Listin að lifa - 01.06.2010, Síða 19
þomar í pottinum gefa kristallamir vatnið frá sér
smátt og smátt þannig að það verður aðgengilegt
plöntunum. Annað ráð er að fylla hálfs líters gosflösku
(eða eins líters flösku) af vatni og stinga henni á hvolf
ofan í blómakerið. A meðan moldin er rök þá rennur
lítið sem ekkert vatn úr flöskunni en þegar þomar þá
seytlar vatnið smám saman úr flöskunni og vökvar
þannig plöntumar. I sumum tilfellum er nauðsynlegt
að styðja við flöskuna þannig að hún haldist upprétt
en detti ekki á viðkvæmar plöntumar og brjóti þær.
Gömlu, ljótu útileguhnífapörin henta einstaklega vel í
svona verkefni. Ef maður er svo heppinn að það rigni
inn á svalimar þá er um að gera að reyna að koma
pottunum þannig fyrir að það rigni ofan í þá.
Áburðargjöf
Áburðargjöf er ákaflega mikilvæg þegar um ræktun í
pottum er að ræða. Þegar við plöntum í kerin okkar og
pottana veljum við að sjálfsögðu sérstaka pottamold
sem er blönduð áburði þannig að plöntumar fái
ákveðið nesti í upphafí. Nestið dugir hins vegar
ekki allt sumarið og það er nauðsynlegt að vökva
plöntumar reglulega með blómaáburði til að tryggja
að þær haldist grænar og blómstri eins og þær eigi
lífið að leysa. Best er að nota bara sama áburð á
kerin og pottana eins og maður notar á inniblómin,
allar plöntur þurfa í gmnninn sömu næringarefni.
Leiðbeiningar um blöndun áburðarins í vatn standa
yfírleitt utan á brúsanum en gott er að miða við að
setja eins og einn tappa í tvo lítra af vatni. Það þarf
að vökva með áburði að minnsta kosti tvisvar í viku
en það er allt í lagi að vökva alltaf með áburði þegar
plöntumar em orðnar stórar og þurfa meiri næringu.
Best er að vökva annaðhvort snemma á morgnana
áður en fer að hitna verulega á svölunum eða á kvöldin
þegar sólin gengur til viðar. Ef maður vökvar yfir
plönturnar í mesta hitanum um miðjan daginn verða
plöntumar fyrir áfalli. Einnig er rétt að gæta þess að
vökva frekar sjaldnar og gera það þá vel heldur en
að láta smáskvettu yfír blöðin duga, það gerir ekkert
gagn.
Meindýr
Blaðlús getur alveg gert vart við sig á svölunum, rétt
eins og í görðum. Hægt er að nota plöntulyf eins og
permasect á blaðlúsina en sumir kjósa frekar að nota
vistvænni aðferðir og blanda brúnsápu í volgt vatn
og úða því á lúsina, sápan virkar ágætlega gegn lús.
Hlutföllin em um það bil 1 dl af sápu í um 5 1 af volgu
vatni. Þessu úðar maður með úðabrúsa á þær plöntur
þar sem maður sér óvæmna en athugið að hér er ekki
um fyrirbyggjandi aðgerð að ræða, það er til lítils
að úða plöntulyfjum eða sápu á plöntur nema það sé
raunverulega einhver sýnileg óværa til staðar.
Skjól
Við val á plöntum á svalimar þarf að huga vel að
skjóli. Yfirleitt fínnst plöntum ekkert sérstakt að vera
í stöðugu roki, þær þoma hraðar en ella og blöð og
blóm tætast til og geta skemmst. Efveðurspáin er slæm
er hyggilegt að taka hengipotta niður af veggjum og
setja þá í skjól upp við vegg þar til veðrið er afstaðið.
Fjölmargir em komnir með yfirbyggðar svalir og er
það algjör bylting því það lengir ræktunartímann yfir
árið og gerir manni kleift að rækta hitakærari tegundir
en ella.
Plöntuval
Hvaða plöntur em það svo sem maður getur ræktað í
litlu plássi? Að sjálfsögðu er rétt að velja plöntur sem
taka ekki of mikið pláss. Flestar gerðir sumarblóma
henta vel og er um að gera að prófa sig áfram þar
til maður hefur fundið þær tegundir sem dafna best
á viðkomandi svölum. Skjólið á svölunum stýrir
því að einhverju leyti hversu hávaxnar plöntur hægt
er að rækta því almennt þola lægri plöntur betur
vindálag. Kryddjurtir er alveg tilvalið að rækta
í pottum á svölunum og em þær ekki bara góðar á
bragðið, heldur mesta augnayndi líka. Graslaukur,
piparmynta, blóðberg, steinselja, dill og oregano em
allt tegundir sem þrífast vel saman í pottum og ekki
spillir að þegar vökvað er yfir þær blossar upp alveg
dásamlegur ilmur. Hægt er að rækta ýmsar tegundir
af salatplöntum, sérstaklega blaðsalöt þar sem maður
tekur eitt og eitt blað í einu og hefur með máltíðinni.
Mikilvægt er að passa vel upp á vökvun og áburðargjöf
salatplantna því ef þær lenda í þurrki verða þær svo
beiskar á bragðið. Grænkál er mjög sniðug planta til
að rækta á svölum en almennt taka kálplöntur mikið
pláss þannig að þær em kannski ekki mjög hentugar
í svalaræktunina. Fjölærar plöntur og skrautmnna
er vel hægt að rækta á svölum en þá þarf að passa
upp á að draga pottana í skjól yfir veturinn. Þegar
mesti kuldatíminn er afstaðinn þarf að vökva einstaka
sinnum í pottana og þegar plöntumar fara að gægjast
upp er mikilvægt að huga einnig að áburðargjöf.
Það að skapa sælureit á svölunum er ekkert tiltökumál
hafí maður til þess áhuga og tíma. Ekkert er eins
táknrænt fyrir sumarið eins og blómlegur gróður og
fátt er eins friðsælt og að sitja innan um plönturnar
og heyra flugumar suða þegar
þær flögra á milli blómanna.
Þetta er því bara spuming um
það hvað maður treystir sér
til að gera mikið, jafnvel eitt
fallegt blóm getur breytt gráum
svölum í sælureit.
Guðríður Helgadóttir,
garðyrkjufrœöingur
gurry@lbhi.is