Reykjanes - 07.05.2015, Blaðsíða 14
14 7. Maí 2015
Samtökin NEI við ESB
gefa út myndbönd
Samtökin NEI við ESB tóku þá ákvörðun fyrr í mánuðinum að safna saman upptökum á
viðtölum við ýmsa aðila í þeim til-
gangi að koma málstað þeirra, sem
eru á móti mögulegri inngöngu Ís-
lands í Evrópusambandið, á fram-
færi. Til verksins voru fengin Rakel
Sigurgeirsdóttir og Viðar Freyr Guð-
mundsson. Bæði unnu að ekki ósvip-
uðu verkefni vorið 2011 í tengslum
við NEI við Icesave.
Lokið var við upptökur um síðustu
helgi en tvö myndbönd hafa nú þegar
verið gerð aðgengileg á You Tube-síðu
Heimssýnar. Fleiri eru væntanleg á
næstu dögum. Þeir sem koma fram í
því sem er búið að birta eru sumir vel
þekktir eins og núverandi formaður
Heimsýsnar og tveir þingmenn ríkis-
stjórnarflokkanna. Auk þeirra kemur
fram vinsæll rappari sem segir það
litla alþjóðahyggju að vilja loka sig
af fyrir heiminum innan tollamúra
gömlu nýlenduveldanna.
Viðmælendurnir koma úr ýmsum
áttum og eru á öllum aldri. Allir eiga
það hins vegar sameiginlegt að vera
andstæðingar Evrópusambandsað-
ildar. Í viðtölunum draga þeir fram
útskýringar og rök fyrir andstöðu
sinni. Rökin eru margvísleg en margir
leggja áherslu á að fullveldið tapist við
inngöngu í Evrópusambandið og að
forræðið yfir grunnstoðum íslensks
efnahagslífs, eins og sjávarútvegi og
annarri auðlindanýtingu, flytjist úr
landi.
Einhverjir fara líka vandlega ofan í
saumana á helstu rökum þeirra, sem
tala um að geta ekki tekið afstöðu
nema vita hvað verði í svokölluðum
„pakka“, sem sumir virðast halda
að sé í boði. Þessir benda á að með
breyttum inntökuskilyrðum Evrópu-
sambandsins þá sé ekki um neitt
pakkatilboð að ræða heldur liggi
samningurinn fyrir í Lissabonsátt-
málanum sem var undirritaður í lok
árs 2007.
Með honum er ekki um neinar
varanlegar undanþágur að ræða í
veigamiklum málaflokkum. Undan-
þágurnar sem hafi verið veittar eru
aðeins „í smámálum sem skipta
Evrópusambandið engu máli í efna-
hagslegu tilliti“ eins og einn viðmæl-
andinn orðar það. Sem dæmi tekur
hann að sambandið veitti „Svíum
undanþágu varðandi munntóbak,
Dönum vegna sumarhúsa og Möltu-
búar fá að veiða eitthvað af skraut-
fiskum áfram.“
Slóðirnar á myndböndin sem þegar
hafa verið sett í birtingu má nálgast
hér: https: //www. youtube.com/watch?
v=9136a1c_Y9o og annað hér: https: //
www. youtube.com/watch? v=PHbQv-
hWuNgk&feature=youtu. be
Frekari upplýsingar gefa:
Jón Bjarnason, formaður
Heimssýnar, sími: 862 61 70
Rakel Sigurgeirsdóttir, spyrill og
framleiðslustjóri myndbandsins,
sími: 849 77 16
Fullt
af nýju
efni!
Skólavefurinn.is
LUNDINN &
HVA
LURINN
Skólavefurinn.is
Bættu námsáran
gurinn!
Þessi er sko flottur
Bíll í sýningarsal GE-bíla vakti athygli mína þegar Reykjanes leit við einn daginn. Hér er á
ferðinni Renault Captur. Útlit bílsins
er einstaklega smart og innréttingin
öll hin flottasta. Staðalbúnaður bílsins
er langur listi og örugglega mun betur
en margur bíll af dýrari gerðinni. Verð
er mjög hagstætt á svona vel útbúnum
bíl eða frá 3.490 þús. Eyðslan er með
því lægsta sem maður sér eða 3,6 lítrara
í blönduðum akstri á beinskiptum og
3,9 lítrar á sjálfstkiptum. þetta eru dísil-
bílar. Öruuglega góð kaup í svona bíl.
Fundað með heilbrigðisráðherra
Á fundi bæjarráðs Garðs 30. apríl s. l var fjallað hjúkr-unarþjónustu við aldraða á
Suðurnesjum
Minnisblað
frá bæjarstjóra.
Minnisblað bæjarstjóra var lagt fram
á fundi með heilbrigðisráðherra í gær.
Í minnisblaðinu kemur m.a. fram að
nú eru 57 aldraðir einstaklingar á
Suðurnesjum á biðlista eftir hjúkr-
unarrúmum. Jafnframt kemur fram í
minnisblaðinu samþykkt aðalfundar
DS þann 22. aprl sl. , þar sem m.a. er
samstaða um uppbyggingu allt að 30
rúma hjúkrunarheimilis á Garðvangi.
Leitað er eftir því að ráðherra upp-
lýsi um stöðu mála við stefnumótun
og framkvæmdaáætlun um frekari
uppbyggingu og rekstur hjúkrunar-
þjónustu við aldraða á Suðurnesjum.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir við-
brögðum heilbrigðisráðherra við efni
minnisblaðsins, m.a. að ekki liggi
fyrir hvort eða hvenær fjármagn fáist
til framkvæmda og reksturs Garð-
vangs.
Halldóra Hjaltadóttir, formaður ísafoldar, Jón Bjarnason, formaður Heims-
sýnar og Rakel Sigurgeirsdóttir, spyrill og framleiðslustjóri myndbandanna
Á annarsi myndinni er Viðar Freyr
Guðmundsson sem annaðist upp-
tökur og aðra tæknivinnu við gerð
myndbandanna.