Listin að lifa - 01.09.2000, Blaðsíða 19

Listin að lifa - 01.09.2000, Blaðsíða 19
Fréttamolar frá FEB í Reykjavík Sumarið er yfirleitt frekar daufur tími í félagsstarfinu. Fastir dagskrárliðir vorannar í Ásgarði héldu sínu striki til 15. júlí, en þá lagðist öll félagsstarfsemi niður, nema brids sem spilað var einu sinni í viku í sumar, fram til 15. ágúst. Nú er starfið aftur komið í gang og búið að ákveða dagskrá á haustönn. Á sumrin er þó einn þáttur sem sker sig úr, en það eru sumarferðir félagsins. Fleiri hundruð manns hafa farið í dagsferðir og lengri ferðir í sumar. Ferðirnar eru alltaf jafnvinsælar og fjöldi þátttakenda hefur frekar aukist á milli ára. GÓUGLEÐI var haldin í mars sl. í samvinnu við Ferða- skrifstofuna Heimsferðir og tókst hún mjög vel. Þann 22. þessa mánaðar var haldinn Haustfagnaður með Heims- ferðum, með svipuðu sniði, með glæsilegum ferðavinn- ingum og skemmtiatriðum. Þegar þetta er sett niður á blað, er sá fagnaður ekki yfirstaðinn, en hefur vonandi tekist vel. Honum verða gerð skil í næsta blaði. ÁRSHÁTÍÐ félagsins hefur verið ákveðin föstudaginn 10. nóv. nk. Þar verður að vanda fjölbreytt dagskrá og ljúfar veitingar. Hún verður nánar auglýst síðar. JÓLAVAKÁN með jólahlaðborði hefur verið ákveðin laugardaginn 9. desember nk. Hún verður nánar auglýst síðar. HEILSA OG HAMINGJA á efri árum, fræðslufundir undir stjórn Páls Gíslasonar fyrrverandi formanns FEB í Reykjavík verða haldnir í haust. Þrír fræðslufundir eru þegar ákveðnir, sunnudaginn 15. okt. nk. og laugardag- ana 21. okt. og 18. nóv. Fundarefni og frekari dagskrá verður auglýst nánar. REKSTUR FÉLAGSINS er mjög erfiður, eins og sagt var frá í síðasta blaði. Hugmyndir voru uppi um að selja hluta eignarinnar í Glæsibæ til þess að bæta fjárhags- stöðuna. Nú hefur komið í ljós að það dugar ekki til og stjóm félagsins hefur samþykkt að selja allt húsnæðið og finna annað minna og hentugra. í dag eru málin á svo viðkvæmu stigi að ekki er hægt að segja frá þeim nánar að svo stöddu. Vonandi verður hægt að gera frekari grein fyrir stöðunni í næsta blaði. MÁLSHÖFÐUN: Stjórn FEB hefur ákveðið, ef þörf krefur, að höfða mál á hendur fjármálaráðherra f.h. ríkis- stjómarinnar vegna skattlagningar lífeyrissjóðstekna. Nú þegar er búið að kæra álagningu þriggja einstaklinga til skattayfirvalda. Ef skattayfirvöld hafna kærunni, verður höfðað mál. í næstu tölublöðum af „Listin að lifa“ verða lesendur upplýstir um gang mála. FRÁ FRÆÐSLU- OG ATVINNUNEFND: Akveðnar hafa verið tvær heimsóknir á vinnustaði fyrir jól. • 4. okt. Þjóðmenningarhúsið við Hverfisgötu. • 7. nóv. Alverið í Straumsvík. Nánar auglýst síðar. Tökum eftir gömlum myndum látum þær ekki glatast... Þaö er sárt aö glata myndinni af afa og ömmu, pabba og mömmu eöa bara einhverjum sem þér þykir vænt um. Svipmyndir Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóðleikhúsinu) 101 Reykjavík sími 552 2690 SJÓNSTÖÐ ÍSLANDS Þjónustu- og endurhæfingarstöð sjónskertra Hamrahlíð 17 • 105 Reykjavík Sími 568 8765 Opið mánudaga til föstudaga frá kl. 9-16 Tilvísun frá augnlækni er skilyrði fyrir þjónustu SJÓNARHÓLL Gleraugnaverslun 18% Afsláttur til eldri borgara m B rö öq^ ffl a tö 5J ii:: imm QN/IRHuLL :&:::= n iiíii! R-Cv:r- /-/ / /i-1--H \ \ \ \ ■ - Hafnarfjörður S. 565-5970 Glæsibær S. 588-5970 Afsl. miðast við staðgreiðslu og ekki með öðrum tilboðum 19

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.