Listin að lifa - 01.09.2000, Síða 10

Listin að lifa - 01.09.2000, Síða 10
SKOÐUN STJÓRNMÁLAMANNS: Umræðan um fátækt aldraðra Mikið er rætt um fátækt hér á landi og af umræðunni mætti ráða að hér byggju þúsundir einstaklinga við mikla og sára fátækt. Sérstaklega eru kjör aldraðra sögð vera með endemum slæm. Kannanir eru birtar sem eiga að sanna þetta. Það einkennir þessa umræðu að hún er klisjukennd og byggir á upphrópun- um. Sérstaklega verður að nefna könnun Rauða krossins á fátækt, sem er vægast sagt mjög vafasöm vegna þess hvernig hún er uppbyggð. Sú könnun mundi mæla mikla fátækt hvernig sem tækist að bæta stöðu þeirra, sem lökust hafa kjörin. Um- ræða, sem fer fram með slíkum for- merkjum, bætir ekki stöðu þeirra þeirra lakast settu. Hún getur jafnvel skaðað. Orðið „fátækur“ hefur verið skil- greint upp á nýtt. Nú er sá fátækur, sem ekki hefur helming af meðaltekj- um til framfærslu. Þessi skilgreining þýðir t.d. að ef allir væru með 10 þús- und krónur í laun eða bætur á mánuði væri enginn fátækur. Ef okkur hins vegar tækist að tvöfalda öll laun og bætur væru nákvæmlega jafnmargir fátækir og þeir sömu og áður. Að óbreyttu verðlagi. Tekjulaus landeig- andi, sem á miklar lendur í þéttbýli og selur öðru hverju lóð, er líka fátækur samkvæmt þessari skilgreiningu. Mér finnst þessi skilgreining út í hött. Það er móðgun við íslenska fátæklinga fyrr á öldum og fátæklinga um allan heim, sem deyja úr hungri árið 2000, að nota sama orð yfir stöðu þeirra og þess sem á í vandræðum með að láta enda ná saman af því að bensínið á bílinn er orðið svo dýrt. Bent hefur verið á með réttu að kjör aldraðra hafa ekki tekið þátt í þeirri miklu launahækkun, sem launafólk hefur notið undanfarið. Það stóð aldrei til. Helmingur tekna lífeyrisþega kem- ur frá lífeyrissjóðunum. Þegar lífeyris- sjóðunum var bjargað frá gjaldþroti upp úr 1980 og útlán þeirra voru verð- tryggð miðað við verðlag (sem kost- aði miklar fórnir skuldara) var jafn- framt unnt að verðtryggja lífeyri frá þeim miðað við sama grunn þ.e. verð- lag. Það var markmiðið. Aður voru lífeyrissjóðirnir ýmist gjaldþrota eða greiddu óverðtryggðan smánarlífeyri. Það stóð aldrei til að verðtryggja líf- eyri frá lífeyrissjóðunum, sem flestir starfa undir stjórn verkalýðsfélaga og atvinnurekenda, miðað við laun enda hefðu eignir sjóðanna, t.d. húsbréf, þurft að hækka eins og laun. Er hætt við að lítið hefði farið fyrir launa- hækkunum síðustu ára ef skuldir heimilanna hefðu hækkað eins og launin. Svo má ekki gleyma því að aldraðir héldu kaupmætti sínum að mestu þegar skerða þurfti kaupmátt launa upp úr 1990. I umræðunni er jafnan talað um einhvern, sem fær bara bætur frá Al- mannatryggingum. Hver fær „bara“ bætur frá Almannatryggingum? Það er sá sem aldrei hefur verið á vinnu- markaði því annars hefði hann greitt til lífeyrissjóðs og fengi lífeyri þaðan Það hefur verið lagaskylda í 26 ár að launþegar greiði til lífeyrissjóðs. Fólk sem fer núna á ellilífeyri eftir langa starfsævi ætti að eiga minnst um 20 til 30 ára réttindi hjá lífeyrissjóði og fá þaðan lífeyri sem svarar til 35% til 60% af launum og að auki lífeyri (skertan) frá Tryggingastofnun. Það er allt önnur staða heldur en umræðan gefur til kynna. Svo hafa húsaleigu- bætur verið teknar upp á síðustu árum og voru ekki til áður. Það gleymist líka í umræðunni. Þeir sem aldrei fara á vinnumarkað, æfilangt fatlaðir, fá bæði húsnæði og framfærslu hjá sveit- arfélagi sínu. Fjárhagsleg kjör aldraðra eru yfir- leitt góð. Þó eru hópar á meðal aldr- aðra, sem búa við slæm kjör. Þeir sem hafa orðið gjaldþrota í atvinnurekstri eða hafa skrifað upp á skuldabréf og verða að borga af skuldum án þess að eiga eignir á móti eru oft í vonlausri stöðu. Þetta fólk getur oft ekki lýst sig gjaldþrota því að ættingjar og vinir sitja í súpunni. Margir aldraðir eiga erfitt með að standa undir eignaskött- um og öðrum gjöldum af stórum fast- eignum sínum og óttast það rask, sem fylgir sölu auk þess sem tilfinningar eru bundnar eignunum. Og svo er það óreglan sem eyðileggur fjárhagslega afkomu sumra aldraðra eins og ann- arra. Þessi atriði hafa ekkert með tryggingamál aldraðra að gera. En þó að margt hafí áunnist er líka mikið óunnið við að búa öldruðum gott æfikvöld, t.d. varðandi lyfja- og hjálpartækjakostnað. En forsenda þess er sterkt og heilbrigt atvinnulíf sem getur greitt góð laun sem standa undir velferðarkerfinu með sköttum. En það er alvarlegri vandi, sem þjakar aldraða miklu meira en fjár- hagsleg afkoma. Það er einsemdin og félagsleg einangrun, sérstaklega frá fjölskyldu sinni. Starfsfólk elliheimila segir mér af gömlu fólki sem sjaldan og jafnvel aldrei fær heimsókn sinna nánustu. Slík staða verður ekki löguð með peningum og það má jafnvel spyrja sig hvort sú fína þjónusta, sem veitt er á elliheimilunum eigi hér hlut að máli. Afkomendurnir hafa ekkert hlutverk. Þeir þurfa ekki að sinna pabba og mömmu eins og þau sinntu þeim þegar þeir voru litlir. <U‘)<ílurv cf)t<indal alþingismaður 10

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.