Fréttatíminn - 29.05.2015, Blaðsíða 4
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Í þessari stórbrotnu ferð um svissnesku Alpana njótum
við svæðisins Valais, göngum um fjalllendi með
blómstrandi engjum og í gegnum aldagamla greniskóga.
Gengið verður að Zermatt, frægasta fjalli svæðisins og
um Bettmeralpana. Gist á einu hóteli alla ferðina.
Verð: 249.200 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Sp
ör
e
hf
.
25. júlí - 1. ágúst
Á slóðum Valais & Zermatt
Fararstjóri: Aðalsteinn Jónsson
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Minnkandi n-átt og að Mestu
úrkoMulaust. Bjart syðra.
HöfuðBorgarsvæðið: Léttskýjað,
en dáLítiL goLa.
léttir til og Hlýnar Heldur n- og a-til.
sMá rigning s-lands.
HöfuðBorgarsvæðið: skýjað að
mestu og dropar síðdegis.
a- og na-átt og strekkingur.
rigning a-lands. kólnandi n-til.
HöfuðBorgarsvæðið: skýjað með
köfLum, en úrkomuLaust. HLýnar.
sólin nær norður en áfram
fremur svalt
svalt heimskautaloft liggur hér við akkeri.
Lægð suðvesturundan reynir að bægja því
frá um helgina. með henni rétt nær að
rigna sunnanlands seint á laugardag. Það
mun líka blása af austri sem hækkar loft-
hitann nokkuð sV- og V-lands
fram á sunnudag. sólin nær að
skína fyrir norðan. Það er að
koma júní og þá má þessari tíð
fara linna. Loft úr suðri eða
suðaustri af mildum uppruna
er þá boðið velkomið. en
spurning hvort það þekkist
heimboðið alveg strax?
8
4 5
6
9
9
6 8
9
7
11
9 5
5
9
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Reimar kjörinn formaður
reimar pétursson hæstaréttarlögmaður
var í vikunni kjörinn formaður Lög-
mannafélags íslands. Hann tekur við af
jónasi guðmundssyni sem gegnt hefur
formennsku síðustu þrjú ár.
Á Hraunið fyrir Facebook-
notkun
ungur fangi sem afplánar þriggja ára
dóm var sendur af kvíabryggju á Litla-
Hraun á dögunum fyrir brot á reglum
um netnotkun. mun brotið snúa að
facebook-notkun fangans, að því er
Vísir greinir frá.
Landsbanki hækkar vexti
Landsbankinn hefur hækkað fasta vexti
á óverðtryggðum íbúðalánum. fastir
vextir til þriggja ára hækkuðu um 0,4
prósentustig en fastir vextir til fimm ára
um 0,3 prósentustig. upplýsingafulltrúi
bankans segir við Viðskiptablaðið að
hækkanirnar séu til komnar vegna
þess að vextir á markaði séu að hækka.
Búist er við því að aðrir bankar fylgi í
kjölfarið.
257
mál bíða nú afgreiðslu alþingis.
Frábær árangur í Cannes
kvik mynd in Hrút ar, í leik stjórn gríms
Há kon ar son ar, hlaut un Certain regard
verðlaun in í sam nefnd um flokki á
kvik mynda hátíðinni í Cann es um
síðustu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem
ís lensk kvik mynd í fullri lengd vinn ur
til verðlauna á hátíðinni. Hrútar voru
frumsýndir á íslandi í vikunni.
vikan sem var
María fékk
14 stig
ísland komst ekki upp úr
undankeppninni í euro-
vision og hafnaði í 15 sæti
af 17 þjóðum á fimmtudags-
kvöldinu. maría Ólafs þótti
standa sig með ágætum en
fékk þó aðeins 14 stig. svíar
fóru með sigur af hólmi í
úrslitakeppninni.
Þ að er alveg ótrúlegt hvað fólk er hug-myndaríkt að safna,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi
UNICEF á Íslandi, en alls hafa einstaklingar
og fyrirtæki safnað 16 milljónum í neyðar-
söfnun fyrir börnin í Nepal. Rúmur mánuður
er liðinn frá stóra skjálftanum sem varð ríf-
lega 8600 manns að bana. Talið er að um 25%
látinna séu börn undir 10 ára aldri. Neyðin á
svæðinu er gífurleg og telur UNICEF að um
1,7 milljón barna séu í mikill neyð. Börnin
eru munaðarlaus, heimilislaus og hafa ekki
aðgang að heilsugæslu né hreinu vatni.
Framlögin munu meðal annars fara í að út-
vega hreint vatn og hreinlætisgögn, neyðar-
skýli, nauðsynleg lyf og sálrænan stuðning
fyrir börn sem hafa upplifað alltof mikið.
Íslendingar sýna mikla samkennd
Sigríður segir starfsmenn UNICEF vera
ótrúlega þakkláta og glaða að upplifa allan
þann stuðning sem Íslendingar sýna börn-
unum í Nepal. „Það eru svo margar fallegar
sögur að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Það
eru til dæmis vinkonurnar Tanja Kristín
Ragnarsdóttir og Katrín Sif Arnarsdóttir
sem báðar eru níu ára gamlar. Þær voru um
daginn með kaffihús í bílskúrnum heima hjá
sér þar sem foreldrunum var boðið að kaupa
kaffi, djús og meðlæti fyrir ákveðna upphæð.
Þær voru búnar að ákveða að gefa ágóðann
af kaffihúsinu til góðgerðamála og eftir að
jarðskjálftinn reið yfir ákváðu þær að styrkja
börnin í Nepal. Það sama gerðu 10 ára börn
í Varmalandsskóla, Góðgerðafélag Verzl-
unarskóla Íslands og nemendur í Flataskóla.
Hópur Filippseyinga, sem búsettur er á Ís-
landi, eldaði líka mikið magn af kræsingum
og seldi í Ráðhúsi Reykjavíkur á fjölmenn-
ingardeginum um daginn og svo er það hún
Emma Sigrún Jónsdóttir sem perlaði yfir 160
slaufur til styrktar börnum á jarðskjálfta-
svæðinu.“
Hvert framlag skiptir máli
„Þessar fallegu sögur af fólki eru alls ekki
tæmandi,“ segir Sigríður. „Það mætti lengi
telja upp alla þá einstaklinga sem hafa lagt
börnunum í Nepal lið. Þetta er bara ótrúlegt
og sýnir að fólki stendur ekki á sama og að
saman getum við allt. Hvert einasta framlag,
stórt og líka smátt, skiptir öllu máli.“
Enn er hægt að leggja söfnuninni lið með
frjálsum framlögum eða með því að senda
sms-ið UNICEF í númerið 1900 og leggja
þannig 1500 krónur í söfnunina.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
JarðskJálFtasvæði neyðarsöFnun uniCeF
emma sigrún jónsdóttir perlaði 160 slaufur til
styrktar börnunum í nepal.
Sextán milljónir hafa
safnast fyrir börnin í Nepal
nú er rúmlega
mánuður
liðinn frá
skjálftanum
í nepal og
neyðin á
svæðinu er
gífurleg.
Ríflega 8600
létust í skjálft-
anum og
metur uniCef
sem svo að
um 1,7 milljón
barna á
svæðinu séu í
sárri neyð. nú
hafa safnast
16 milljónir í
neyðarsöfnun
uniCef og
enn er hægt
að leggja sitt
af mörkum.
á hjúkrunarheimilinu mörk létu íbúar og starfsmenn ekki sitt eftir liggja og héldu glæsilegt bingó og pitsuveislu til styrktar
börnum í nepal í vikunni.
4 fréttir Helgin 29.-31. maí 2015