Franskir dagar - 01.07.1996, Blaðsíða 6

Franskir dagar - 01.07.1996, Blaðsíða 6
inn fjörðinn og lagðist að Kompanísbryggju, fyrir neðan. Skipstjóri var Hreinn Pálsson og var hann með úrvals áhöfn, vaska menn úr þorpinu. „Atta strákar á Andrey fóru í spari- fötin og héldu beint upp í Templarann. Þeir áttu flestir sínar vinkonur á ballinu, en kon- súllinn við dyrnar ætlaði að varna þeim inn- göngu. Þeir létu ekki segja sér fyrir verkum og ruddu salinn.“ Er skemmst frá að segja að þeir ráku síðan sjóliðana, með hjálp ungra drengja í þorpinu, ofan í skipsbátana sem fluttu þá síðan um borð. Þegar skúturnar komu inn í maí var gerð allsherj- ar hreingerning, á skipum og mönnum. Þá kornu lœkimir á Búðum að góðum notum og þar blönd- uðu börnin oft geði við sjómennina og þáðu fran- skt biskví. Gamlir Fáskrúðsfirðingar minnast þess gjarnan þegar Manon frá Dunkerque strand- aði utan við Kolfreyjustað. Skipverjar voru 22 og björguðust allir en ekki tókst að ná skipinu aftur á flot. Marteinn Þorsteinsson keypti skipið og lét nota úr því, sem hægt var, í bryggjuhús. Dekkið úr Manon er gólf- ið í bryggjuhúsinu og stendur enn. Vínið úr skipinu, um 6000 lítrar og allt í trétunnum, var hins vegar flutt í kjallara spítalans þar sem það stóð í lokuðu herbergi. Vínið til- heyrði ríkinu og tveimur árum síðar kom varðskipið Oðinn inn að sækja það en þá var ljótt um að litast í kjallaranum. „Flestar tunnurnar í stöfum,“ er haft eftir Þorvaldi Jónssyni í Morgunblaðsviðtalinu. „Höfðu auðvitað gisnað á svo löngum tíma og ekki dropi eftir að víninu,“ bætti hann við og skýrði síðan ástæðuna en um þetta leyti var unnið að því að setja upp rafstöð fyrir nokk- ur hús í útbænum og var hún staðsett í stóru herbergi í kjallara spítalans. Við það unnu tveir vélstjórar og var talsverður gestagang- ur hjá þeim og oft glatt á hjalla. Þjónuðu Fáskrúðsfirðingum Saga franskra fiskimanna á Fáskrúðsfirði er sumpart einstök vegna þess að þar var byggð upp sérstök aðstaða fyrir þá. Fyrst að frumkvæði kaþólsku kirkjunnar sem sendi danska prestinn Max Osterhammel, sem áður er getið, til að reisa spítala. Með honum komu fjórar reglusystur, þar af tvær fransk- ar. Kaþólski spítalinn reis fljótt og vel og stendur enn. Fáskrúðsfirðingar þekkja hann sem hið fallega og vinalega hús Grund. Þörfin fyrir þessa þjónustu var afar brýn og höfðu séra Osterhammel og systurnar í nógu að snúast. Auk starfanna í þágu Frakka stunduðu systurnar hvers konar þjónustu við íbúana á staðnum og í sveitunum. Oster- hammel lýsir því t.d. að eitt sinn hafi systir Justine bundið um meiðsl bóndadóttur sem hafði hlotið framhandleggsbrot. „Brotið var að vísu ekki vandasamt meðferðar, en bein- ið var samt allt úr skorðum og þarfnaðist kunnáttusamlegrar meðferðar. Að þrem vik- um liðnum sást ekkert eftir af brotinu og handleggur stúlkunnar var jafn sveigjanleg- ur og áður. Auðvitað gladdist móðirin ekki síður en stúlkubamið sjálft yfir því að hún skyldi nú geta beitt handleggnum frjálst og óhindrað.“ Osterhammel segir jafnframt að álagið á systumar hafi verið mikið og þær sjaldnast komist til náða fyrr en undir mið- nætti og oft og einatt síðar. I frásögn sinni víkur Osterhammel að greiðvikni konsúlsins á Fáskrúðsfirði á þessum tíma, Carli Andre- as Tulinius, og hlýlegum móttökum bæjar- búa. En saga litla, kaþólska sjúkrahússins varð ekki löng. I Frakklandi vom átök milli ríkis og kirkju og stutt í hreinan aðskilnað. Ríkið hætti að styrkja litla spítalann, fyrirvara- laust. Oeuvres de Mer-samtökin, Frönsku spítalasamtökin, hlupu þá undir bagga í samvinnu við dönsku kaþólikkanna og tóku yfir rekstrarkostnaðinn í u.þ.b. eitt ár, því einungis var búið að reisa gmnninn að nýja spítalanum sem franska ríkið stóð að. Rekst- ur spítalaskipanna hafði einnig brostið eftir að dró stórlega úr styrk franska ríkisins. En nýi spítalinn átti eftir að standa fyrir sínu. Framkvæmdir hófust 1903 og hann var tekinn í notkun 1904. Læknir var Georg Ge- orgsson en hann talaði góða frönsku og var jafnframt konsúll og fulltrúi Franska spítala- félagsins. I spítalanum voru 17 rúm í þrem- ur fimm manna stofum og einangrunarstofa fyrir berkla- og taugaveikissjúklinga. Georg læknir þótti afar hæfur og nýtti hann einnig spítalann til að þjóna íbúunum og sem skurðstofu. Meðan samskiptin voru mest við Frakka, fram að fyrri heimsstyrjöld, var spít- alinn fullnýttur. Síðan dró úr starfseminni og að lokum stóð spítalinn auður. Georg, keypti húsið 1933 þegar hann lét af embætti héraðs- læknis en það lenti svo á Landsbankanum sem framseldi síðan hreppnum húsið fyrir 10 þúsund krónur árið 1944. Síðan var húsið flutt út í Hafnarnes sem íbúðarhús en hefur síðustu áratugi staðið autt og opið fyrir vind- um og vatni, eins og Fáskrúðsfirðingum er kunnugt. Menningarverðmæti Heimildasöfnun Elínar Pálmadóttur hef- ur leitt í ljós að þjónusta franska spítalans við Fáskrúðsfirðinga var einstök. Fyrsta árið var daggjaldið fyrir frönsku sjúklingana 1,50 en fyrir þá íslensku ekki nema 75 aurar, að- eins hálft verð. Samkvæmt fullyrðingum fransks spítalalæknis í heimildum, sem Elín vitnar til í bók sinni, var ógerlegt að hjúkra, fæða og hirða um sjúklinga á íslandi fyrir 75 aura á dag. Tapið var því greitt af Franska spítalafélaginu. Samkvæmt sömu heimild tók spftalinn á móti 32 sjúklingum frá 1. júní 1905 til apríl 1906. Þar af voru 14 franskir, hinir Islendingar. Annað dæmi um niðurníðslu franskra menja er franski grafreiturinn, sem við Fá- skrúðsfirðingar köllum gjaman Krossa. Upp úr aldamótum hafði Frökkunum misboðið aðkontan að garðinum. Presturinn frá Oeu- vres de Mer-samtökunum ákvað að bæta úr því með aðstoð skipvetja á eftirlitsskipinu La Manche. A vígsludegi voru komnir nýir krossar á öll leiðin og búið að reisa þar stall með franskri krossfestingarmynd. Á grafim- ar voru síðan lögð blóm úr hlíðinni fyrir ofan. Kirkjugarðurinn drabbaðist aftur niður eftir að komum frönsku skipana lauk en árið 1959, þegar síðasta franska herskipið kom til Fáskrúðsfjarðar og fyrir milligöngu franska sendiráðsins, var sléttað yfir leiðin og nöfn- in af þeim krossum, sem hægt var að lesa, skráð á stallinn á nýju krossmerki. Reiturinn var jafnframt afmarkaður með hvítmáluðum steinum. Elín Pálmadóttir gekk í það fyrir tæpum tuttugu árum að senda nöfn þeirra 49 sjó- Georg Georgsson lœknir og konsúll og Karen Wathne kona hans. I baksýn er lœknisbústaðurinn. Georg þótti afar hœfur lœknir og þjónaði jafnt Fá- skrúðsfirðingum og Frökkum. manna, sem skráð eru á stallinn, til Frakk- lands. Séra Þorleifur Kjartan Kristmundsson greiddi götu hennar í þeim efnum og hafði þá þegar skrifað niður nöfnin sem sum hver voru orðin óskýr. Frakkamir vom afar þakk- látir fyrir þessa sendingu og nöfnunum vom valinn sérstakur staður á safni í Paimpol og skráð í skjalasafn í Dunkerque. Stærsta dag- blaðið í Paimpol birti einnig nöfnin og kall- aði þannig eftir viðbrögðum ættingja. „Eftir að hafa farið í öll þorp og bæi á slóðurn ís- landssjómannanna og hitt allan þann mikla fjölda afkomenda þeirra og aðra, sem höfðu atvinnu af veiðunum, veit ég að minningin um Islandssiglingarnar liflr ennþá,“ segir Elín. Ljóst er að minningin lifir líka á Fá- skrúðsfírði og þar má enn gera betur til að varðveita þann merkilega menningararf sem sjómennirnir skildu eftir. 6 FRANSKIR DAGAR

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.