Bæjarins besta - 07.02.2013, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2013
JJ Evró sveitin 0 stig!
Stakkur hefur ritað viku-
lega pistla í Bæjarins
besta í mörg ár. Skoð-
anir hans á mönnum
og málefnum hafa oft
verið umdeildar og vak-
ið umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara saman
við skoðanir útgefenda
blaðsins. Þrátt fyrir það
bera ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á skrif-
um Stakks á meðan
hann notar dulnefni sitt.
Stakkur skrifar
Auglýsingasími Bæjarins besta og bb.is er 456 4560
smáar
Vantar 4ra herb. íbúð á Ísafirði.
Er með tvo stráka og einn hund
(góðan). Er reyklaus og lofa skil-
vísum greiðslum. Uppl. gefur
Sigrún Eiríks í síma 898 2181.
Óska eftir reiðhjóli, helst fjalla-
hjóli á bilinu 10-90 þús. Uppl. í
síma 844 6248.
Til sölu eru vel með farnar kojur
(190x70) og Siemens þvottavél.
Uppl. í síma 891 6381.
Þorrablót Grunnvíkinga verður
haldið í félagsheimilinu í Hnífs-
dal 9. febrúar. Húsið opnar kl.
19:30 og blótið byrjar stundvís-
lega kl. 20:30. Miðapantanir hjá
Sigrúnu í síma 862 3761, Huldu
í síma 690 3118 og hjá Gerði í
síma 869 3134.
Miðbæjarstemning á Suðurtanganum?
Ísafjarðarbær vinnur þessi
misserin að skipulagningu lands
neðan við Ásgeirsgötu á Ísafirði.
Stór hluti svæðisins er á land-
fyllingu en aðeins vestasti hluti
þess er hinni upprunalegi Suður-
tangi. Skipulagssvæðinu er ætlað
fyrir blandaða byggð þjónustu
og íbúða, en alls er gert ráð fyrir
65 lóðum á svæðinu, þar af 59
nýjum. Jafnframt er gert ráð fyrir
öflugum útivistarsvæðum fyrir
íbúa svæðisins og gönguleiðum
sem tengja svæðið við efri hluta
eyrarinnar. Samkvæmt teikningu
sem Ísafjarðarbær lét gera er
óhætt að fullyrða blómleg byggð
með miðbæjarstemningu gæti
risið á Suðurtanga.
Jóhann Birkir Helgason sviðs-
stjóri umhverfis- og eignasviðs
Ísafjarðarbæjar segir að hug-
myndin sé sú að fjölbreytileiki í
stíl við gömlu byggðina á eyrinni
eigi að ráða för. „Við erum ekki
að leita eftir nýju Holtahverfi,
heldur miklu frekar götum sem
eru í stíl við Pólgötu og Silfurgötu
og gamla miðbæinn á Ísafirði.
Fjölbreytileikinn á að ráða för.
Við viljum ekki húsalengjur með
flötum þökum,“ segir Jóhann
Birkir, en áhersla er lögð á smá-
gerða byggð sem bera muni ein-
kenni eldri byggðarinnar á Ísa-
firði. „Hafa ber þó í huga að hér
er um að ræða drög að deili-
skipulagi sem ekki er enn búið
að auglýsa,“ segir Jóhann Birkir.
Ómar Smári Kristinsson teikn-
aði skipulagið fyrir Ísafjarðarbæ.
„Þetta er auðvitað gróft áætlað
og við gáfum honum frjálsar
hendur. En þetta sýnir nokkurn
veginn þá byggð sem við höfum
í huga. Neðar á tanganum má sjá
iðnaðarsvæði sem við áætlum að
rísi líka,“ segir Jóhann Birkir, en
eins og sjá má á myndinni stendur
einnig til að stækka hafnarkant-
inn. Skipulag þess svæðis verður
sett fram í tveimur aðskildum
deiliskipulögum sem verða unnin
samhliða. Skipulagssvæðið sem
um ræðir nær yfir helsta nýbygg-
ingarsvæðið á eyrinni á Ísafirði,
en nokkur starfsemi er á svæðinu
í dag. Stór hluti skipulagssvæð-
isins er flöt landfylling. Vestasti
hluti þess er þó hinn upprunalegi
Suðurtangi og þar er að finna
einu upprunalegu fjöruna sem
eftir er á eyrinni.
