Fréttatíminn - 29.05.2015, Blaðsíða 24
þangað til að þetta brestur á,“ segir
hann.
Hvernig gengur að halda sér á
jörðinni fyrir svona leik. Verandi
í þessari góðu stöðu sem þið eruð
búnir að koma liðinu í?
„Ég hef fengið að kynnast ýmsu
í landsliðinu. Ég byrjaði 18 ára að
spila fyrir Íslands hönd,“ segir Aron.
„Þetta hefur bara stigmagnast hjá
okkur og hugarfarið hefur alltaf ver-
ið á þá leið að við ætlum á stórmót.
Ég hef aldrei verið partur af hópi sem
hefur svona fókuseraður á einn hlut,“
segir hann. „Auðvitað erum við búnir
að setja pressuna á okkur sjálfir alveg
eins og þjóðin sem á ekki í erfiðleik-
um með að setja sér væntingar með
liðið,“ segir hann og glottir.
Getum við ætlast til þess að ís-
lenskt landsliðið komist á stórmót,
þó við séum í góðri stöðu í dag. Er
það samt ekki frekja?
„Kannski ekki ætlast til þess,
en það er um að gera að njóta þess
þegar maður er í séns,“ segir Aron.
„Við finnum fyrir miklum stuðningi
og einnig hefur KSÍ unnið mjög fag-
mannlega að öllu í kringum þetta,
sem gerir okkur kleift að vinna að
okkar takmarki. Við setjum samt
pressuna á okkur sjálfir með góðum
árangri. Við erum allir með breitt
bak og erum vanir því að takast á
við þau verkefni eða erfiðleika sem
mæta okkur,“ segir Aron.
Þessi hópur þurfti ungan fyrir-
liða
Aron hefur verið atvinnumaður í
knattspyrnu síðan hann var 17 ára
gamall þegar hann fór frá uppeldis-
félagi sínu, Þór á Akureyri, til hol-
lenska liðsins AZ í Alkmaar, þaðan
fór hann til Coventry og svo til Car-
diff. Hann var gerður að fyrirliða
landsliðsins einungis 22 ára gamall,
en hann segir að hann hafi aldrei átt
í erfiðleikum með að taka ábyrgð.
Fyrir honum var það eðlileg ákvörð-
un að taka við fyrirliðabandinu þrátt
fyrir ungan aldur.
„Lars Lagerbäck tók þá ákvörð-
un að gera mig að fyrirliða, sem var
kannski rökrétt ákvörðun þar sem
þetta var ungt landslið og þess vegna
þurfti ungan fyrirliða,“ segir Aron.
„Ég er þannig týpa að ég vil bera
ábyrgð. Auðvitað höfum við leik-
menn með meiri reynslu en þessi
ungi hópur þurfti ungan fyrirliða.
Auðvitað er þetta mikil ábyrgð og
ég hef gert mistök á leiðinni sem ég
læri af,“ segir hann og vísar þar til
atviks í Albaníu fyrir nokkrum árum
þar sem hann sagði í sjónvarpsviðtali
að íbúar Albaníu væru glæpamenn
upp til hópa. Vissulega í gríni en um-
mælin voru sem olía á eld í albönsk-
um fjölmiðlum. „Ég lærði gríðarlega
mikið af því atviki,“ segir Aron. „Það
gerði mig að betri fyrirliða og leik-
manni en líka gerði það að verk-
um að ég segi frekar eitthvað sem
skiptir máli í viðtölum. Maður var sú
týpan að maður reyndi að vera fynd-
inn eða eitthvað slíkt og talaði við
blaðamenn eins og þeir væru félagar
manns. Eftir þetta tók ég eitt skref til
baka og segi í dag ekkert án þess að
vera búinn að hugsa það áður. Maður
lærir af þessum mistökum og tekur
þau með sér í reynslubankann,“ seg-
ir hann. „Ég þroskaðist á einu augna-
bliki þegar þessi umræða gekk yfir
en hef komið sterkari til baka.“
Það er ekkert
grín að vera
þetta ungur
í þessum að-
stæðum, svo
það var gott
að koma heim
í mömmumat
eftir æfingar og
leiki. Ég veit
ekki hvar ég
væri í dag ef
ég hefði ekki
haft hana til
þess að koma
mér á jörðina
þegar hlutirnir
gengu vel.
Hver er grunnurinn að þessum ár-
angri og þessari kynslóð sem leiðir
íslenskan fótbolta í dag?
„Ólafur Jóhannesson á stóran
þátt í þessu,“ segir Aron. „Hann tek-
ur nokkra af okkur úr U-21 lands-
liðinu og gefur okkur séns. Þegar
Lars tekur við, er búið að taka marga
af okkur í A-landsliðið og hann gat
því byggt ofan á það sem Óli reyndi.
