Bæjarins besta


Bæjarins besta - 09.06.2011, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 09.06.2011, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2011 13 Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbætur á rafkerfi jarðganganna undir Breiðadals- og Botnsheiði. Um er að ræða endurnýjun á iðntölvum í öllum stjórnskápum auk nauðsynlegra breytinga á skápunum og inn- og útgangseiningum sem verða í nær öllum neyðarsímaskápum með reglulegu millibili í öllum leggj- um ganganna. Einnig felst verkið í endurbótum á neyðarsímaskáp- um, blikkljósum, lokunarbóm- um, dreifiskápum, varaafli og til- færslu á fjarskiptaskápum (TETRA) og uppsetningu á loftnetum. Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2012. Útboðsgögn eru seld hjá Vegagerðinni á Dagverðardal á Ísafirði og í Borgartúni 7 í Reykjavík. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14 þriðju- daginn 28. júní og verða þau opnuð þar kl. 14.15 þann dag. Rafkerfið endurbætt Langadalsá, Laugardalsá og Hvannadalsá í Ísafjarðardjúpi eru að verða uppbókaðar í sumar. Að því er fram kemur á vef fyrir- tækisins Lax-á sem hefur árnar á leigu eru eingöngu örfá holl eftir. „Árnar okkar þrjár í Djúpinu hafa átt auknum vinsældum að fagna undanfarin ár – enda verið fanta- góð veiði þar vestra,“ segir á vefnum. Vatnsstaða lítur vel út í ánum. Einnig gefur skýrsla Veiðimála- stofnunar tilefni til bjartsýni en hún spáir góðu veiðisumri. Fyrsta hollið mætir í Laugardalsá 15. júní og viku seinna verður opnað fyrir veiði í Hvannadalsá og Langadalsá. Árnar í Djúpinu að verða fullbókaðar Reksturinn í Einarshúsi í Bolungarvík þetta sumarið er kominn á fullan skrið. Tals- verður gestagangur hefur verið undanfarnar vikur og hafa sjó- stangaveiðimenn verið tíðir gestir í mat og drykk og einnig í gistingu. Opið verður alla daga vikunnar í sumar og á matseðli verður boðið upp á fiskrétti í bland við kjötrétti og hrefnukjöt sem hefur slegið í gegn á matseðlinum það sem af er sumri. Einnig verður hægt að fá vöfflur Völusteins fyrir utan hnallþórur af ýmsu tagi með kaffinu. Gistiheimili var opnað á efstu hæð hússins í vor en þar eru fimm herbergi með hand- laug og glæsilegri setustofu þar sem hægt er að njóta anda lið- inna tíma. Öll endurgerð húss- ins hefur miðast við að halda í gamla tíma og varðveita sög- una. Um þessar mundir er verið að vinna að sögusýningu um íbúa hússins og stefnt að því að fyrsti hluti hennar verði til- búinn innan skamms. Gistiheimili opn- að í Einarshúsi Útséð um eggjatöku á Hornströndum „Tíðin hefur leikið okkur grátt þetta vorið. Norðaustanáttin hef- ur verið ríkjandi allan maí og þá er hvergi hægt að lenda bát undir björgunum,“ segir Tryggvi Guð- mundsson lögmaður á Ísafirði, sem um árabil hefur stundað eggjatöku á Hornströndum. „Ég fór norður eftir með Einari Val til að freista þess að komast í björgin en við urðum frá að hverfa vegna þess að þar var haugasjór og hvergi lendandi. Þetta hefur verið það slæmt að ég hitti Arnór Stígsson, sem ólst upp á Horni, og hann sagði að tíðin hefði ekki verið leiðinlegri síðan 1943. Þetta er allavega í fyrsta skipti í nokkra áratugi sem ég hef ekki komist í björgin,“ segir Tryggvi. Hann er ekki langur tímaramm- inn sem menn hafa til að sækja egg í björgin. „Þetta er tiltölulega stuttur tími. Varpið byrjar í kring- um 20. maí og fyrst verpir fuglinn í skútum og þræðingum neðar- lega í bjarginu. Viku seinna geta menn sótt ný egg uppi við brún- ina. Eftir rúmlega viku er svo allt orðið ungað og það er ekki fyrir nema allra hörðustu Hornstrend- inga að borða eggin stórstropuð.“ Tryggvi segir að eggjatakan hafi farið hratt minnkandi á und- anförnum árum. „Núna í seinni tíð tökum við ekki nema upp undir þúsund egg, sem er rétt nóg fyrir mann sjálfan auk vina og ættingja. Þetta er eiginlega deyjandi atvinnugrein og þeir eru ekki margir sem stunda þetta í dag. Björgin eru engu að síður almenningur og öllum er frjálst að sækja þangað egg. Aðstaðan er hins vegar nokkuð hrikaleg og því ekki mikið framboð af mann- skap í verkið. Áður fyrir var þetta stóriðnaður, fjöldi fólks kom sam- an og árlega voru tekin allt upp í 70 þúsund egg. Engu að síður sá ekki högg á vatni enda milljónir fugla sem verpa í bjarginu.“ Vegna veðurs hafa menn ekki komist í eggjatöku á Hornströndum þetta vorið.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.