Reykjanes - 07.05.2015, Blaðsíða 10

Reykjanes - 07.05.2015, Blaðsíða 10
Til afgreiðslu á lager ÁSAFLHjallahrauni 2 - 220 HafnarfjörðurSími 562 3833 - asafl@asafl.is - www.asafl.is Hyuandai S250 með Bravo II drifi Hljóðlát og sparneytin díeselvél með öflugu hældrifi Vélar og tæki Sjómenn þjónusta kringum landið 10 7. Maí 2015 Skítakuldi og bræla í þokkabót Sumarið komið með þeirri veð-urblíðu sem allir eru svo kátir með...... hmm eða er það virki- lega. Þvílík hörmungarbyrjun á sumrinu okkar. Skítakuldi og bræla í þokkabót. Enn eigum við ekki að segja að þetta gefi kanski fyrirheit um þrusugott sumar. Vonandi. Dragnótabátarnir okkar hafa fiskað nokkuð vel eftir að veiði hófst aftur eftir stoppið, og t.d kom Sigurfari GK með 44 tonn að landi í einni löndun. Hefur báturinn landað 132 tonnum í aðeins 7 róðrum. Siggi Bjarna GK er t.d með 84 tonn í aðeins 4 róðrum. Benni Sæm GK var með 43 tonn í 2 róðrum. Arnþór GK 40 tonn í 2 róðrum. Örn GK hefur landað 109 tonnum í 6 róðrum. Smábátarnir hafa fiskað ágætlega þá daga sem þeir hafa komist á sjóinn . Pálina Ágústdóttir GK var t.d með tæp 18 tonn í 2 róðrum. Dúddi Gísla GK 24 tonn í 3, Auður Vésteins SU 37 tonn í 5, Gísli Súrsson GK 48 tonn í 5, Von GK 31 tonn í 4 róðrum. Snúum blaðinu aðeins við og förum í smá ferðalag aftur til ársins 1976, og kíkjum á hvað var um að gera í höfnum suðurnesja í apríl árið 1976. Vogar: Ágúst Guðmundsson II GK 133 tonn í 24, Ágúst Guðmundsson GK 118 tonn í 24. Hafnir: Bryndís GK 15 tonn í 11 á færum. Það má geta þess að í dag er engum afla landað í Vogum né í Höfnum. Grindavík: Albert GK 207 tonn í 23, Arney KE 262 tonn í 23, Ársæll Sigurðsson GK 269 tonn í 22, Geirfugl GK 175 tn í 24. Grímseyingur GK 82 tní 12, Grindvíkingur GK 185 tn í 11. Gísli Lóðs GK 112 tní 21. Farsæll GK 33 tn í 17, Faxi GK 176 tn í 18, Hafberg GK 229 tn í 21, Hópsnes GK 183 tn í 22. Hrafn Sveinbjarnarsson GK 161 tn í 22, Hrafn Sv II GK 108 tn í 21 og Hrafn Sv III GK 225 tní 21. Jóhannes Gunnar GK 151 tn í 21, Máni GK 129 tn í 22 og Már GK 162 tní 22. Þórir GK 152 tn í 22, Þórkatla II GK 179 tn í 21 , Þorsteinn Gíslasson GK 137 tn í 22, allir bátarnir að ofan eru netabátar. Fram GK 77 tn í 14 lína. Geir RE 109 tn í 11 troll. Sandgerði. Ari Einarsson GK 74 tonn í 14, Bára VE 32 tonn í 12. Gunn- hildur GK 113 tn í 15. Muninn GK 81 tn í 17. næstu bátar eru netabátar. Arnarborg GK 140 tonn í 17, Arnþór GK 135 tonní 18. Bergþór KE 171 tonn í 22. Boði KE 102 tonn í 13. Dag- fari ÞH 137 tn í 20, Þorkell Árnasson GK 114 tní 19. Hafnarberg RE 99 tn í 21, Hólmsteinn GK 98 tn í 21. Jón Oddur GK 234 tn í 21. Og svo bátur með vægast sagt ansi skemmtilegu nafni. Lenharður Fógeti KÓ 13, sem var með 19 tonn í 14 róðrum. Mummi GK 217 tn í 8. Ljósfari ÞH 142 tn í 17, Nátfari ÞH 300 tn í 18. Sandgerðingur GK 77 tn í 20. Víðir II GK 141 tn í 19. Birgir RE á færum með 54 tonn í 17 og Skúmur RE 42 tn í 17 líka á færum. . Hjördís GK 33 tn í 12 og Hlýri GK 13 tn í 10 báðir á færum. Elliði GK 127 tn í 12, Jón Gunnlaugs GK 175 tn í 17 , Reynir GK 