Listin að lifa - 01.09.2000, Blaðsíða 22
Kórsöngur - hausaveisla og
ýmislegt annað skemmtilegt
Söngfélag FEB er nú að hefja fjórt-
ánda starfsárið. Alltaf baetast nýir
félagar í hópinn, en þó er enn
smápláss inn á milli fyrir bassa og
tenóra.
Á liðnum vetri var kórinn í rólegum
takti eftir mikla landvinninga.
Starfsárið hófst með því að hlýða á
söng Kórs aldraðra frá Akureyri og
Gaflarakórsins í Hafnarfirði. Haust-
tónleikar Söngfélagsins voru í Saln-
um í Kópavogi í októberlok.
Ógleymanlegt var að koma þar fram
og ekki spillti fyrir að leynigestur
kórsins var Guðmundur Jónsson
söngvari. Vetrarstarfinu lauk síðan
með ferð til Stykkishólms þar sem
við sungum og dönsuðum með eldri
borgurum bæjarins. Með í för var
hið sívinsæla Caprí-tríó.
Söngfélagið stefnir að hausttón-
leikum öðru sinni í Salnum í Kópa-
vogi í byrjun nóvember nk. og von-
umst við til að sjá sem flesta félaga
og vini þar. Meðal fastra liða í vetr-
ardagskrá eru „Súpudagamir“,
miklar matar-, söng- og hláturssam-
komur. Annar fastur liður er hin
fræga „Hausaveisla“ formanns
kórsins, Péturs H. Ólafssonar. I
febrúar nk. verður þessi valinkunna
veisla enn viðameiri, en þá hyggst
formaðurinn, ásamt kórfélögum,
bjóða til almennrar „Hausaveislu"
með balli og ófyrirséðum uppákom-
um af léttara taginu, en þetta er lið-
ur í fjáröflunarstarfi kórsins.
Við sendum öllum eldri borgur-
um hlýjar söngkveðjur með ósk um
ánægjulegan vetur.
’Kústítv Sceutuv 'jPjetmsdótUv
kórstjóri
Hvað er MedicAlert ?
MedicAlert er alþjóðlegt öryggiskerfi fyrir sjúklinga með bráða
eða hættulega sjúkdóma svo sem sykursýki, astma,
kransæðaþrengsli eða ígrætt nýra.
Medic Alert armbandið og hálsmenið veita ævilangt öryggi
gegn mistökum eða töf á réttri meðferð hjá sjúklingum ef þeir
verða meðvitundarlausir eða af öðrum ástæðum ófærir um að
gera grein fyrir veikindum sínum.
Hafið samband við Lions skrifstofuna, Reykjavík í síma
5613122 og fáið sendan unnlvsingabæklinginn um MedicAlert.
Fax 561 5122 ■ Netfang: medicalert@lions.is
Nesapótek
Eiðistorgi 17 • Sími 562 8900
Þjónusta í þína þágu
Vi& í Nesapóteki Eiðistorgi kappkostum ab
veita hverjum vibskiptavini okkar
persónulega þjónustu.
Vib sendum lyf heim vibskiptavinum
okkar ab kostnabarlausu.
Vib skömmtum lyf þeim sem þess óska.
Lyfjafræbingar frá okkur eru tilbúnir
til ab koma heim til þín og abstoba
þig vib ab taka til í lyfjaskápnum
þínum og koma lagi á lyfjagjafir.
Geymdu lyfsebilinn hjá okkur og
hringdu þegar þig vantar lyfin,
vib sendum tvisvar á dag.
Vib þjónustum allt höfubborgarsvæbib.
Vib veitum afslátt af lyfjum sem getur
numib allt ab 100% af öbrum vörum
veitum vib 10% afslátt.
Síminn hjá okkur er 562 8900
22