“ segir gagn- rýnandi Undertone, sem gaf Mugison sex stjörnur af sex mögulegum. Það er besti dóm- ur sem veittur var flytjanda á hátíðinni. „Mugison rokkaði einn með gítarinn og sannaði að rokk og ról snýst ekki um oddmjó stíg- vél og svartan klæðnað. Mugi- son var í lafandi buxum með axlabönd en samt hef ég ekki séð svona mikið af rokki síðan ég sá Keith Richards á risaskjá á Parken,“ segir ennfremur í dómnum. Matreiðslumeistarinn Atli Ottesen hefur fest kaup á Vagn- inum á Flateyri sem hann hefur reyndar rekið í rúmlega eitt ár. „Þá kom ég hingað fyrst og hef verið búsettur á Flateyri síðan. Ég kann afskaplega vel við mig hér á Flateyri og þegar mér bauðst að kaupa staðinn hugsaði ég mig ekki tvisvar um og greip tæki- færið,“ segir Atli. Hann útskrifaðist sem matreið- slumeistari fyrir tíu árum og hefur komið víða við. „Ég var nemi á veitingastaðnum Sommelier og lauk þar samningnum mínum. Svo vann ég eitt ár á Sjávarkjall- aranum þegar hann var opnaður. Þaðan lá leiðin til Grænlands þar sem ég starfaði í eldhúsinu á Hótel Hans Edge í Nuuk. Þá vann ég á veitingastaðnum Coq d’arg- ent í London, sem er háklassa franskur veitingastaður, en þar var ég í rúmt ár áður. Áður en ég kom hingað vestur sá ég um eld- húsið á Kaffi Óliver í Reykjavík.“ Atli segir marga réttina á mat- seðli Vagnsins eiga uppruna sinn í Önundarfirði. „Ég vil vinna sem mest með hráefni héðan úr firð- inum. Meðal annars verður boðið upp á önfirskt lambakjöt frá Kirkjubóli í Valþjófsdal. Ferskur fiskur verður líka í aðalhlutverki enda ekki langt að sækja fiskinn á bryggjuna. Þá verður hægt að fá reyktan svartfugl sem veiddur var hér í fjarðarmynninu í vor,“ segir Atli. „Frá því ég kom hingað vestur hefur áhugi minn á bæði stang- veiði og skotveiði stóraukist og það hefur m.a. opnað augu mín fyrir því hversu mikil matarkista Vestfirðir eru. Það er ólíkt skemmti- legra að elda mat þegar maður veit hvaðan hann kemur og enn betra þegar maður hefur aflað hans sjálfur. Stefnan er að færa veitingastaðinn frekar í þessa átt enda reglulega gaman þróa þetta áfram.“ Vagninn er sjálfsagt þekktari fyrir böll og tónleika en mat og veitingar, en Atli segir að staður- inn verði áfram rekinn sem skemmtistaður og öldurhús. „Vagninn er kannski sérstak- lega þekktur meðal tónlistar- manna á Íslandi enda hafa fyrri eigendur verið duglegir að fá þá til að spila á staðnum. Auðvitað ætla ég að viðhalda þessari hefð enda skapast hér alveg frábær stemmning á böllum. Á þessu eina ári sem ég hef staðið á bak við barinn hef ég ekki í eitt skipti þurft að vísa fólki út vegna vand- ræða. Þetta er í raun alveg sérstakt fyrirbæri,“ segir Atli Ottesen. – kte@bb.is Nýr eigandi að Vagninum Mikið af rusli hefur verið losað á Suðurtanganum á Ísafirði. Losa garðaúrgang víða í sveitarfélaginu Nokkuð hefur borið á því að fólk losi sig við garðaúrgang á víðavangi. Meðfylgjandi mynd sýnir hvar slíku hefur verið sturt- að við útsýnispallinn á Skarfa- skeri í Hnífsdal. „Það kann að vera að fólk fari þessa leið af því það telur að greiða þurfi fyrir losunina hjá móttökustöðinni Funa. Það er hins vegar misskiln- ingur því öll losun garðaúrgangs er gjaldfrjáls,“ segir Einar Péturs- son hjá verktakafyrirtækinu KNH. „Þetta er því óþörf sparn- aðarleið.“ Einar segir sorphirðuna og flokkunina að öðru leyti ganga vel. „Það er þó ástæða til þess að árétta, að gler má alls ekki fara í flokkunartunnuna því það getur skapað hættu fyrir starfsmennina. Glerið á að fara með almennu heimilissorpi og það er urðað með því,“ segir Einar Pétursson. Garðaúrgangur sem losaður hefur verið við Skarfasker.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.