Reykjavík - 10.01.2015, Síða 2

Reykjavík - 10.01.2015, Síða 2
2 10. Janúar 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. Vilja skýringar á ruslinu Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-ins hafa lagt fram fyrirspurn í umhverfis- og skipulagsráði borgarinnar og vilja vita hvers vegna sorphirða klikkaði í sumum hverfum borgarinnar fyrir og um hátíðarnar. „Sorphirða var óviðunandi í sumum hverfum borgarinnar desember- mánuði. Skapaði þetta mikil óþægindi og óþrifnað. Óskað er eftir upplýs- ingum um það hvernig staðið var að sorphirðu í þessum mánuði og hvernig á því stendur að ekki var haldið uppi reglubundinni sorphirðu,“ segja þau Áslaug María Friðriksdóttir og Júlíus Vífill Ingvarsson. Kallað eftir rannsóknum Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar og doktor í laxfiskum, kallar eftir því að borgaryf- irvöld og Orkuveitan, standi fyrir frek- ari rannsóknum á Þingvallaurrðanum. „Nú vill svo til, að það er fjármagn fyrir hendi, sem hægt væri að nýta til að rannsaka sérstaklega þá stofna sem lifa fyrir löndum Reykvíkinga. Orkuveitan hefur síðustu ár leigt frá sér réttinn til að veiða urriða fyrir löndum sínum við Þingvallavatn, fyrst og fremst hinn s. k. Ós, en svo nefnist veiðistaður, frægur að fornu og nýju, þar sem Ölfusvatn- sáin fellur í vatnið. Fyrir veiðiréttinn á þessu ári galt ÍON Hótel 4 milljónir króna. Góðu heilli lýsti OR því yfir að afgjaldinu eigi að verja til að rannsaka urriðann í Þingvallavatni. Það var frá- bær ákvörðun og bæði OR og borgar- stjórninni til mikils sóma. Ég tel hins vegar mikilvægt að ganga skrefinu lengra, og að OR – eða borg- arstjórnin – eigi fyrsta kastið að eyrna- merkja þetta fjármagn til rannsókna eingöngu á þeim stofnum, sem hrygna fyrir landi borgarinnar við Þingvalla- vatn. Fyrir því eru mörg rök,“ segir Össur meðal annars í ítarlegri grein um málið hér í blaðinu. Sjá bls. 4. Hanna Birna Kristjánsdóttir skrifar sjálfstæðismönnum: Óskar þess að hafa ekki rætt við lögreglustjóra Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæð-isflokksins og fyrrverandi innanríkisráðherra, segist í nýárs- kveðju til flokksmanna, óska þess að hafa gert margt öðruvísi í lekamálinu. Hún ítrekar sem áður hefur komið fram að hún hafi ekki haft vitneskju um neitt sem máli skiptir. Einnig má á bréfi hennar skilja að hún telji sig ekki hafa haft afskipti af lögreglurannsókn á lekamálinu, enda þótt fram hafi komið að hún hafi gefið Stefáni Eiríkssyni, þáverandi lögreglustjóra, fyrirmæli um yfirheyrslur og látið í veðri vaka að rannsaka þyrfti rannsókn lögreglunnar. Hanna Birna segir meðal annars: „Ég vildi óska að ég hefði fyrr en ég gerði áttað mig á því hversu erfitt málið yrði; vildi óska að ég hefði gert minna af því að útskýra atburðarás og grípa til varna í máli sem ég gat ekki útskýrt; og vildi óska að ég hefði aldrei rætt málið eða átt nokkur samskipti við fyrrverandi lögreglustjóra vegna þess, þrátt fyrir skýringar hans um að hann færi ekki með stjórn málsins. Því hef ég þegar komið til umboðsmanns Alþingis með bréfi í dag,“ segir meðal annars í bréfi Hönnu Birnu. Bréfið er dagsett á fimmtudag. Þegar Hanna Birna ræddi við Stefán um lekamálið var innanríkisráðherra æðsti yfirmaður lögreglumála. Dóms- og lögreglumál voru síðar klofin út úr innanríkisráðuneytinu og forsætisráð- herra settur yfir málaflokkinn. Ólöf Nordal sinnir nú þessum verkum. Hanna Birna segist ætla að taka sér „nokkurra vikna frí“ frá þingsetu, en í framtíðinni hyggist hún í stjórnmálum sem öðru „fylgja hjartanu meira en hefðunum“ í stjórnmálum sem annars staðar. Handrit loks á sýningu Stefnt er að því að sýning á ís-lenskum handritum í vörslu Árnastofnunar hefjist í febrúar. Íslensk miðaldahandrit hafa ekki verið til sýnis í höfuðborginni um nokkurt skeið, frá því að handritasýningu Árnastofnunar í Þjóðmenningarhúsinu var lokað fyrir allnokkru síðan. Til stendur að sýningin verði í Land- námsskálanum í Aðalstræti. Hún verði opnuð í byrjun febrúar og standi í tvö ár. Árnastofnun lánar Reykjavíkurborg handritin til sýningarinnar. Á fundi innkauparáðs Reykjavíkur- borgar á dögunum var samþykkt að víkja frá innkaupareglum borgar- innar vegna öryggisgæslu í tengslum við handritin. Þar var rifjað upp að handritin eru ómetanleg menningar- verðmæti í eigu þjóðarinnar og að ströng