Listin að lifa - 01.09.2000, Page 27

Listin að lifa - 01.09.2000, Page 27
Vinna við æðarvarpið byrjar strax á vorin, þá þarf að vakta varpið og gæta þess að eggjaræningjar eins og hrafn, svartbakur og hettumávur ráðist ekki til atlögu. Um miðjan maí fer fuglinn að setjast upp og eggin eru þrjár vikur að klekjast út. Dúninn tökum við, þeg- ar fyrstu kollurnar eru búnar að leiða ungana út, sem er yfirleitt um miðjan júní. Þá safnast fjölskyldan saman til að tína dúninn úr hreiðrunum. Best er að ná dúninum þurrum. Fyrst er gróflega hrist úr honum, síðan er hann hitaður og krafsaður í vél. Eft- ir það er hann fjaðratíndur, sem er mjög seinlegt. Það tekur mig allt sum- arið ef ég er ein, en oftast koma ein- hverjir að hjálpa mér. Mamma hjálp- aði mér í sumar, vildi að ég yrði búin fyrir afmælið mitt - og það tókst.“ Hin síunga Ulla varð sextíu ára í sumar. Afmælisveislan var í Hrísey að venju. Síðasta stórafmælisboð fjöl- skyldunnar var í Hrísey, þegar Sæ- mundur varð níræður. „Ég á afmæli 15. ágúst, afmæli Sæmundar var 16. ágúst - svo að afmælin voru alltaf sameinuð. Þetta var allt í tröllabönd- um,“ segir Úlla og hlær. Oft er talað um tíu til tuttugu ára aldursmun á hjónum, Hvernig var að vera gift manni sem var 35 árum eldri? „Annað fólk fann meira fyrir ald- ursmun okkar en við gerðum. Hjóna- band okkar var einstaklega gott. Sæ- mundur gaf mér mikla ást og um- hyggju og ég fann svo mikið öryggi hjá honum.“ Úlla er hugsi um hríð, segir síðan: „Auðvitað var þetta erfitt fyrst. Umhverfið á erfitt með að sætta sig við allt sem brýtur í bága við hefðirn- ar. Margir undruðust, hvernig ég, rúm- lega tvítug, gæti gifst manni yfir fimmtugt, en þegar ég lít til baka undrast ég kjark Sæmundar að þora að taka slíka áhættu.“ Málverk á vegg sýnir fríðan vanga- svip Sæmundar með fjallið - hinn dulúðga Kaldbak í baksýn. Svipmikið amamef Sæmundar sýnist sverja sig í ætt við landslagið - viðurnefni hans, Hríseyjarjarlinn, gefur í skyn að mað- urinn hafi verið sterkur persónuleiki. Viltu gefa okkur svipmynd af Sæmundi? „Karlmannlegur, töfrandi maður, öruggur með sig og aldrei að tvínóna Fjölskyldan, Sæmundur yngri, Úlla, Sæmundur, Unnur og Geir. við hlutina. Eina minnimáttarkennd hans var að hafa ekki getað menntað sig, en það bætti hann sér upp með sjálfsnámi, var alltaf að lesa sér til fróðleiks. Hann var heilsulaus ungur, en þeim mun hraustari eldri maður. Sæmundur var aldrei gamall, en log- andi eldhugi með áhuga á öllu sem hann var að gera, mikill stemmnings- maður og skemmtilega fljótur að grípa augnablikið.“ Hver eru eftirminnilegustu augnablikin með Sæmundi, ef þú vilt deila þeim með okkur? „Þau eru ótal mörg og tengjast flest Ystabæ. Ég man sérstaklega eftir einni veiðiferð um sólstöðuleytið, blanka- logn og umhverfið eins fagurt og það getur orðið í Eyjafirði. Veiðin var svo góð, að við stóðum í þorsk upp fyrir hné, en gátum ekki hætt - veðrið var svo skemmtilegt og við ein í litla ára- bátnum. Svipmynd Úllu af henni og Sæ- mundi í litlum árabát, umvafin bleik- um næturhimni Norðursins, minnir ekki lítið á skáldsögu Hemingway’s „Gamli maðurinn og hafið.“ Frá litlum árabát við nyrstu höf ber minningin Úllu til Karabíska hafsins, þar sigldu þau hjón með skemmtiferðaskipi. „Við dvöldum eina viku á Bar- bados, en sigldum síðan á milli eyj- anna. Það var mikill munaður að upp- lifa. Sæmundur var mikill heimsborg- ari og veitti höfðinglega - frábærlega Óðalsbóndinn Sæmundur Stefánsson. skemmtilegt að vera með honum. Þetta var árið 1983, þá var Sæmundur 78 ára ungur maður, en ég 43 ára. Sæmundur var ótrúlega ern og hress, nema síðustu þrjú æviárin, hann deyr á 92. aldursári. Börnin hafa haft orð á því, að þau hafi aldrei fundið fyrir því að eiga fullorðinn föður. Sæ- mundur var svo lifandi og kraftmikill. í okkar tilviki var aldursmunurinn af hinu góða.“ Úlla Knudsen er danskt nafn, enda er Úlla dönsk í föðurætt, fædd og upp- alin í Kaupmannahöfn til tólf ára ald- 27

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.