Fréttatíminn - 29.05.2015, Side 46
46 heilsa Helgin 29.-31. maí 2015
Útivist Jón Gauti Jónsson er sérfróður um fJallaferðir oG Útivist
H in almenna regla er að skór veiti ökklanum stuðning ef gengið er með
byrðar eða utan stíga. En á þessu
eru undantekningar og til eru þeir
sem velja jafnvel ofvaxna hlau-
paskó með grófum botni í langar
dagleiðir á fjöllum. Þeir setja létt-
leikann í öndvegi enda eru þeir
jafnan fótvissir með afbrigðum og
með sterka ökkla. Algengara er þó
að fólk velji skópar með of stífum
sóla og of miklum ökklastuðningi
fyrir auðveldar leiðir á stígum.
Ef stuðningur er of mikill eða of
mikið þrengt að ökklanum verður
göngulagið afkáralegt og áreynsl-
an óþarflega mikil, auk þess sem
hætta á fótameinum eykst.
Segja má að því erfiðara sem
göngulandið er, því traustari ættu
skórnir að vera og sér í lagi sóli
þeirra. Stuðningurinn við fótinn
byggist á því að hællinn sitji vel
skorðaður í traustum hælkappa
án þess að ökklinn sé heftur svo
göngulagið verði mjúkt og flæð-
andi. Þar sem allur útbúnaður er
nú léttari en áður var má komast
af með minni ökklastuðning og
veigaminni skó. Það þarf ekki
flókna útreikninga til að átta sig
á að í léttari skóm léttist hvert
skref, jafnvel um nokkur hundruð
grömm, sem er fljótt að safnast
saman í mörg kíló eða tonn á dags-
göngu.
Enda þótt þróunin hafi verið
hröð á þessu sviði eru breytingarn-
ar ekki eingöngu tilkomnar vegna
betri efna, eins og raunin er með
fatnað, því leðrið og gamli vibram-
sólinn eru ennþá grunneiningar
vandaðra gönguskóa. Byltingin
felst fyrst og fremst í þægilegri
skóm sem passa betur og eru létt-
ari. Þeir eru hins vegar ekki jafn
sterkir og áður var og því þarf ef til
vill að endurnýja oftar.
Hefð er fyrir því að skipta
gönguskóm gróflega í þrennt eftir
því hvernig langstífni sóla þeirra
er; alstífir, hálfstífir og mjúkir.
Mörkin þarna á milli eru þó ekki
skýr og stundum háð samanburði.
Vatnsheld öndunarhimna er
núorðið í flestum gönguskóm og
heyrir frekar til undantekninga ef
svo er ekki. Vatnshelda filman er
alltaf límd innan á leðrið eða annað
skóefni og þótt hún sé auk þess
varin með fóðri geta sandkorn og
smásteinar, eða beittar táneglur,
eyðilagt filmuna að innanverðu
svo skórnir fara að leka. Þrátt fyrir
góða vatnsheldni verður að muna
að bera á skó, til þess að leðrið
haldist mjúkt og skorpni ekki né
rifni á saumum og einnig til að
skórnir hrindi betur frá sér vatni.
Eftir því sem undirlendi verður
grófara, svo sem í hrauni eða
skriðum, þeim mun mikilvægara
er að skórnir verji fætur vel. Þykkt
leður og gúmmíkantur upp á jaðra
og yfir tá ver helstu slitfleti og
margfaldar endingu skónna en
þyngir þá einnig.
En hvernig skó?
Hvernig skó þú velur fer eftir því
hvernig útivist þú stundar. Því
miður henta engir einir skór öllum
þeim fjölmörgu útivistarmögu-
leikum sem hér eru kynntir til
sögunnar, en hér er tilraun til
flokkunar.
Mjúkir gönguskór og lágir:
Fyrir göngur á stígum í ná-
grenni byggðar.
Mjúkir gönguskór og með
svolitlum ökklastuðningi: Fyrir
fjallgöngur á góðu undirlendi
og lengri dagsgöngur á stígum
með dagsferðapoka.
