Listin að lifa - 01.09.2000, Side 26

Listin að lifa - 01.09.2000, Side 26
Úlla og Sæmundur í garðinum við Ystabæ. Myndin er tekin 1982. Alveg með ólíkindum hvað fuglalífið jókst eftir friðunina og sjá alla rótar- angana, sem höfðu blundað í jarðveg- inum, fara að teygja sig upp í dags- ljósið." Þótt dúnninn bíði í sólinni, þá tekur Ulla ekki annað í mál en ganga með mér um skógræktina. Hávaxin skógar- tré stöðva þar vindinn, gróskumikill gulvíðir, grávíðir, fjalldrapi og berja- lyng veita smáfuglunum skjól, auk grasa og blómjurta sem gleðja augað. „Við erum búin að planta um 80 þúsund plöntum, aðallega sitkagreni, lerki og birki, og lítillega af furu. Sitkagrenið kemur best út. Sveppa- sýking kom í lerkið sem getur mynd- ast við ákveðin veðurskilyrði og það hefur aðeins rotnað. Við lögðum í gíf- urlegan kostnað þegar við byrjuðum á þessu.“ Hefur gróðurfar í Hrísey verið athugað eftir friðunina? „Eitthvað lítilsháttar, en Ingimar Oskarsson tók saman þær tegundir sem uxu á eynni 1949 - vissulega kominn tími á að gera það aftur - Hrísey er frábærlega afmarkað svæði til hvers konar rannsókna." Hvað verður með plöntun og frið- un þegar þín nýtur ekki lengur við? Skógarreitum þarf alltaf að sinna. „Ég er svo lánssöm að eiga þrjú góð börn sem ásamt mökum sínum styðja mig og hjálpa að sinna þessu öllu. Þau halda þessu vonandi áfram, ásamt barnabörnum sem eru orðin sjö talsins, en það mun tíminn leiða í ljós.“ Börn Úllu og Sæmundar eru: Sæ- mundur kerfis- og tölvunarfræðingur, Unnur hárgreiðslumeistari og Geir rafeindatæknifræðingur. Fuglahópar sveima yfir, lóur, jaðrakanar, stelkar og spóar - yfir varp- landinu eru hvítir skýstrókar af kríum. „Árið 1994 voru 25 þúsund kríupör í Hrísey - stærsta kríuvarp á íslandi. Hér er líka talið vera þéttasta rjúpna- varp í heimi sem er rannsakað á hverju sumri. Nú er heldur að draga úr fjölda fugla, en ég hef heyrt að allir þessir farsímar trufli ratskyn fuglanna. Fyrst á vorin geng ég eftir fjörunni og fuglamir fylgja mér eins og þeir séu að bjóða mig velkomna. Sumar koll- urnar eru gæfar, aðrar órólegari eftir að þær eru komnar með egg. Streita getur komið í fuglana eins og mannfólkið.“ Þú hefur fengið að koma nálægt frumatvinnuvegunum á Ystabæ, eins og bóndakona fyrr á öldum. „Já, maður er búin að kynnast ýmsu í Hrísey, segir Ulla hlæjandi. „Fyrstu árin rerum við til fiskjar og lögðum inn í kaupfélagið - og ég stóð og flakaði, frysti og saltaði fyrir fjöl- skylduna. Oft var aflinn mjög mikill og allt nýttum við. Smælkið herti ég í harðfisk og hengdi fyrir framan raf- stöðina, þar var svo góður blástur. Sæ- mundur kunni á gömlu miðin og var fengsæll fiskimaður. Hann var áður mikill áhugamaður um laxveiði og ekki síður fengsæll þar. Oft vorum við langt fram á nótt í blíðalogni og miðnætursól. Börnin muna vel þennan tíma í náttleysufeg- urð Eyjafjarðar. Unnur dóttir okkar sagði eitt sinn við bróður sinn: „Viltu vekja mig þegar sólin sest.“ Sú stutta vildi ekki missa af sólarlaginu, en svefninn sigraði. „Af hverju vaktirðu mig ekki?“ sagði hún síðar. „Sólin settist aldrei,“ var svar hans. Síðar hef ég oft hugsað til þess að þarna vorum við í mynni Eyjafjarðar, oftast með börnin - og ekkert okkar í björgunarvesti. Fyrsti báturinn okkar var opin trilla með mótorkassa í miðju. í aftakaveðri í júlí, árið 1966, var ég ein heima með krakkana og hélt að þakið ætlaði af húsinu, rokið var svo mikið. Þá sökk trillan okkar á legunni og brotnaði í spón. Plastbátur kom á eftir trillunni, en útgerðinni var sjálfhætt, þegar við þurftum að leita lengra og lengra út á miðin til að fá góðan fisk, og tindabykkja fór að koma í kolanetin.“ Eftir útgerð og skógrækt kom æðarvarp og dúntekja. „Þegar Sæmundur uppgötvaði að hér væri æðarfugl, fékk hann gífurleg- an áhuga, lét ýta upp mýrlendi sem myndaði tjarnir í vorleysingum. Síðan reyndum við að laða kollurnar að og fæla vargfuglinn frá, settum upp rell- ur, ég saumaði flögg og Sæmundur keypti gerviblika frá Bandaríkjunum. Af tólf tjörnum hafa fimm skilað góð- um árangri. Sæmundur lét líka útbúa rennu fyrir kollurnar neðan úr fjörunni - einskonar göngubraut svo að þær ættu auðveldara með að komast í varpið. Síðan hefur þetta verið að aukast frá ári til árs. Nú setjast hér upp tæp- lega 3000 pör á ári sem gefa af sér um 40 kg af dún. Ég sel mest erlendis og hef fengið lof fyrir gæðin.“ Þú hefur svo mikil samskipti við æðarfuglinn. Ertu ekki farin að þekkja kollurnar? Úlla brosir og segir erfitt að þekkja þær í sundur, fuglarnir séu gleggri á mannfólkið. „í nítján ár gátum við gengið að einni kollunni sem greini- lega þekkti okkur. 26

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.