Bæjarins besta


Bæjarins besta - 06.11.2014, Page 15

Bæjarins besta - 06.11.2014, Page 15
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 15 Lausn á síðustu krossgátu Sudoku þrautir ÞjónustuauglýsingarFækkar í Ísafjarðarbæ Íbúum Ísafjarðarbæjar fækkaði um fjörutíu manns milli annars og þriðja ársfjórðungs þessa árs, eða úr 3.670 í 3.630, að því er fram kemur í nýjum mannfjölda- tölum Hagstofunnar. Íbúum fækkar um fimmtíu frá þriðja ársfjórðungi síðasta árs til sama ársfjórðungs í ár. Þann 1. janúar í ár voru íbúar sveitarfé- lagsins 3.639 og er heildarfækk- un ársins því níu manns. Fjöldi gjald- þrota svipaður Gjaldþrotum fyrirtækja á Vest- fjörðum fækkaði um tvö milli ára í fyrra. Árið 2013 voru 18 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota en 20 árið 2012. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Á landinu öllu fækkaði gjald- þrotum einkahlutafélaga á síð- ustu tólf mánuðum, frá október 2013 til september 2014 um 17 prósent samanborið við tólf mán- uði þar á undan. Alls voru 822 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Fækkar um 50 á Vestfjörðum Vestfirðingum hefur fækkað um fimmtíu manns sé þriðji árs- fjórðungur á síðasta ári borinn saman við sama ársfjórðung í ár. Í lok þriðja ársfjórðungs í fyrra voru Vestfirðingar 7.020 en í lok sama ársfjórðungs í ár hafði þeim fækkað niður í 6.970. Í Vesturbyggð, Tálknafjarðar- hreppi, Kaldrananeshreppi fjölg- ar milli ársfjórðunga. Í Súðavík- urhreppi er íbúafjöldinn sá sami en í öðrum sveitarfélögum fækk- ar íbúum. Ríkið styðji við leit að heitu vatni Fjórðungsþing Vestfirðinga leggur þunga áherslu á að ríkis- valdið styðji við sveitarfélögin til að vinna að framtíðarlausnum á orkubúskap Vestfjarða, eins og t.d. leita að heitu vatni og lagn- ingu hitaveitu þar sem það er mögulegt. Í ályktun fjórðungs- þingsins sem haldið var á Þing- eyri fyrir stuttu var skorað á stjórn- völd að að fara að tillögum starfs- hóps um jöfnun húshitunarkostn- aðar sem starfaði á vegum iðn- aðarráðuneytisins og skilaði niðurstöðum í skýrslu starfshóps um breytingar á niðurgreiðslum til húshitunar í desember 2011. Auk þess sem auka þarf niður- greiðslur til húshitunar til að jafna kostnað á milli kaldra svæða.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.