Hálfstífir fjallgönguskór með
góðum stuðningi við ökkla:
Fyrir lengri fjallgöngur og erf-
iðar bakpokaferðir með þungar
byrðar.
Gönguskór með stífum sóla
og góðum stuðningi við ökkla:
Ýmist leður- eða plastskór fyrir
fjallamennsku og klifur.
Það fer svo eftir því hversu áköf
fjallageit þú ert hversu vandaða
skó þú velur í þeirri von að þeir
endist betur.
Að kaupa gönguskó
Sú tíð er liðin að nokkrar þján-
ingarfullar fjallgöngur þurfti til
að sættast við nýja gönguskó.
Þrátt fyrir að þeir séu nú þjálli og
þægilegri en þeir voru í árdaga er
mikilvægt að finna par sem pass-
ar. Þess vegna er ekki ráðlegt að
kaupa gönguskó á netinu nema
þeir séu sömu gerðar og í sama
númeri og maður hefur áður átt.
Skókaup þarf að vanda og best
er að hitta á reynda starfsmenn
útivistarverslana sem þekkja vel
vörurnar sem þeir selja. Mikil-
vægt er að gefa sér góðan tíma og
vera ófeiminn við að prófa ólíkar
gerðir í nokkrum númerum til að
finna skó sem passa. Ekki kæmi
á óvart þótt afgreiðslumaðurinn
bæði þig að fara úr skóm og sokk-
um svo hægt sé að mæla lengd
og breidd fótarins. Ef þér býðst
að setja fótinn í mælitæki skaltu
standa með fullum þunga í fótinn
til að fá rétta mynd af lengd hans.
Reyndir afgreiðslumenn geta
raunar margir hverjir verið fljótir
að átta sig á því hvað hentar best
við það eitt að sjá beran fótinn.
Aðalatriðið er að fara sér að engu
óðslega, sætta sig ekki við smá-
atriði sem pirra í versluninni því
miklar líkur eru á að þau valdi
óþægindum á fyrsta göngudegi,
verði að stórmáli í lok dags og til
stórra vandræða í öllum ferðum
þaðan í frá.
Létt er rétt ... nema það endist
illa
Áherslan á léttan fatnað og útbún-
að er góð svo langt sem hún nær.
Það sem við neytendur þurfum þó
að vera meðvitaðir um er að létt
útivistarföt og skór eru gjarnan
veigaminni og endast skemur,
þótt þykkur og þungur fatnaður sé
engin trygging fyrir endingu. Ef til
vill er ágætt að velta endingu fyrir
sér og setja spurningarmerki við
umhverfisáhrif framleiðslunnar
áður en léttleikinn einn er látinn
ráða ferðinni.
Allt sem þú vildir vita um... skó
Jón Gauti Jónsson er margreyndur fjallaleiðsögumaður sem þekkir fjalllendi Íslands í sól og sorta
betur en flestir. Í Fjallabókinni miðlar hann af eigin reynslu og leitar í sarp fjölda sérfræðinga á
ýmsum sviðum. Útkoman er einstæð fróðleiksnáma, ómissandi fyrir alla þá sem hugsa til fjalla.
Við fengum að kíkja í bókina og fræðast um hvernig skóbúnaður eigi að verða fyrir valinu þegar
haldið er á fjöll.
Jón Gauti fræðir
áhugasama um
fjallaferðir og það
sem þarf að vita
um þær í Fjallabók-
inni. Hér fræðir
hann okkur um
skóbúnað í þeim
ferðum.
BERG TRAMPÓLÍNFRÁ 122.900kr
WINTHER HJÓL
KRUMMA RÓLUR
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS
FRÁ
106.800kr
LEIKTÆKIN FÆRÐU
Í KRUMMA
FRÁ
14.700kr
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
Inniheldur aðeins
náttúrulegar jurtir td.
Sítrónu Melissu og
Chamomillu ásamt
blöndu B vítamína og
magnesíum.
SOFÐU RÓTT
Í ALLA NÓTT
„Laus við fótaóeirð og
sef mun betur“
-Sigríður Helgadóttir