Bæjarins besta - 06.11.2014, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014
Sælkeri vikunnar er Sigríður Inga Sigurjónsdóttir á Ísafirði
Humarsúpa og kjúklingaréttur
Ég ætla að bjóða ykkur upp
á bragðgóða humarsúpu og frá-
bæran kjúklingarétt sem er
mjög ljúffengur. Ávaxtarsalat
uppskriftin kemur frá norskri
bekkjarsystur minni, síðan ég
var í námi í Noregi. Mér finnst
gaman að elda og finna upp-
skriftir og prófa eitthvað nýtt.
Svo er ég svo heppin að eiga
karl sem borðar allt sem tönn
á festir og það er ekki leiðin-
legt.
Humarsúpa
Humar (700- 800 gr )
Smjör til steikingar
Karrý 2 tsk.
Paprikuduft 1 tsk.
Paprika rauð
Laukur
Tómat purré (lítil dós)
Rjómi 500 ml.
Hvítvín 2 dl. eða eftir smekk
Fiskikraftur 1-2 tsk
Tasty fljótandi humarkraftur
4-6 msk. (eða eftir smekk)
1/2 lítri vatn
Salt og pipar
Skerið niður papriku og lauk
og steikið í potti. Næst er krydd-
ið,saltið og piparinn settur út í og
því næst tómatpúrré, hvítvín og
vatn og þetta látið sjóða vel. Þá
er settur rjómi og hitað að suðu.
Að lokum er humarinn settur út í
og hann látinn hitna í gegn. Þetta
er svo borið fram með hvítlauks-
brauði.
Ljúffengur kjúklingaréttur
4-5 kjúklingabringur, skornar í
sneiðar
3 msk olia
2 litlir laukar, saxaðir
1 ½ msk gott karrý (50-50 karry
og karry delux)
4 hvítlauksrif, söxuð
1 ½ cm ferskt engifer, raspað
1 kjúklingarteningur
1 ½ dl gulrótarsafi (granini)
1 ½ dl eplasafi
250 gr kókosmjólk
1 tsk salt
1 tsk sykur
2 tómatar, saxaðir
1 msk ferskt kóriander, saxað
1 hrein jógúrt
þá. Grófhakka hneturnar og setja
þetta allt í stóra skál.Hella sólsaf-
anum yfir salatið. Þetta er látið
standa í hálftíma áður en þetta er
borið fram með vanilusósu og
þeyttum rjóma.
Vanillusósa
1 egg 4 dl mjólk eða mat-
reiðslurjómi
2 tsk. Kartöflumjöl
1-2 msk sykur
1 msk. Vanilusykur
Blanda eggi, mjólk og kart-
öflumjöli í pott. Hræra í allan
tímann meðan þetta hitnar.
Taka svo pottinn af hellunni
þegar sósan byrjar að þykkna.
Þetta má ekki sjóða. Smakka
til með vanilusykrinum. Setja
í ísskáp og hún er svo borin
fram ísköld.
Ég skora á Konný Björk
Viðarsdóttur og Júlíus Símon
Pálsson að vera næstu sæl-
kerar vikunnar.
Hitið olíu og steikið lauk með
karrý. Setjið því næst kjúkling,
kjúklingatening, hvítlauk og
engifer út á pönnuna og steikið.
Setjið svo gulrótarsafa, eplasafa,
kókosmjólk, salt og sykur og látið
malla í 15-25 mín. Setjið svo
kóríander, tómata og hreina jóg-
úrt saman við í lokin rétt áður en
borið er fram. Gott er að bera
fram með salati, hrísgrjónum og
hvítlauksbrauði.
