Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.02.2013, Blaðsíða 19

Bæjarins besta - 07.02.2013, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013 19 Lausn á síðustu krossgátu Sudoku þrautir Gaf Háskólasetrinu tvo vinnustóla „Ég er sjálf í háskólanámi og styðst við svona vinnustól heima fyrir. Tryggingastofnun greiðir aðeins fyrir einn stól á hvern einstakling og því gat ég ekki verið með stólinn í skól- anum, en hann er mér mjög mikilvægur“ segir Ingibjörg Snorradóttir íbúi á Ísafirði, en hún og eiginmaður hennar Hávarður G. Bernharðsson gáfu Háskólasetri Vestfjarða tvo vinnustóla. Umræddir vinnustólar eru gríðarlega mikilvægir fyrir námsmenn með skerta hreyfigetu. Ingibjörg ákvað að ganga fyrirtækja á milli á Ísafirði og safna fyrir tveimur stól- um, enda telur hún nauðsynlegt að Háskólasetrið búi yfir slíkum vinnustólum. Stólarnir voru afhentir Peter Weiss forstöðu- manni Háskólasetursins í hádeginu á föstudag. Ingibjörg leggur stund á fjarnám í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri. Hún segir fyrirtæki á Ísafirði hafa verið einkar liðleg og það sama megi segja um Öryggismið- stöðina, sem sló rækilega af verði stólanna. „Við viljum koma á framfæri þakklæti til allra sem tóku þátt í þessu með okkur hjónum í söfnuninni og studdu við bakið á þessari hugmynd,“ segir Ingibjörg, en annar stólanna verður stað- settur í Fræðslumiðstöð Vestfjarða og hinn í Háskólasetri Vestfjarða. Ingibjörg Snorradóttir háskólanemi og Hávarður G. Bernharðsson eiginmaður hennar ásamt Peter Weiss forstöðumanni Háskólasetursins og Guðrúnu Sigríði Matthíasdóttur móttökuritara.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.