197 tn í 20 allir þrír á trolli og lönduðu hjá Miðnesi í Sandgerði. Keflavík : Ársæll KE 117 tonn í 17, Baldur KE 80 tonn í 20, Bergvík KE 95 tonn í 18. Freyr KE 95 tn í 15, Gunnar Hámundarsson GK 78 tn í 22. Hagbarður KE 150 tn í 21. Hringur GK 199 tn í 21. Vonin KE 149 tn í 19. Keflvíkingur KE 259 tn í 24. Ólafur Solimann KE 140 tn í 20, Svanur KE 112 tn í 25. Sæborg KE 177 94 tní 21, Sæþór KE 104 tn í 20. Valþór KE 99 tní 21, Vatnsnes KE 166 tn í 22 Skagaröst KE 67 tn í 17. Allt netabátar. Hilmir KE 89 tn í 4 á trolli. Eins og sést á þessu yfirliti af ofan þá var ansi mikið líf í höfnunum þótt enginn mokveiði hafi verið. Endum á að skoða hvernig togarnir voru að fiska í apríl árið 1976. Dag- stjarnan KE var með 346 tn í 3. Framtíðin KE 125 tn í einni löndun. Suðurnes KE 152 tn í 2. Aðalvík KE 222 tn í 2, Erlingur GK 336 tn í 3. Gísli R. Aflafréttir Sýning á Gallerí Fold Tryggvi Ólafsson hefur opnað sýningu á nýrri grafík í Gallerí Fold við Rauðarárstíg Sýninguna nefnir listamaðurinn „Jarðnesk ljós“. Tryggvi hefur notið hylli ís-lensku þjóðarinnar um árabil og hefur lengst af unnið að list sinni í Danmörku þar sem hann bjó í rúm 40 ár. Hann hefur sýnt víða um heim og snéri sér snemma að popplist þar sem hann nýtir sér efni og form bæði frá fortíð og nútíð. Það er mikill skáldskapur í verkum Tryggva, þau eru póetísk, djörf og mjög persónuleg. Eftir slys 2007 flutti Tryggvi til Ís- lands og hefur ekki getað málað síðan þá. Hann er þó ekki alveg að baki dott- inn og því til sönnunar eru grafíkverkin sem hann sýnir nú en þau eru öll unnin hér á Íslandi á þessu ári og því síðasta. Á Neskaupsstað er Málverkasafn Tryggva Ólafssonar, en afar fágætt er að rekin séu sérsöfn með verkum eftir núlifandi höfunda. Sýningunni lýkur 17. maí. Magnúsar molar úr Garði Að venju skrifar Magnús Stefánsson bæjarstjóri molapistla á föstudögumk. Hér kemur brot úr einum molanum. Víðavangshlaup Víðis. Það er víða til siðs að taka sprettinn og hlaupa í tilefni Sumardagsins fyrsta. Áralöng hefð ef fyrir víða- vangi Víðis á Sumardaginn fyrsta, unglingaráð Víðis annast fram- kvæmdina. Á Nesfiskvelli Víðis hlupu margir í tilefni dagsins, börn á öllum aldri og fullorðnir. Eftir að börnin höfðu hlaupið var skorað á foreldra að taka sprett- inn, nokkur hópur tók áskoruninni en sprettirnir voru mis frísklegir ! Haft var á orði að tilefni væri til að veita for- eldrum, öfum eða ömmum viðurkenningu fyrir tilþrif í hlaupinu og hefðu þar ýmsir komið til greina. Aðal málið var þó að taka þátt og vera með í að viðhalda góðri hefð í tilefni dagsins. Að loknu hlaupi voru veitt verðlaun og allir viðstaddir nutu veitinga. Sjólyst. Hollvinir Unu höfðu opið í Sjólyst, íbúðarhúsi Unu í Garði á Sumar- daginn fyrsta. Ég hef fjallað um Unu í fyrri pistlum og vísa til þeirra. Það var gaman að heimsækja Sjólyst, skoða húsið og njóta kaffiveitinga. Hollvinir eiga heiður skilinn fyrir að varðveita húsið og minningu um Unu, margir gestir heimsóttu Unuhús nú í sum- arbyrjun.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.