Reykjanes - 07.05.2015, Qupperneq 8
8 7. Maí 2015
Grímur Karlsson
smíðar módel
af Svaninum
Grímur Karlsson, bátasmiður, situr ekki auðum höndum. Hann hefur nú lokið við að
gera módel af Svaninum frá Ólafs-
vík. Gunnar Hjaltason f. v. skólastjóri
í Ólafsvík fann heimildir um skipið.
Karl Ólafsson, hafnarvörður í Keflavík,
fann mynd í tölvu af Svaninum á frí-
merki. Kristján Helgason frændi Gríms
hvatti hann til að gera módel og kom
með línuteikningu, smíðalýsingu og
smíðasamning. Þessar heimildir urðu
til þess að ég fór af stað sagði Grímur.
Svanurinn Ólafsvík
Erfitt er að segja til um upphaf skipsins
en það var smíðað um 1770 . Endalok
skipsins urðu þau að það rak á land við
Ólafsvík 6. okt.1893. Ekki urðu nein
slys á mönnum en skipið eyðilagðist.
Talið er að aldrei hafi farist maður af
Svaninum.
Í Sjómannablaðinu Víkingi 4. tbl. 22.
árgangi 1960 segir: „Svanurinn Ólafs-
víkurskipið er strandaði 6. október
1893 var elsta kaupskip ym endilangt
Danaveldi. Hann var úr eik og var
smíðaðaur í Eskernfjörde 1777. Var
fyrr“Konungshöndlunarskip“. Síðan í
eign þeirra Clausena, Ólafsvíkurkaup-
manna.“
Ólafsvíkur-Svanurinn var 126 rúm-
lestir að stærð. Bolur skipsins var úr
eik og sjólínan klædd koparþynnum.
Skipið var tvístefnungur. Svanurinn
gekk kaupum og sölum á milli kaup-
manna. Ólafsvíkur Svanurinn var
bæði farmskip og farþegaskip. Margir
af kunnustu Íslendingum nítjándu
aldar sigldu með Svaninum þau 116
ár sem hann þjónaði eigendum sínum
af trúfestu, þar á meðal allir Fjöln-
ismennirnir. (Heimild: skipasaga.
net/1701-1800/
Jöfnuður býr
til betra samfélag
Það var fjölmenni í Stapanum 1. maí s.l. Það er mikill baráttuhugur í launþegum um þessar mundir.
Fólk kallar á meira réttlæti. Fólk kallar á
meiri jöfnuð. Það er langt síðan jafn mikil
áolga hefur verið á vinnumarkaðnum.
Heimamennirnir Kristján Gunnarsson
og Guðbrandur Einarsson sögðu í byrjun
nokkur hvartningarorð og síðan flutti
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ mikla
barátturæðu, þar sem hann lagði áherslu
á að vitlaust væri gefið. Það hallaði mjög á
launafólk á meðan aðilar í landinu fengju
meira og meira í sinn hlut. Gylfi lagði
áherslu á að launþegahreyfingin yrði
nú að beita öllum þeim aðferðum sem
hún hefði yfir að ráða til að ná auknum
jöfnuði í samfélaginu. Fundinum lauk á
að fundargestir risu úr sætum og sungu
Internasjónalinn.