Fréttatíminn - 27.02.2015, Page 50
50 matur & vín Helgin 27. febrúar–1. mars 2015
Vín vikunnar
Hér er hinni hefð-
bundnu Toskana-þrúgu,
Sangiovese, blandað með
syrah og merlot. Það
breytir því þó ekki að þetta,
eins og svo mörg léttari og
ávaxtarík Toskana-vín, er
ekta pastavín. Berjaríkt og
milt en þú tekur alveg eftir
tanníninu. Er á mjög góðu
verði og þar af leiðandi góð
kaup sem hversdagsvín.
Þetta telst til léttari
chardonnay-flokksins.
Ungt, sýruríkt og
frískandi og ávaxtaríkt
með ferskjum og stein-
efnum. Ekkert flókið
hér á ferð. Hentar við
hin ýmsu tilefni sem
fordrykkur eða bara
eitt og sér en gengur
líka vel með skelfiski og
ef það leynist sítróna í
sósu eða maríneringu.
Vá, hvað þetta er gott vín.
Rauðvín frá Chile verða
ekkert mikið betri en þetta.
Dökkt og fágað með seið-
andi eik og sveit. Þroskaður
ávöxtur og krydd sem kemur
saman í frábærri heild. Eftir-
bragðið er langt og ljúft og
þú heldur áfram að smjatta á
bragðinu. Þetta kostar alveg
skildinginn er vel þess virði
ef vel á að gera við sig.
Banfi Rivo Al Poggio
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Blanda af sangiovese,
syrah og merlot
Uppruni: Toskana, Ítalíu
Styrkleiki: 12,5%
Verð í Vínbúðunum:
kr. 1.876
Concha y Toro Terrunyo Block 27
Carmenere
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Carmenere
Uppruni: Cachapoal, Chile
Styrkleiki: 14,5%
Verð í Vínbúðunum: kr. 4.999
Cono Sur Chardonnay Bicicleta
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Chardonnay
Uppruni: Chile
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum: kr.
1.876
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
BOSTON f rá
Tímabi l : mars - maí 2015
17.999 kr.
TAKMARKAÐ MAGN Í BOÐI
BÓKAÐU NÚNA Á WOWAIR.IS
Ljúfmeti frá öllum landshlutum
Matarmarkaður Búrsins fer fram um helgina í sjötta sinn og um er að ræða stærsta matarmarkað landsins. Eirný Sigurðardóttir, eigandi Búrsins, stofn-
aði matarmarkaðinn á sínum tíma og hún lofar súrum, sætum og safaríkum markaði. Yfir 45 framleiðendur koma víðs vegar að hlaðnir ljúfmeti til sölu
og smakks. Íslenskt veðurfar mun ekki hafa áhrif á matarmarkaðinn, en sumir þátttakendur hafa lagt land undir fót löngu áður en markaðurinn hefst.
Búrið
Reykjavík
Búrið er ostaverslun í Reykjavík
sem býður upp á besta óþefinn
í bænum: dýrlega þefjandi osta,
ólífur, smurálegg, sælkerakjöt-
meti og allt annað nasl sem bætir,
hressir og kætir.
Erpsstaðir í Dölum
Búðardalur
Rjómabúið Erpsstaðir framleiðir
rjómaís, skyr osta og konfekt.
Framleiðslan fer fram á býlinu
sjálfu og eru eigendur menntaðir
mjólkurfræðingar.
Friðheimar
Bláskógabyggð
Í Friðheimum eru ræktaðir tóm-
atar allan ársins hring í raflýstum
gróðurhúsum, þrátt fyrir langan
og dimman vetur. Fjölskyldan
tekur líka á móti gestum, sýnir
þeim hvernig tómataræktunin
gengur fyrir sig – og gefur þeim að
smakka á afurðunum.
Garðyrkjustöðin
Engi
Laugarás í Biskupstungum
Garðyrkjustöðin Engi er í um 100
km frá Reykjavík. Þar eru rækt-
aðar kryddjurtir, grænmeti og
ávextir, bæði í heitum og köldum
gróðurhúsum sem og í útiræktun,
og er starfsemin vottuð af vott-
unarstofunni Túni.
Grímur kokkur
Vestmannaeyjar
Markmið Gríms kokks er að fram-
leiða aðeins fyrsta flokks vöru úr
fyrsta flokks hráefni sem er bæði
holl, bragðgóð og fljótlegt að
framreiða.
Háafell
Geitfjársetur
Borgarnes
Á Háafelli er unnið að tilraunum
varðandi nýtingu geitaafurða.
Ferðafólk getur komið við og
fengið að kynnast geitunum af
eigin raun. Kjöt er selt af þeim
dýrum sem slátrað
er á haustin. Einnig
eru til sölu snyrtivörur
sem unnar eru úr
geitaafurðum og jurtum.
Holt og heiðar
Akurgerði, Hallormsstað
Eigendur Holts og heiða hafa
safnað birkisafa og framleitt
birkisíróp frá árinu 2010. Íslenskt
hráefni er haft í hávegum, svo
sem ber, rabarbari og sveppir,
einkum lerki og furusveppir.
Kanínur ehf.
Syðri-Kárastaðir,
Hvammstanga
Birgit Kositzke stofnaði fyrirtækið
árið 2011. Eitt helsta markmið
félagsins er að bjóða kanínukjöt á
markaði hér á landi.
Mýranaut
Leirulæk – Borgarnesi
Gæða ungnautakjöt, slátrað
aðeins í viðurkenndum slátur-
húsum. Íslensk framleiðsla með
engum aukaefnum, beint frá býli.
Rabbarbía
Langamýri á Skeiðum
Rabarbara akrar á Löngumýri
eru lífrænt vottaðir. Rabarbía
framleiðir sultu og síróp og eru
allar vörurnar handgerðar af alúð
bændanna.
Seglbúðir
Kirkjubæjarklaustur
Sláturhúsið í Seglbúðum býður
upp á fyrsta flokks sauðfjárgripi.
Kjötinu er gefinn góður tími til að
hanga við ákjósanlegt hitastig
sem stuðlar að meyrnun kjötsins.
Þessi tími sem kjötið fær til að
hanga ásamt lágmarks flutning á
lifandi dýrum fyrir slátrun skilar
sér í meyrara og betra kjöti til
neytandans.
Svandís kandís
Selfoss
Handgerður brjóstsykur frá potti
ofan í poka, án allra aukaefna.
12
11
3
4
5
1
6
9
2
8
7
10
KJöT og fisKur
sælKeraMaTur
grænMeTi og ávexTir
1 2 3 4 5 6
7
8
9
10
11
12