Ávaxtasalat með vanilusósu
(fyrir 4)
2 appelsínur
2 epli
2 perur
2-3 kíví
1-2 bananar
1/2 dl heslishnetur
½ dl. Rúsínur
2 dl appelsínusafi (sólsafi)
Smá sykur
Skræla appelsínurnar, eplin,
perurnar og skera í litla bita.Taka
kjarnann úr eplunum og perun-
um.Bananarnir eru skornir í
skífur eftir að búið er að afhýða
Sértækur kvóti mögulega endurauglýstur
Skoða þarf hvort ekki þurfi að
auglýsa upp á nýtt 300 sértækan
byggðakvóta Flateyrar. Arctic
Oddi ehf. á Flateyri er með samn-
ing við Byggðastofnun um veiðar
og vinnslu á kvótanum. „Í kjölfar
yfirlýsingar Arctic Odda um að
þeir hyggist hætta bolfiskvinnslu
þarf að skoða hvort að sértæki
kvótinn verði ekki endurauglýst-
ur,“ segir Gísli Halldórsson, bæj-
arstjóri Ísafjarðarbæjar. Eftir að
Vísir hf. tilkynnti að fyrirtækið
hætti allri fiskvinnslu á Þingeyri
brást Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra við með því
að ráðstafa 400 tonna sértækum
byggðakvóta til þorpsins.
„Kvótinn var auglýstur í sumar
og tveir aðilar sóttu um en annar
aðilin virðist hafa dregið sig til
baka og það þarf að skoða hvort
það þurfi ekki að auglýsa upp á
nýtt,“ segir Gísli Halldór. Þriðja
þorpið í Ísafjarðarbæ sem hefur
fengið sértækan byggðakvóta er
Suðureyri en þar er Íslandssaga
hf. með samning við Byggða-
stofnun um veiðar og vinnslu á
400 tonna kvóta.
Heydalur í Mjóafirði í Ísafjarð-
ardjúpi eru einn af þeim stöðum
sem reka ferðaþjónustu allt árið
um kring. Þar búa Stella Guð-
mundsdóttir og Gísli Pálmason
og ferðamenn sem þangað koma
geta valið úr ævintýralega mörg-
um afþreyingum, sem taka þó
mið af bæði árstíma og veðri.
Yfir vetrartímann eru norður-
ljósaferðirnar vinsælar hjá þeim
Stellu og Gísla og eins koma
rjúpnaskyttur oft ár eftir ár til
þeirra um rjúpnahelgarnar.
„Veturinn fer ágætlega af stað.
Það eru rjúpnahelgar framundan
og fyrstu norðurljósafararnir
komu á laugardag. Þeir voru frá
Þýskalandi en ferðafólkið kemur
mikið þaðan. Líka frá Banda-
ríkjunum og svo kemur hópur
frá Singapore bráðum.“ Gestgjaf-
arnir gera ýmislegt með ferða-
fólkinu. Þau flakka meðal annars
um nágrannabyggðirnar og líta á
það sem markvert er. Þá er farið
í reiðtúr eða göngu, eftir því
hvernig viðrar. „Það er ekki hægt
að dorga í gegnum ís á þessum
árstíma og hestarnir fara að detta
út, en við förum til dæmis dags-
ferðir á Ísafjörð og komum við í
Litlabæ og Melrakkasetrinu,“
segir Stella.
Þó nokkrir gestir hafa boðað
komu sína í Heydal í vetur. Gest-
gjafarnir hafa fengið fyrirspurnir
um það hvort þau hafi opið yfir
jólin en svo er ekki þó gestir
komi bæði fyrir og eftir hátíðarn-
ar. „Við erum opin fyrir öllu og
það er búið að panta hjá okkur á
nýársdag. Þetta er ekki bara erlent
ferðafólk sem kemur heldur líka
Íslendingar og oft hópar eða fólk
sem kemur frá nágrannabyggð-
unum í rólegheit yfir helgi, þetta
er svo stutt og notalegt að fara,“
segir Stella.
– sfg@bb.is
„Stutt og notalegt að fara“
Rjúpnahelgarnar eru
oft fjörugar í Heydal.