Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.11.2014, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 06.11.2014, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Uppsagnir hjá Arctic Odda á Flateyri Arctic Oddi á Flateyri sagði upp 10 manns í síðustu viku, fjórum á miðvikudag og fimm á föstudag. Áður hafði Bryndísi Sigurðardóttur, framkvæmda- stjóra Arctic Odda á Flateyri, ver- ið sagt upp störfum. Fyrir tveimur vikum kom fram í tilkynningu að Arctic Oddi ætlaði að hætta bolfiskvinnslu á Flateyri og ein- beita sér eingöngu að eldisfiski. Í tilkynningunni sagði að leitað væri að kaupendum eða sam- starfsaðilum að bolfiskvinnsl- unni. Slátrun og vinnsla á eldis- fiski stendur nú yfir á Flateyri og Bryndís sagði í samtali við mbl.is á laugardag að enginn silungur sé væntanlegur aftur fyrr en í nóvember á næsta ári. „Ég get ekki séð að tækin þoli það að vera ekki notuð í heilt ár. Ég var ekki sátt við þessar breyt- ingar og sá ekki neitt gáfulegt í þeim,“ sagði hún. Mikið tap hefur verið á bolfiskvinnslunni en Bryndís sagði að það hefði minnkað verulega milli ára, og samanlagt tap útgerðar og vinnslu farið úr 160 milljónum króna á síðasta ári í innan við 40 milljónir í ar. „Ég skil ekki þessa ákvörðun. Við hefðum náð tapinu á næsta ári niður fyrir rekstrarkostnaðinn á húsunum. Þetta var keypt til að vinna silung, en það hefur gengið hægar að ala silunginn, t.d. gengið mjög illa að fá eldisleyfi,“ sagði Bryndís. Samkvæmt áætlunum áttu að vera komin 2.000 tonna vinnsla á regnbogasilungi í ár en það verður að sögn Bryndísar ekki fyrr en eftir tvö ár. „Það var alltaf vitað að það yrði ómögulegt að reka þetta með bolfiskvinnslu. Hún átti bara að vera uppfylling- arefni þangað til silungurinn væri kominn í hús, þá verður þetta flottur rekstur. Þetta var bara millibilsástand en allt í einu brast þolinmæðin,“ sagði Bryndís Sig- urðardóttir, framkvæmdastjóri hjá Arctic Odda á Flateyri. – smari@bb.is Hætt er við frekari uppsögnum hjá Arctic Odda á Flateyri. Sig- urður Pétursson, framkvæmda- stjóri Dýrfisks sem á Arctic Odda, segir að níu starfsmenn hafi fengið uppsagnarbréf í síð- ustu viku. „Það er í raun ekkert nýtt í þessu. Við sendum frá okk- ur fréttatilkynningu fyrir tveimur vikum þar sem við sögðum frá stöðunni hjá okkur, við ætlum að hætta í bolfiskvinnslu og einbeita okkur að fiskeldinu,“ segir Sig- urður. Í fréttatilkynningunni sagði að fyrirtækið væri að leita að kaupendum eða samstarfsað- ilum að bolfiskvinnslunni. Sig- urður segir að viðræður séu í gangi við aðila til að koma að vinnslunni en segir að þær séu á viðkvæmu stigi. Aðspurður hvort að frekari uppsagnir séu yfirvofandi segir Sigurður að það fari eftir því hvernig að samningaviðæðurnar fari. „Ef þær ganga ekki upp og við finnum ekki samstarfsaðila er ég hræddum um að fleiri fái uppsagnarbréf,“ segir hann. Á mbl.is um helgina sagði Bryndís Sigurðardóttur, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Arctic Odda og ein þeirra sem hefur verið sagt upp, að hún skilji ekki ákvörðun þeirra að hætta bolfiskvinnslu og vel hafi gengið að ná niður tapinu á vinnslunni. Sigurður vill ekkert segja um orð Bryndísar en segir að markmiðið hafi alltaf að fyrir- tækið væri fyrst og fremst fisk- eldisfyrirtæki en það hafi tekið mun lengri tíma en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hann segir tregðu við útgáfu eldisleyfa hafa tafið upp- byggingu fyrirtækisins. Frekari uppsagnir ef ekki semst um bolfiskvinnsluna Steinunn skólastjóri tímabundið Steinunn Guðmundsdóttir tekur tímabundið við starfi skólastjóra Grunnskóla Bol- ungarvíkur frá og með 1. nóvember og þar til nýr skólastjóri verður fastráðinn við skólann. Fráfarandi skóla- stjóri, Soffía Vagnsdóttir, lætur af störfum frá sama degi en hún hefur verið ráðin fræðslustjóri Akureyrarbæj- ar og eru henni þökkuð góð störf í þágu grunnskólans um leið og henni er óskað vel- farnaðar á nýjum slóðum. Ráðgert er að staðan verði auglýst laus til umsóknar eftir áramótin. Þá hefur Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir verið ráðin aðstoðarskólastjóri tíma- bundið til sama tíma. Arna Sigríður Albertsdóttir lenti í þriðja sæti í kvennaflokki í handahjólakeppninni X Hand- bike Race á Spáni á sunnudag en Arna er fyrsti Íslendingurinn til að taka þátt í þessu móti. Þjálfari hennar, Fannar Karvel, segir hana hafa haldið vel í við atvinnu- menn í íþróttinni en í fyrsta og öðru sæti urðu spænskir og rúss- neskir meistarar. „Mér gekk bet- ur með hraðann en ég átti von á,“ segir Arna í samtali við mbl.is. „Ég er náttúrulega ein að hjóla á Íslandi og þetta er fyrsta mótið sem ég tek þátt í þannig að það hefði hjálpað mér að vita aðeins meira um hvað þetta snýst og þá hefði ég getað farið ennþá hraðar. En miðað við fyrsta mót er ég bara rosalega sátt,“ heldur hún áfram. „Meðal keppenda hérna voru atvinnumenn, Ólympíumeistar- ar og heimsmeistarar ásamt ný- liðum í sportinu einsog Arna er,“ segir Fannar. „Hún hafði hins- vegar í fullu tré við alla og miðað við tíma þá ætti hún að eiga greið- an aðgang á bæði heimsbikars- og Evrópumótaröðina á næsta ári en þangað er stefnan sett núna.“ „Núna er langþráð smá frí í svona þrjár vikur allavega og svo byrj- ar bara nýtt uppbyggingartíma- bil. Vonandi get ég farið út í æfingabúðir á meðan það er vet- ur heima,“ segir Arna. „Stefnan er að fara á Ólympíuleikana 2016 og ég á eftir að þurfa að fara á mörg mót og ná góðum árangri en ég held mig við það plan.“ Arna Sigríður í þriðja sæti á Spáni

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.