Í greinargerð nefndar sem vann
skipulagið kemur fram að landið
liggi afar lágt og sé því viðkvæmt
fyrir hækkun sjávar. Þekkt er að
sjór flæði á land þegar hásjávað
er og vestlægar vindáttir eru
sterkar. Sól á skipulagssvæðinu
er með mesta móti miðað við
Skutulsfjörð. Landið liggur til-
tölulega langt frá fjöllum og nýtur
því sólar við, frá morgni og fram
eftir kvöldi. Svæðið er fremur
lítið gróið enda samanstendur það
af fjörukambi og fyllingum.
Meginmarkið deiliskipulags-
ins samkvæmt greingerð er að
skapa rými fyrir íbúðarbyggð þar
sem gæðin byggjast á góðu að-
gengi að sjó og aðstöðu fyrir sjó-
sport, sem og nálægð við miðbæ
og þjónustu. Jafnframt er mark-
miðið að efla umhverfi minja sem
eru á svæðinu og tryggja vernd
þeirra.
– gudmundur@bb.is
Á þessari mynd má fá nokkuð greinargóða hugmynd um hvernig skipulagshópurinn
sér fyrir sér framtíðarbyggð á Suðurtanga. Teikning: Ómar Smári Kristinsson.
Undanfarin fjögur ár hafa Íslendingar haft eins konar Evróvision
í gangi. Ríkisstjórn Jóhanns og Jóhönnu hefur lagt sig fram um að
Ísland lagi sig að Evrópusambandinu í samræmi við aðildarum-
sókn, sem þau samþykktu bæði ásamt flokkssystkinum sínum í
Vinstri grænum og Samfylkingu. Lengi var okkur kjósendum
talin trú um að um könnunarviðræður væri að ræða. En í ljós er
komið að svo er ekki. Það eru víst ekki til neinar slíkar í Evrópu-
sambandinu. Ríki sækir annað hvort um aðild eða ekki. Icesave
málið virðist hafa verið angi af þessu ferli. Allt hefur verið gert
til að styggja ekki Evrókrata svo ekki hlaupi snurða á þráðinn.
Jóhanna forsætisráðherra hefur aldrei dregið dul á það að hún vill
íslenska ríkið inn í samband þjóða Evrópu. En við erum í Evrópu.
Ekki slitu Jóhann og Jóhanna stjórnmálasambandi við breska
ríkið, þótt hið íslenska væri á hryðjuverkalista Gordon Brown
fyrrum forsætisráðherra Breta, sem Ólafur Ragnar forseti
skammaði svo skemmtilega í Davos í Sviss um daginn, Jóhönnu
og Jóhanni til armæðu.
Fullnaðarsigur íslenska ríkisins fyrir dómstóli EFTA þegar
Eftirlitsstofnun EFTA fór með það fyrir dóm með meðalgöngu
Evrópusambandsins hefur sýnt og sannað að meðan Ísland er full-
valda ríki eru því allir vegir færir. Að auki undirstrikaði dómurinn
að fullvalda ríki verður ekki látið bera ábyrgð á óráðsíuskuldum
óreiðumanna, þótt þeir séu ríkisborgarar þess. Enginn hefur enn
reiknað út hversu miklu íslenskir skattborgarar hefðu þurft að fórna
af skatttekjum sínum hefði Jóhanni og Jóhönnu tekist ætlunarverk
sitt með aðstoð Svavars Gestssonar áður formanni Alþýðubandalags
og samherja Jóhanns. En þjóðin hafnaði verkum þeirra tvívegis í
þjóðaratkvæðagreiðslu, fyrst 6. mars 2010 og síðar 9. apríl 2011. Í
bæði skiptin var það forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem
skaut málinu til þjóðarinnar. Í fyrra sinnið voru rúm 98% á móti og
hið seinna um 60%. Stjórnarfrúin og –herrann skömmuðu þá meiri-
hlutann.
Á ensku myndi JJ Evró sveitin heita ,,Jay Jay Euro Band“. Íslend-
ingar hafa verið á ,,góðri“ leið að vinna Evrovision söngvakeppnina
árlega síðan 1986, en þá var það Icy, kennt við Ísland upp á ensku,
sem lenti í 16. sæti. Þjóðin varð þá bæði döpur, leið og reið. En hún
réði engu. Nú má segja að þjóðinn hafi hafnað JJ Evró sveitinni. Tón-
vissir pólitíkusar segja ef til vill að sú sveit sé ekki lagviss. Lögviss
er hún ekki eins EFTA dómstólinn sannaði. En JJ Evró nær ekki einu
sinni Gleðibanka Icy. Hún myndi sennilega ekki fá nokkurt stig
lengur þótt hún hafi fórnað öllu fyrir þá Evrovision sem þjóðin hefur
fylgst með síðustu fjögur ár.