Listin að lifa - 01.09.2000, Side 30

Listin að lifa - 01.09.2000, Side 30
Lára Björnsdóttir félagsmálastjóri situr fyrir svörum Reykjavíkurborg hefur breytt fé- lagslegri ímynd sinni. Félagsmála- stofnun Reykjavíkur heitir nú Fé- lagsþjónustan í Reykjavík. Sjálft heitið felur í sér þá breytingu að fé- lagsmálin eru ekki lengur skilgreind sem stofnun eða stofnanabákn sem oft er erfitt að nálgast. Nú á hver starfsmaður að nálgast notendur, ekki skjólstæðinga, á jafnréttis- grunni og semja sig eftir ábending- uní þeirra um bætta þjónustu. Öldr- unarþjónustudeild er ekki lengur til. „Aðgreining aldraðra frá öðrum ald- urshópum var óeðlileg, aldraður ein- staklingur getur átt meira sameiginlegt með yngri manneskju en jafnaldra sín- um. Nú ætlum við að láta á það reyna að opna allar félagsmiðstöðvar í Reykjavík fyrir öllum aldurshópum,“ segir Lára Björnsdóttir félagsmála- stjóri. Blómstrandi mannlíf - mannvirð- ing í orði og verki eru kjörorð endur- mótaðrar Félagsþjónustu í Reykjavík. Að sögn Láru er Félagsþjónustan nú í raun tvískipt. 1 fyrsta lagi er búið að stofna sérstaka skrifstofu barna- verndarnefndar sem sinnir öllum úr- skurðarmálum sem heyrðu til stjórn- valdsþættinum. í öðru lagi er hinn opni þáttur við notendur þjónustunnar. „Nú fá notendur meira að segja álit sitt á þjónustunni, hvernig hún er framkvæmd,“ segir Lára. „Eðlilega heyrum við oft og einatt gagnrýni um þjónustu okkar og viljum taka mark á henni. Við vitum þó ekki nóg um hvemig viðhorfin til þjónustunnar eru almennt og erum því að láta gera neytendakönnun á ýmsum sviðum, m.a. bíðum við forvitin eftir niður- stöðum frá notendum heimaþjónust- unnar. Við viljum ekki sitja hér á skrifstofunni og láta fólk úti í bæ segja hvað Félagsþjónustan sé léleg, heldur óskum við eftir að fá kvartanir beint til okkar, erum opin fyrir réttlátri gagnrýni og fyrir því að bæta okkur eins og kostur er.“ Hjá FEB í Reykjavík heyrast þær gagnrýnisraddir að starfsfólkið í heimaþjónustunni hafi ekki nógu mikinn tíma. „Aður var það ávísun á heimaþjón- ustu að verða 67 ára. Nú er gerður þjónustusamningur við hvern einstak- ling svo að margir hafa minnkað við sig. Það sem við heyrum frá þjónustu- miðstöðvunum er að gamla fólkið vill ekki þurfa að borga fyrir það að láta spjalla við sig. Neytendakönnunin mun vonandi sýna okkur hvað hægt sé að gera til að bæta heimaþjónustuna.“ Mörgum Finnst að heimaþjónusta og heimahjúkrun vinni ekki nógu vel saman. „Vissulega hefur það skapað tog- streitu að ólíkir aðilar borga og bera ábyrgð á þessu tvennu. Heimaþjónust- an er á vegum sveitarfélagsins, en heimahjúkrun á vegum ríkisins. Nú eru viðræður í gangi um að bæta þetta. Starfsmenn heimaþjónustunnar hittast á morgana og ræða saman og þar þyrfti heimahjúkrunarfólkið líka að mæta. Mjög mikilvægt er að þessir tveir aðilar geti samræmt vinnu sína til hagsbóta fyrir neytendur.“ Þið eruð líka með neytendakönn- un á aðsenda matnum. Mörgum finnst hann of fjöldaframleiddur, Lára með ábendingarkassann sem neytendur geta sett sitt álit. þar myndu frekar kjósa að fá heimilis- mat á hverjum stað. „Auðvitað verður reynt að koma til móts við kvartanir, menn hafa bara svo ólíkan smekk, sumum finnst mat- urinn ágætur, en ef allar félagsmið- stöðvarnar færu að vera með heimilis- mat yrði kostnaður alltof mikill. Auð- vitað viljum við hafa sem flesta ánægða og nú bíðum við bara eftir niðurstöðum úr neytendakönnuninni“. Er einhver von til þess að biðlisti í félagslegar flmðir styttist? „Við vonum að svo verði, einkum ef Félagsbústöðum sem reka félags- legar leiguíbúðir fyrir Reykjavíkur- borg, tekst 'að koma upp þeim fjölda íbúða sem áætlað er á næstu þremur árum“. Þið heitið því í nýrri starfsáætlun að biðtími eftir fyrsta viðtali hjá ráðgjafa verði aldrei meira en ein vika. „Við stefnum að því að hafa eina ráðgjafarskrifstofu fyrir alla aldurs- hópa í hverjum borgarhluta og skipta borginni niður í 4 borgarhluta og von- umst til þess að biðtíminn styttist með því. Skiptingin verður eftirfarandi : • Vesturbær og Miðbær inn að Lönguhlíð • Laugardalur/Laugarnes - Fossvogs- dalur - Kringla • Breiðholt og Árbær • Grafarholt og Kjalarnes 30

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.