Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2013, Blaðsíða 8

Bæjarins besta - 07.02.2013, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013 Auglýsingasími Bæjarins besta og bb.is er 456 4560 Fasteignasala Vestfjarða er eina starfrækta fasteignasalan á Vestfjörðum, og sé verðskrá þeirra húsa sem eru þar til sölu skoðuð, má fá nokkuð raunsanna mynd af húsnæðismarkaðnum á Vest- fjörðum. Dýrustu húsin á Vest- fjörðum eru flest á Ísafirði, en ellefu fasteignir með ásett verð 20-30 milljónir króna eru til sölu á Ísafirði. Engu að síður eru tvö dýrustu húsin sem eru til sölu á Vestfjörðum við Holtastíg og Vitastíg í Bolungarvík. bb.is kannaði verð á þeim fasteignum sem eru til sölu á Vestfjörðum eftir bæjarfélögum og óhætt er að segja að hægt sé að fá mynd- arlegt einbýlishús á Vestfjörðum fyrir brotabrot af þeirri upphæð sem sambærilegt húsnæði kostar á höfuðborgarsvæðinu. Sem fyrr segir eru tvær dýrustu fasteignirnar sem eru til sölu á Vestfjörðum í Bolungarvík. Hin dýrari er 417 fermetra einbýlis- hús við Holtastíg 15, en ásett verð hússins er tæpar 35 milljónir króna. Húsið er á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr, og þykir hið glæsilegasta. Öllu ódýrara er 229 fermetra einbýlishús við Vitastíg 10 í Bolungarvík, en ásett verð er tæpar 30 milljónir króna. Húsið er mikið endurnýj- að, en því fylgir einnig bílskúr. Ódýrasta húsið til sölu í Bolung- arvík stendur við Hafnargötu 7, en það er 86 fermetra þriggja herbergja íbúð. Ásett verð er 6,9 milljónir króna. Dýrasta eignin sem er til sölu á Ísafirði er 318 fermetra einbýl- ishús við Seljaland, en ásett verð hússins er 27,5 milljónir króna. Í húsinu eru sjö svefnherbergi, en tæplega 70 fermetra íbúð er á neðri hæð hússins sem hentar vel til útleigu. Næst dýrasta eign- in til sölu á Ísafirði er 190 fer- metra einbýlishús í Hafraholti. Ásett verð hússins er 25,7 millj- ónir króna, en húsið þykir hið glæsilegasta bæði að innan sem utan. Á Ísafirði er þó einnig hægt að festa kaup á talsvert ódýrara hús- næði, en á ódýrasta húsnæðið í bænum eru settar 5,5 milljónir króna, en það er 52 fermetra íbúð í Pólgötu. Á sama verði má finna þriggja herbergja íbúði á neðstu hæð þríbýlishúss við Sólgötu á Ísafirði. Í Hnífsdal er Skólavegur 1 til sölu, 80 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum, fyrir sama verð. Ásett verð dýrustu fasteign- arinnar í Súðavík er hvorki meira né minna 25 milljónir króna. Um ræðir 200 fermetra einbýlishús á einni hæð með öllum helstu nú- tímaþægindum. Á Flateyri eru átta fasteignir til sölu, allt íbúðarhúsnæði. Dýr- asta eignin til sölu á Flateyri er 206 fermetra einbýlishús við Drafnargötu 14, með fjórum svefnherbergjum. Ásett verð hússins er 13,5 milljónir króna. Ódýrasta húsið til sölu á Flateyri er þriggja herbergja einbýli úr timbri við Brimnesveg. Húsið er 112 fermetrar, og er ásett verð 6 milljónir króna. 238 fermetra ein- býlishús við Grundarstíg 2 er einnig til sölu, en óskað er eftir tilboðum í húsið. Húsið er sjö herbergja, þar af eru fimm svefnherbergi. Fasteignamat hússins er 9,8 milljónir króna. Dýrasta húsið á Suðureyri sem Fasteignasala Vestfjarða er með til sölu kostar 15 milljónir króna. Um er að ræða 138 fermetra ein- býlishús við Túngötu. Ódýrasta eignin á Suðureyri er hinsvegar sú ódýrasta á hjá Fasteignasölu Vestfjarða, en það er 89 fermetra steinsteypt einbýlishús við Hjalla- veg 2. Ásett verð er 4.5 milljónir króna. Á Þingeyri eru fimm eignir á söluskrá, þar af eitt iðnaðarhús- næði. Dýrasta eignin er 90 fer- metra parhús við Aðalstræti, sem á er sett 7,5 milljónir króna. Næst dýrasta eignin er 100 fm íbúð í fjórbýli við Hlíðargötu 37, en ásett verð á íbúðinni er 7 milljónir króna. Falar fasteignir á Þingeyri eru allar í svipuðum verðflokki, en ásett verð á hinum íbúðunum sem um ræðir eru 5,5 milljónir króna og 5 milljónir króna. Á Patreksfirði eru þrjár eignir til sölu. Dýrasta eignin er Aðal- stræti 37, 229 fermetra einbýlis- hús sem sett er á 14 milljónir króna. Öllu ódýrari er 85 fermetra íbúið við Stekka 13, en ásett verð hennar er 6,2 milljónir króna. Núverandi skrifstofuhúsnæði Vesturbyggðar við Aðalstræti 63 er einnig til sölu, en verð er ekki uppgefið. Að sögn Guðmundar Óla Tryggvasonar hjá Fasteignasölu Vestfjarða er venjan sú að dýr- ustu húsin á Vestfjörðum séu á Ísafirði, en húsnæði í Bolungar- vík hafi verið að sækja í sig veðrið að undanförnu. Hafa ber í huga að þessi listi er ekki tæmandi, þar sem talsvert er um óskað sé eftir tilboðum í fasteignir hjá Fasteignasölu Vestfjarða. – gudmundur@bb.is Dýrustu húsin í Bolungarvík Á þessari mynd má sjá Holtastíg 15 í Bolungarvík, en ásett verð þessa 417 m² einbýlishúss er tæpar 35 milljónir króna.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.