skilyrði séu sett um aðstöðu og öryggisbúnað á sýningarstað. Árnastofnun hefur lengi beðið eftir varanlegri lausn á húsnæðismálum sínum, en í framtíðarhúsnæði er gert ráð fyrir handritasýningu. Búið er að grafa grunn fyrir Húsi íslenskra fræða á Melunum, en fjárveitingar hafa ekki fengist fyrir frekari fram- kvæmdum. Grunnurinn gengur undir ýmsum nöfnum, en „Árnapyttur“ er eitt þeirra. Samningur um friðarsetur Skrifað var undir samstarfssamn-ing Reykjavíkurborgar og Há-skóla Íslands í vikunni um undir- búning friðarseturs. Hugmyndin er að setrið taki til starfa í haust, en það verði hýst innan Alþjóðamálastofn- unar Háskóla Íslands. Í ráðgjafarnefnd setursins verða Jón Gnarr, sem verður formaður, Silja Bára Ómarsdóttir, frá Háskólanum og Svanhildur Konráðs- dóttir fyrir hönd borgarinnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifuði undir samning um þetta ásamt Kristínu Ing- ólfsdóttur Háskólarektor. Markmið friðarseturs er að styrkja Reykjavík sem borg friðar og vera til ráðgjafar um hvernig Reykjavík geti unnið að friði hér heima og að heiman, segir í frétt frá borginni. Með starfi friðarseturs verði stuðlað að uppbyggi- legum samskiptum, minnkandi ofbeldi og friðsamlegum samskiptum ríkja og alþjóðastofnana. Friðarsetur er ekki ný hugmynd í Reykjavík. Þannig talaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fyrir slíku í borgarstjóra- tíð sinni árið 2006. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins deildu ítrekað á Jón Gnarr í borgarstjóratíð hans á fyrri hluta síðasta árs, fyrir að vilja tak- marka komur herskipa í reykvískar hafnir. Seltjarnarnes: Deilt um fjárhagsaðstoð Ákveðið hefur verið að hækka upphæð fjárhagsaðstoðar á Seltjarnarnesi um tíu þúsund krónur frá því sem var. Upphæð fjár- hagsaðstoðar verður á þessu ári u.þ.b. 158 þúsund krónur á mánuði. Áður hafði upphæðin verið óbreytt, um 149 þúsund krónur á mánuði í fjögur ár. Nokkuð var deilt um málið í nefndum bæjarins, en fulltrúar Sam- fylkingarinnar í bæjarstjórn og fjöl- skylduráði vildu að fjárhagsaðstoðin yrði á pari við aðstoðina í Reykjavík og færi upp undir 170 þúsund krónur á mánuði. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingis samþykkti fyrir jól að stytta tímabil atvinnuleysisbóta um hálft ár. Það hefur í för með sér að hundruð manna sem ekki hafa fundið vinnu verða að leita til sveitarfélaga með framfær- slu. Fjárhagsaðstoð sveitarfélaga er í öllum tilvikum lægri upphæð heldur en fjárhæð atvinnuleysisbóta og fylgja fjárhagsaðstoðinni stundum ýmsar reglur, til dæmis um skerðingar vegna tekna annarra á heimili. Á nesinu veitir bæjarfélagið einnig aðstoð og styrki vegna barna, húsbún- aðar og fleira. Fjölgun farþega Farþegum hjá Strætó fjölgaði töluvert milli ára. Samkvæmt skýrslu yfir talningu á síðasta ári, hafði farþegum fjölgað um 4,4 prósentum milli ára í október, eða um ríflega 45 þúsund. Það er tvisvar sinnum meiri fjölgun en árið á undan. Frökkum vottuð samúð Dagur B. Eggertsson borg-arstjóri hefur sent kveðju til borgarstjórans í París, Anne Hidalgo. Þar vottar hann henni samúð vegna voðaverkanna á ritstjórn- arskrifstofum Charlie Hebdo. Tíu voru drepnir á ritstjórnarskrifstofum blaðsins og tveir lögreglumenn í árás þriggja vopnaðra manna. Yfirlýsing borgarstjóra Reykjavíkur er svo hljóð- andi: „Borgarstjóri Anne Hidalgo. Ég votta yður fyrir hönd allra íbúa Reykjavíkur samúð vegna voðaverk- anna í París 7. janúar síðastliðinn. Málfrelsi er grundvallarmann- réttindi sem allt samfélagið þarf að standa vörð um. Hugur okkar er hjá íbúum Parísarborgar, fórnarlömbum árásarinnar, ættingjum þeirra og vinum.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for- sætisráðherra, hefur einnig rætt við Philippe O’Quin, sendiherra Frakk- lands hér á landi og vottað Frökkum samúð fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og íslensku þjóðarinnar. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur jafn- framt sent Frökkum samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni. Silja Bára, Björn Blöndal, Dagur B., Jón Gnarr, Svanhildur og Kristín. Hanna Birna sendi sjálfstæðisfólki kveðju. Elsti hluti Hauksbókar er frá því um 1300. Haukur Erlendsson lögmaður sem bókin er kennd við skrifað meðal annars eina gerð Landnámabókar.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.