Fréttatíminn - 27.02.2015, Page 8
Afhverju er fókusinn á ristilkrabba-
mein í Mottumars þetta árið?
„Það er ýmislegt sem mælir með
því að fókusa á ristilkrabbamein.
Hingað til hefur verið lögð áhersla
á þessi sérkrabbamein karla eins og
til dæmis blöðruhálskirtilskrabba-
mein og krabbamein í eistum. Vissu-
lega er blöðruhálskrabbamein al-
gengt en eistakrabbamein er frekar
sjaldgæft og það deyr sem betur
fer eiginlega enginn úr því lengur.
Í þessum samanburði er eiginlega
bara kjánalegt að hugsa aldrei um
ristilinn. Þó að ristilkrabbamein sé
líka algengt hjá konum, þá er þetta
líka sjúkdómur sem er að taka veru-
legan toll af karlmönnum á landinu.“
Rannsóknir sýna að ristilkrabba-
mein er mun algengara á Vestur-
löndum en á flestum öðrum svæðum
hnattarins. Hvers vegna er það?
„Tíðnin er mest í Norður Amer-
íku, Evrópu, Ástralíu og Japan og
flestar rannsóknir telja að það sé af-
leiðing þessa vestræna lífsstíls. Það
eru sterkar líkur á að ristilkrabba-
mein sé mjög tengt vestrænu mat-
aræði og hafa menn helst verið að
einblína á rautt kjöt í því sambandi.
Rannsóknir benda til þess að
aukið vægi ávaxta og grænmetis á
kostnað kaloríuríks fæðis með ríku-
legri dýrafitu og einkum rauðs kjöt-
metis, geti dregið úr líkum á því að
fá ristilkrabbamein.“
„Trefjaríkt fæði hefur einnig verið
talið vernda en reyndar eru rann-
sóknir sem snúa að því ekki afger-
andi. Það hefur verið talað um að
trefjaríkt fæði, sem er hlutfallslega
í miklum mæli í fæðunni í vanþró-
uðum löndum, auki umsetningu í
görnunum og flýti fyrir því að fæðan
gangi niður. Því hefur komið fram
tilgáta um að þau efni í fæðunni sem
mögulega geta verið krabbameins-
valdandi hafi þannig styttri tíma
til að valda skaða, ef fæðan gengur
hraðar í gegnum meltingarveginn.
En rökin fyrir þessu eru ekki mjög
sterk. Svo eru mjög áhugaverðar
þær rannsóknir sem benda til þess
að ef fólk er að flytjast frá lágtíðni-
svæðum og á svæði þar sem tíðnin
er hærri þá virðist tíðni ristilkrabba-
meins hjá þeim aukast og í afkom-
endum þeirra.“
Er þá hægt að segja að ristilkrabba-
mein sé lífstílssjúkdómur?
Já, það eru sterk rök fyrir því að
ristilkrabbamein sé lífstílssjúkdóm-
ur því það virðist vera að umhverfisá-
hrif, og þá væntanlega helst fæðuá-
hrif, skipti mjög miklu máli. Offita
og kyrrseta eru líka talin skipta
miklu máli. Svo er talað um að D-vít-
amín sé verndandi og eins ákveðnar
tegundir verkjalyfja, sem nefnd eru
NSAIDs lyf, sem til dæmis magnýl
flokkast undir. En þó umhverfisá-
hrif séu mjög mikilvæg í sambandi
við áhættu að fá ristilkrabbamein
þá er sjúkdómurinn algengari í
ættingjum þeirra sem hafa greinst
með sjúkdóminn áður. Ættlægni og
erfðir skipta því máli. Einnig eru
sjúklingar með ákveðnar gerðir af
ristilbólgu í meiri áhættu. Hafa ber
þó í huga að ristilkrabbamein getur
mjög lengi verið án einkenna og því
alloft orðið útbreitt þegar það loks
greinist. Því er mikilvægt að huga
að hvort forvarnir og eins skimun
fyrir sjúkdómnum geti ekki hjálpað
til og verið réttlætanlegar.“
Rannsóknir sýna töluverða aukn-
ingu ristikrabbameins og þá sérstak-
lega á Norðurlöndum?
„Það hefur verið aukning sem er
misáberandi eftir löndum en hefur
verið stigvaxandi undanfarna ára-
tugi á m.a. Norðurlöndum. Þetta á
við á Íslandi, en þó virðist sem allra
síðustu ár gæti verið vísbending um
að tíðnin sé byrjuð að lækka. Það er
þó of snemmt að fullyrða það enn.
Það er mjög spennandi að vita hvað
verður í framhaldinu því mikið hef-
ur verið gert af ristilspeglunum á
Íslandi og ef það sjást separ þá er
reynt að fylgjast með þeim eða fjar-
lægja þá. Vissar gerðir af sepum í
risli eru talin forstig fyrir ristil-
krabbameini og því ekki ólíklegt að
mikil virkni í að fjarlægja slíka sepa
komi fram með tímanum í lækkun
á tíðni krabbameinsins. Á Norður-
löndunum er tíðnin hæst í Noregi
og Danmörku, hjá báðum kynjum.
Erfitt er að geta sér til um skýringar
á því.“
Ætti að skima fyrir ristilkrabba-
meini eftir ákveðinn aldur?
„Það er óhætt að segja að upp úr
fimmtugu ætti fólk að hafa ristil-
krabba í huga og jafnvel huga að
því að fara í ristilspeglun. Þó ristil-
krabbamein komi fyrir hjá einstak-
lingum fyrir fimmtugt þá byrjar
tíðnin ekki aukast að marki fyrr
en upp úr því og langflestir sem
greinast eru eldri en 60 ára. Þó að
ristillinn sé ekki opinn fyrir öllum
að skoða á svipaðan máta og t.d.
húðin, þá er hægt að skoða hann vel
nú orðið því það eru komin svo góð
ristilspeglunartæki og í höndum vel
þjálfaðra lækna, meltingarsérfræð-
inga eða meltingarskurðlækna, er
slík rannsókn árangursrík og sjúk-
lingnum ekki mjög erfið. Ristil-
krabbamein er eitt þeirra meina sem
mögulegt er að greina snemma með
skimun.“
„Það eru mjög sterk rök fyrir því
að þjóðin ætti að taka upp skipulega
leit fyrir ristilkrabbameini. Það
vantar bara herslumuninn til að
klára dæmið og drífa það af. Pers-
ónulega myndi ég ekki mæla með
því að farið sé af stað hér og þar með
óskipulegum hætti, því þá er svo erf-
itt að meta árangurinn eftir á. Mun
betra væri að þetta væri miðlæg
skráning sem héldi utan um allar
niðurstöður og áætlanir þannig að
það væri ekki ofkallað eða vankallað
á fólk í skimun. 50 ára er sennilega
of ungt til að borgi sig að byrja þá
vegna fárra tilfella, en upp úr 55 ára
er talið borga sig.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
LýðheiLsa MottuMars
Ristilkrabbamein er
lífstílssjúkdómur
Á hverju ári látast að meðaltali um 52 manns úr ristilkrabbameini á Íslandi, sem herjar á bæði
kynin en er tíðara hjá körlum. Í ár er áhersla Motturmars, vitundarátaks krabbameina í körlum,
á ristilkrabbamein. Jón Gunnlaugur Jónasson, yfirlæknir krabbameinsskrár og prófessor í
meinafræði við læknadeild Háskóla Íslands, hefur rannsakað ristilkrabbamein í mörg ár. Hann
segir flestar rannsóknir benda til þess að mikla aukningu ristilkrabbameins megi rekja til
vestræns mataræðis.
Jón Gunn-
laugur
Jónasson,
yfirlæknir
krabbameins-
skrár og
prófessor í
meinafræði
við læknadeild
Háskóla Ís-
lands, segir
sterk rök vera
fyrir því að
þjóðin taki
upp skipulega
leit fyrir ristil-
krabbameini.
Ljósmynd/Hari
Ristil- og endaþarmskrabbamein
Karlar Konur
Meðalfjöldi tilfella á ári 72 61
Hlutfall af öllum meinum 9,7% 8,7%
Meðalaldur við greiningu 69 ár 69 ár
Meðalfjöldi látinna á ári 29 23
Fjöldi á lífi í árslok 2012 582 543
Upplýsingar úr krabbameinsskrá Íslands (2008-2012)
Silkimjúk lífræn
soja- og hrísmjólk
www.ricedream.eu
Vor 5 28. apríl - 3. maí
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Í þessari rómantísku ferð njótum við þýskrar vorfegurðar
á ferð um borgirnar Wiesbaden, Rüdesheim, Koblenz og
Heidelberg. Siglt verður eftir tignarlegu ánni Rín, milli
stórfenglegra vínhæða þekktustu vínræktarsvæða heims.
Verð: 123.500 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Íris Sveinsdóttir
Vor í Wiesbaden
Höfum rútur af öllum
stærðum og gerðum,
vel búnar til aksturs
hvort sem er innan-
eða utanbæjar.
ÞÓRSMÖRK OG
LANDMANNALAUGAR
Daglegar ferðir frá 13. júní til 15. september.
Ekið í Langadal, Bása og að skála í
Landmannalaugum. Tilvalið að fara dagsferð
eða gista á milli ferða. Skoðið tímatöflur og
brottfararstaði á trex.is.
Hesthálsi 10 - 110 Reykjavík - sími: 587 6000 - info@trex.is - www.trex.is
TAKTU RÚTU!
Bókanir &upplýsingar á TREX.IS
LEITIÐ TILBOÐA!
8 fréttir Helgin 27. febrúar–1. mars 2015