Hafnarfjörður - Garðabær - 01.05.2015, Page 14
14 1. Maí 2015
Stórtónleikar á stórafmæli
Kór Öldutúnsskóla fagnar 50 ára afmæli sínu um þessar mundir með tónleikum í
Víðistaðakirkju föstudaginn 1. maí
kl. 17: 00.
Kórinn er elsti barnakór landsins
sem starfað hefur samfellt. Efnis-
skráin samanstendur af sönglögum
sem verið hefur á dagskrá kórsins
í áranna rás. Frumflutt verður nýtt
tónverk, Cancta Caecilia, eftir Báru
Gísladóttur.
Margir fyrrverandi kórfélagar
koma fram bæði kórar og einsöngv-
arar. Þeir sem syngja með okkur við
þetta tilefni eru: Margrét Eir, Hanna
Björk Guðjónsdóttir, Örn Arnarson
og Fjóla Kristín Nikulásdóttir. Einnig
munu fyrstu kómeðlimir heiðra okkur
með nærveru sinni.
Kynnar eru Laufey Brá Jónsdóttir
leikkona og Veigar Hrafn Sigþórsson
frændi hennar og kórdrengur.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis
en kórinn tekur glaður á móti frjálsum
framlögum.
Allir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
Vorhreinsun í Garðabæ
Hreinsunarátak Garðabæjar, hreinsað til í nærumhverfinu, stendur nú yfir en það hófst
10. apríl sl. Átakið hefur gengið gríðar-
lega vel, segir í frásögn af framtakinu
á vefsíðu Garðabæjar, og aldrei hafa
fleiri hópar sótt um að taka til hendinni
á svæðum í bæjarlandinu en núna í
vor þó veðrið hafi ekki alltaf verið
eins og best er á kosið. Ánægjulegt sé
hversu margir hafa tekið þátt að þessu
sinni og margir nýjr hópar, íbúar við
tilteknar götur og félagasamtök, hafa
bæst við í framtakið í ár. Skemmtilegar
ábendingar hafa borist frá hópunum,
segir á vef bæjarins um að t. . d. hesta-
menn ættu að hreinsa rúllubaggaplast
af girðingum.
Hópar fá ákveðin
svæði til hreinsunar
Hóparnir hafa margir sótt um styrk
til umhverfisstjóra gegn því að tína
rusl á ákveðnum svæðum í bæjar-
landinu. Með því að dreifa hópunum
vel um bæjarlandið ætti bærinn að vera
nokkuð hreinn þar til að sumarstarfs-
menn taka til starfa í byrjun júní og
vinna þá áfram að hreinsun bæjarins.
Vorhreinsun lóða
til 13. maí.
Hin árlega vorheinsun lóða hófst á
mánudaginn var. Garðbæingar eru
hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sam-
eiginlegu átaki, en það stendur til sem
stendur til 13. maí nk. Garðabær hirðir
garðúrgang sem settur hefur verið út
fyrir lóðamörk á tilteknum dögum í
hverfum bæjarins sem tilgreindir eru
hér fyrir neðan. Þessi þjónusta er veitt
bæjarbúum að kostnaðarlausu þessa
daga en mikilvægt er að vera innan
þessara tímamarka sem eru gefin upp
fyrir hvert hverfi.
Íbúafundur framundan
Nærumhverfið skiptir okkur máli er
heiti íbúafundar sem umhverfisnefnd
Garðabæjar stendur fyrir þriðjudaginn
12. maí í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
kl.17: 00 -19: 00. Dagskrá íbúafundar-
ins verður kynnt nánar hér á vef Garða-
bæjar á næstu dögum.
Hreinsun á garðúrgangi
Nú í vikunnu var tekinn garðaúr-
gangur á Flötum, í Ásgarði, á Fitjum,
Hólum, Ásum, Grundum, í Sjálandi,
á Arnarnesi, Ökrum, Vífilsstöðum og
Urriðaholti.
4. - 6. maí verður sótt í Tún, á
Mýrar, Garðatorg, Móa, Byggðir,
Lundir, Búðir, Bæjagil, Hæðahverfi
og Hnoðraholt. Síðan 11. -13. maí á
Álftanes, Garðahverfi, Prýði, Hleinar
og við Álftanesveg. Stjarnan vann
Lið Stjörnunnar í hópfimleikum kvenna tryggði sér Íslandsmeist-aratitil í spennandi keppni í Ás-
garði á dögunum. Gerpla úr Kópavog-
inum hefur haldið titlinum árum árum
saman, en nú hafði Stjarnan betur, eftir
æsispennandi keppni á trampolíni, æf-
ingar á gólfi og lokaumferð á dýnu.
Kvennalið Stjörnunnar stóð því uppi
sem sigurvegari í fjölþraut kvenna
í hópfimleikum. B lið Stjörnunnar
tryggði sér svo þriðja sætið. Í flokki
blandaðra liða var lið Stjörnunnar í
öðru sæti.
Sýning í Gróskusalnum
Allir eru velkomnir á lokasýn-ingu fata og textílhönnunar-sviðs og myndlistarsviðs Fjöl-
brautaskólans í Garðabæ, sem hófst
á miðvikudag og stendur til 4. maí.
Sýningin er haldin í Gróskusalnum á
2. hæð á Garðatorgi og er opin frá kl.
14-18.
Aðgengi fatlaðra í Bíó Paradís:
Safna fé til að bæta aðstöðu
Söfnun er hafin á síðu Karolinafund sem hefur það markmið að bæta aðgengi fólks í hjólastólum að Bíó
Paradís. Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu. Söfnunin felst í sölu aðgöngu-
miða og korta á sýningar Bíó Paradísar
og er hægt að velja um marga möguleika
til að styrkja málefnið, allt frá því að
kaupa miða fyrir tvo á eina sýningu upp
í tíu ára árskort í Bíó Paradís.
Aðgengismál í bíóinu hafa töluvert
verið gagnrýnd upp á síðkastið.
Í tilkynningunni segir að Bíó Pardís
hafi unnið með Ferilnefnd fatlaðra hjá
Reykjavíkurborg að greiningu og til-
lögum að úrbótum og sé áætlaður kostn-
aður við fyrsta áfanga rúmar 6,5 millj-
ónir króna. „Verkefnið er mun stærra en
húsið ræður við með rekstrinum og var
því ákveðið að hefja söfnunina. Öllum
ágóða verður varið í að setja inn lyftur
og koma fyrir salerni sem er aðgengilegt
fólki í hjólastólum, “ segir þar einnig,
en jafnframt er bent á að Bíó Paradís sé
eina listræna kvikmyndamenningarhús
landsins og þess utan eina bíóið sem eftir
er í miðbæ Reykjavíkur. Sjálfseignar-
stofnunin Heimili kvikmyndanna rekur
bíóið, en reksturinn er ekki í hagnað-
arskyni.