Lars byrjaði svo að ná úrslitum með
þennan hóp. Það er mikið Lars að
þakka að KSÍ hefur bætt alla fag-
mennsku í kringum landsliðið. Við
fengum þjálfara sem var vanur því
að vinna á topp standard og allir hrif-
ust með,“ segir Aron. „Svo að sjálf-
sögðu fengum við allir góða grunn-
þjálfun á Íslandi þrátt fyrir að hafa
allir farið frekar ungir út í atvinnu-
mennsku. Við erum allir af fyrstu
kynslóð þeirra iðkenda sem æfðu í
knattspyrnuhúsunum sem spruttu
upp um allt land á sínum tíma og það
er að skila sér í betri leikmönnum
í dag. Eins er þjálfarastandard á Ís-
landi mjög hár. Allir þjálfarar á Ís-
landi eru mjög vel menntaðir á öllum
stigum. Það er samt of algengt ung-
ir leikmenn í dag taki því sem sjálf-
sögðum hlut að komast í atvinnu-
mennsku af því að kynslóðin fyrir
ofan gerði það með þessum árangri,“
segir Aron. „Fara út of snemma og
koma svo heim með skottið á milli
lappanna. Þetta er gríðarleg vinna,
líkamlega sem og andlega.“
Unnustan er stoð og stytta
Fyrirliðabandið hefur fylgt Aroni
lengi. Hann var gerður að fyrirliða
Coventry aðeins 19 ára gamall og oft
hefur hann gegnt miklu ábyrgðarhlut-
verki þar sem hann er að spila. Þegar
maður talar við hann þá skilur maður
þá ákvörðun þjálfara. Hann er ein-
beittur og yfirvegaður í fasi og maður
hlustar á það sem hann hefur að segja.
Hann segir að líf atvinnumannsins
geti oft verið einmannalegt en eftir að
Kristbjörg, unnusta hans, kom inn í líf
hans fyrir tveimur árum hafi honum
liðið mjög vel og segir það mjög góða
tilfinningu að koma heim til einhvers
eftir leiki, sér í lagi tapleiki.
„Fyrst þegar ég flutti til Englands
bjó mamma hjá mér í tvö ár og hjálp-
aði mér að þroskast og koma undir
mig fótunum,“ segir Aron. „Ég þreyt-
ist ekki á að segja það að ég á henni
gríðarlega mikið að þakka,“ segir
hann. „Það er ekkert grín að vera
þetta ungur í þessum aðstæðum, svo
það var gott að koma heim í mömm-
umat eftir æfingar og leiki. Ég veit
ekki hvar ég væri í dag ef ég hefði
ekki haft hana til þess að koma mér
á jörðina þegar hlutirnir gengu vel. Í
dag er Kristbjörg mín stoð og stytta
þegar ég þarf á að halda og það er
gríðarlega góð tilfinning, og enn
meira eftir að drengurinn fæddist.
Við erum nýbúin að festa kaup á
fyrirtæki sem heitir Brazilian Tan
sem er sterkt vörumerki í Fitness-
geiranum,“ segir Aron en Kristbjörg
er margfaldur meistari í greininni.
„Hún ætlar að vinna í því að mark-
aðssetja það í Englandi á milli þess
sem við erum að ala upp Óliver litla.
Það er mjög gott að hafa einhvern til
þess að tala við þegar maður kem-
ur heim eftir leiki, sérstaklega á ís-
lensku. Hún hefur komið með aðrar
áherslur inn í mitt líf á hárréttum
tímapunkti hjá mér. Ég hef bara
aldrei verið hressari og líður mjög
vel,“ segir Aron.
Draumurinn að komast á
stórmót
Landsleikurinn við Tékka verður
á Laugardalsvelli þann 12. júní og
segir Aron að landsliðið ætli að sýna
það að þeir eigi heima á meðal þeirra
bestu. „Við ætlum að senda þau skila-
boð út að okkur er alvara og enginn
geti búist við sigri gegn Íslandi. Við
erum búnir að vinna okkur inn þá
stöðu að vera fimm stigum á undan
Hollendingum og viljum reyna að
halda þeirri fjarlægð. Það er draum-
ur okkar allra að komast á þetta stór-
mót og hlökkum mikið til þess að
mæta á troðfullan Laugardalsvöll,“
segir Aron Einar Gunnarsson, fyrir-
liði íslenska landsliðsins.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ég viðurkenni að ég lít lífið öðrum
augum eftir fæðingu drengsins, segir
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu. Krist-
björg hefur líka staðið sig eins og hetja
í móðurhlutverkinu. Það er eins og hún
hafi aldrei gert neitt annað. Þau Aron
kynntust í gegnum sameiginlega vini.
Ljósmynd/Hari
24 viðtal Helgin 29.-31. maí 2015
ÁTT ÞÚ SVONA
GJAFAKORT?
Vegna kerfisbreytinga munu gjafakort
Kringlunnar í þessu útliti falla úr gildi frá og
með 1. júní næstkomandi. Hægt verður að
skipta gjafakortinu út fyrir nýtt kort á
þjónustuborði Kringlunnar án kostnaðar.
Kringlan biðst velvirðingar á þeim
óþægindum sem kunna að skapast
vegna þessa.
MÁN-MIÐ 10-18.30
FIM 10-21
FÖS 10-19
LAU 10-18
SUN 13-18
FACEBOOK.COM/KRINGLAN.ISKRINGLAN.IS
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA