Franskir dagar - 01.07.2008, Blaðsíða 3
Franskir dagar - Les jours fran^ais
Avarp framkvæmdastj óra
Ágætu Fáskrúðsfirðingar og aðrir góðir gestir.
Franskir dagar eru haldnir í þrettánda
skipti, en þeir voru fyrst haldnir síöustu
helgi júlímánaðar 1996. Þeir eru haldnir
til aö minnast sögu Fáskrúðsfjarðar og
veru Frakka hér fyrir og eftir aldamótin
1900.
Að þessu sinni verða Franskir dagar
með ennþá meiri áherslu á franska menn-
ingu. Lögð verður áhersla á að gestir og
gangandi upplifi Frakkland í maganum og
að þeir heyri og sjái allt það sem franskt
er. Við erum búin að fá til liðs við okkur
franska og frönskumælandi Veraldarvini
til að sinna stórum hlutverkum á hátíð-
inni. Einnig erum viö búin að láta hanna
okkar eigið lógó sem mun prýða spjöld,
fána og fleira.
Ég er aðkomukona í Fjarðabyggð en mér
hefur verið tekið opnum örmum og gaman
er aö sjá hvað Fáskrúðsfnðingar eru stoltir
og ánægðir meö hátíðina sína. Aðstand-
endur Franskra daga hafa staðið sig ein-
staklega vel og það er sama hvað ég bið
þá um að gera, ég fæ alltaf svarið „Ekkert
mál!" Ég hef fengið fólk til að búa til fiska,
mála skilti, safna styrkjum og fleira og
fleira.
Ég bjó í Frakklandi í rúm tvö ár, lyrst
hálft ár í nágrannabæ Parísar og svo í
bleiku borginni „la ville rose", Toulouse.
Frakkar eru mjög stoltir af sögu sinni og
þeim finnst frábært að sjá sögu sína teygja
angana til annarra landa. Tilefni Franskra
daga er að heiðra sögu franskra sjómanna
hér við land en Fáskrúðsfjörður var aö-
albækistöð franskra sjómanna á íslandi.
Sjómennirnir komu aöallega frá Norm-
andí og Bretaníuskaganum í Frakklandi
og sigldu hingað langa leið á sínum fögru
skútum. Fáskrúðsfirðingar minna mig oft
á Frakka eins og t.d viömót þeirra gagn-
vart mat. Það skiptir engu á hvaða veit-
ingastaö þú ferð á Fáskrúðsfirði. Þú mátt
bóka að þú færð fyrsta flokks mat úr fyrsta
flokks hráefni hvort sem það er sjoppan,
kaffihúsin eða hótelið!
Verið er að vinna verkefni hjá sveitar-
félaginu sem miðar að því aö efla ímynd
FáskrúðsQarðar sem er „Franski bærinn" á
íslandi og efla vitund heimamanna og gesta
á frönsku tengslunum. Franskir dagar eru
stór liður í því verkefni. Ég hef verið beðin
um að taka þetta verkefni aö mér ásamt
öðru góöu fólki og geri ég það með stolti.
Að lokum vil ég þakka undirbúnings-
hópnum og öllum aðstandendum Franskra
daga kærlega fyrir óeigingjarna vinnu og
frábært samstarf.
Ég vona að þið skemmtiö ykkur sem
allra best á Frönskum dögum. Vive la
France! Vive !e FáskrúðsQörður!
Hulda Gudnadóttir
Framkvœmdastjóri Franskra daga 2008.
3