Reykjanes - 07.05.2015, Síða 12

Reykjanes - 07.05.2015, Síða 12
Project1_Layou t 1 24/11/2011 12:58 Page 1 Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði, sími 511-7000, www.innrammarinn.is Fjarðargötu 19, Hafnarfirði Velkomin á nýtt rammaverkstæði og verslun Úrval tilbúinna ramma og myndaalbúma www.isfell.is Vinnufatnaður Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets: • Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28 • Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19 • Ísnet Húsavík - Barðahúsi • Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi • Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1 • Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1 • Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is Hitaveitu & gasskápar Blikksmiðjan Vík ehf / Skemmuvegur 42, 200 Kópavogi / kt. 4309850279 / Sími: 557-1555 / blikkvik@blikkvik.is fyrir sumarbústaði og heimili Gæði • Þjónusta • Öryggi Hitaveituskápar Við sérsmíðum og eigum líka hitaveitukassa á lager. Einnig smíðum við mikið af kössum á kerrur, bíla ofl. Fáanlegir í mörgum litum. Gasskápar Eigum gasskápa á lager. Læsanlegir og smíðaðir úr áli. Láttu ekki stela af þér kútunum! 7. Maí 201512 Jákvæð rekstrarniðurstaða Sandgerðisbæjar á árinu 2014 Ársreikningur Sandgerðisbæjar fyrir árið 2014 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 21. apríl s.l. Síðari umræðan fer fram 5. maí. Rekstrarniðurstaðan er jákvæð um 43 milljónir króna og 114 millj- ónum króna betri en áætlun ársins gerði ráð fyrir. Niðurstaða ársreikningisins gefur skýrt til kynna að fjárhagslegar að- gerðir síðustu ára eru að skila sér. Undanfarin ár hafa farið fram miklar aðgerðir til að endurskipuleggja fjár- hag sveitarfélagsins og uppfylla ákvæði fjármálareglna sveitarstjórnarlaga. Árið 2014 var haldið áfram með hag- ræðingaraðgerðir auk þess sem farið var í endurfjármögnun skulda og lokið við uppkaup á eignum sem áður voru í eigu Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. Rekstrarniðurstaða fyrir fjár- magnsliði í A og B hluta er jákvæð um 139 millj. kr. Rekstur málaflokka og stofnana er innan áætlunar og oft vel það þrátt fyrir mikla hækkun lífeyris- skuldbindinga. Fjármagnsgjöld umfram fjár- magnstekjur lækka umtalsvert milli ára eða úr 253 milljónum kr. árið 2013 í 96 milljónir kr. árið 2014. Þessi lækkun skýrist m.a. af lágri verðbólgu á árinu, uppkaupum eigna og skuldbreytingu lána. Handbært fé frá rekstri er 262 millj- ónir kr. og hefur hækkað frá fyrra ári um tæpar 87 milljónir. Kennitölur í rekstri sýna að fjárhags- legur styrkur Sandgerðisbæjar er að aukast. Framlegðarhlutfall A og B hluta er 18% og skuldaviðmiðið er komið í 201% en var tæp 227% árið 2013 og hefur lækkað umtalsvert á undan- förnum árum. Skuldaviðmiðið fyrir A hluta er 149% en var árið 2013 tæp 170%. Ef áætlanir næstu ára standast mun rekstrarjöfnuður nást eigi síðar en á árinu 2017 og skuldaviðmiðið fyrir A og B hluta verður komið niður fyrir hin lögbundnu 150% á árinu 2019. „Þessi niðurstaða ársreikninganna er mjög jákvæð fyrir okkur Sand- gerðinga“ segir Ólafur Þór Ólafsson forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæj- ar.“Í fyrsta skipti frá árinu 2007 er rekstur Sandgerðisbæjar réttu megin við núllið eftir að tekið hefur verið tillit til fjármagnsliða sem er einstaklega ánægjulegt og sýnir að aðgerðir síðustu ára eru að skila árangri. Þá gleður það ekki síður að við færumst nær fjár- hagslegum markmiðum okkar hraðar en áætlanir gera ráð fyrir og ættum að standast öll fjárhagsleg viðmið sveit- arstjórnalaga innan fjögura ára“ segir Ólafur jafnframt.“Ég vil ekki draga úr mikilvægi ytri þátta en tel þó að þennan árangur megi að stærstum hluta þakka samstöðu allra aðila í þessu erfiða ver- kefni hvort sem það er í bæjarstjórn, í starfsliði sveitarfélagsins eða meðal íbúa. Svona góður árangur næst ekki nema allir standi saman“. Mikil breyting á tíu árum Gróður fyrir fólk með stuðn-ingi Grindavíkurbæjar hefur staðið fyrir uppgræðslu austan í Lágafelli við rætur fjallsins Þorbjörns. Þetta er í gamalli námu. Grunnsólanemendur í Grindavík hafa komið að verkinu. Eins og sjá má á þessum tveimur myndum hefur mikil umbreyting átt sér stað. Önnur myndin er tekin í lok maí 2004 en hin myndin er tekin á sama stað 12. júlí 2014.

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.