Listin að lifa - 01.09.2000, Page 24

Listin að lifa - 01.09.2000, Page 24
Hún hleypur á móti mér, léttstíg og sólbökuð, geislandi af lífskrafti. Eru orkustraumarnir frá Kaldbak svo magnaðir, að Úlla í Hrísey er allt önnur kona en Úlla í Reykjavík? „Ég er svo full af súrefni eftir sumarið, hér er ég alltaf úti," segir hún bros- andi. Land-Rover jeppinn hennar Úllu, model ‘63, þætti enginn frúarbíll í Reykjavík, en í Hrísey, þar sem „taxi“ ferðamannsins er dráttarvél, jafngildir hann „Rolls Royce“. Ystibær er fyrir stafni, um 5 km norðan við þorpið, óð- alssetur Úllu nær yfir um helming eyj- arinnar að flatarmáli. Innan girðingar tekur við paradís fugla og gróðurs. í landi Ystabæjar er stærsta kríuvarp á Islandi, með stærri æðarvörpum og tal- in vera þéttasta rjúpnabyggð í heimi. Fyrir tæpum 40 árum var hér gróð- urvana auðn, vargfuglavé og engin tré til að hlífa smáfuglunum. Æðarkollan átti hér ekki griðland. Hér má sjá hverju mannshöndin fær áorkað. Sæ- mundur Stefánsson, eiginmaður ÚIlu, var kaupsýslumaður í Reykjavík, en náttúruunnandi í innsta eðli. Ystibær var hans ættaróðal, hér vitjaði hann uppruna síns, bætti mistök forfeðra sinna sem létu stórveður og sauðfé eyða öllu niður í rót - með viðamikilli skógrækt. „Hér eru mínar stöðvar, hér hefur mér liðið best, sama segja kona mín og afkomendur. Hér er unaðsreitur fjölskyldunnar,“ sagði sá maður sem lét hönd sína fara líkt og töfrasprota um gróðurvana mela. Sæmundur lést í hárri elli fyrir fjórum árum. Nú situr Úlla á Ystabæ á sumrin, vaktar æðar- varpið, verkar æðardún og selur. Ystibær er kynngimagnaður staður. Spegill hafsins brosir á móti manni og hafaldan niðar í logninu. Hér hefur Sæmundur horft inn Svarfaðardal til æskustöðva sinna á Völlum þar sem faðir hans, Stefán Kristinsson, var prófastur og móðir hans, Sólveig Pét- ursdóttir Eggerz, húsfreyja á stóru prestssetri. I svo tignarlegri umgjörð hafs og bergrisa rifjast upp sólarsýn Davíðs Stefánssonar: Sé ég af Sólarfjöllum sýnir á alla vegu... Sé ég af Sólarfjöllum svipi lið- inna alda... Sé ég af Sólarfjöllum svip hinna miklu djúpa... Hvítar, hávaxnar blómabreiður þekja móana næst bænum og litlir ungar kíkja fram úr þykkninu. I friðlandi Ystabæjar iðar allt af lífi, Úlla leyfir ungviðinu að hlaupa yfir vegslóðann - hér á bíllinn ekki for- gang. „Melurinn hérna var okkur erfiður, enda trúlega staðið í friði fyrir ræktun- artilraunum allt frá ísöld,“ segir Úlla. „Við reyndum grasfræ, lúpínufræ og áburð, en ekkert dugði, melurinn var svo harður að fræin festust ekki. Þá settum við niður lúpínuhnausa, þannig náði lúpínan að festa sig í jarðvegin- um og var fljót að sá sér. Nú er hvönn- in orðin yfirsterkari og kerfillinn, blómjurt sem talin er hafa komið til landsins með tilbúnum áburði.“ Utan við bæinn er Úlla búin að breiða út dún til sólþurrkunar og móð- ir hennar situr í tjaldi á túninu við að fjaðratína. Eg hef samviskubit af að trufla, vil hjálpa til, en Úlla aftekur það með öllu. „Þú ert ekki ónæm fyrir flónni, yrðir öll útbitin,“ segir hún hlæjandi. A skammri stund er kaffi á borðum, Úlla á Ystabæ er vön að taka á móti gestum. Yfir rjúkandi kaffi er gott að spjalla og ekki spillir útsýnið. „Vissulega eru forréttindi að geta skipt sér á milli landshluta, verið hér á sumrin, í Reykjavík á vetuma,“ segir Úlla. „Friðurinn héma er svo umvefj- andi og útsýnið gefur mikið, kannski fær maður líka orku frá Kaldbaki.“ Sagt er að þrjár orkustöðvar séu á íslandi: Snæfellsjökull. Hekla og Kaldbakur. Standi maður á ákveðnum bletti í Hrísey, snúi baki í Kaldbak og horfi í átt til Snæfellsjökuls er sagt að sjónlínan vísi til Keopspýramídans í Egyptalandi og orkuflæðið sé þrefalt um líkamann. Dvöl á Ystabæ hlýtur að vera heilsubætandi. I 1 I 24

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.