Reykjavík - 10.01.2015, Side 4

Reykjavík - 10.01.2015, Side 4
4 10. Janúar 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Skuld Reykjavíkur við Þingvallaurriðann Reykvíkingar gera sér fæstir grein fyrir að við eigum stóran hlut í einum merkasta urriðastofni í heiminum, sem á heimkynni sín í Þingvallavatni. Skýringin á hlutdeild okkar felst í því að Orkuveitan – og þarmeð íbúar í Reykjavík – eiga jarð- irnar Ölfusvatn og Nesjavelli, sem liggja vestanmegin að Þingvallavatni. Hluti urriðans í vatninu hrygnir við uppsprettur í víkunum sem skerast inn í Nesjahraunið í landi Nesjavalla, og í Ölfusvatnsánni, litlu straumvatni sem fellur í vatnið úr Grafningi. Fáir gera sér grein fyrir að Þing- vallaurriðinn var við það að deyja út á síðustu áratugum nýliðinnar aldar. Honum var bjargað á elleftu stundu, og segja má að hann sé ekki ennþá úr tor- tímingarháska. Við borgarbúar, og þeir sem kosnir eru til að stjórna borginni, berum því ábyrgð á að vernda hann, sérstaklega þá stofna sem tilheyra löndum Reykvíkinga. Forsenda þess eru rannsóknir á stofnunum. Sérstakir stofnar Þingvallaurriðinn er afar sérstakur fiskur vegna uppruna, mikillar stærðar og óvanalegs lífsferils. Hann er afkom- andi stórvaxinna sjóbirtinga, líklega keltneskra, sem lokuðust inni í vatn- inu, þegar ókleifir fossar mynduðust í Soginu fyrir níu þúsund árum. Þing- vallaurriðinn er af stofni stórurriða, sem dreifðu sér í lok ísaldarinnar. Langflestir stofnanna eru nú útdauðir, og þeir sem eftir lifa eru langflestir mjög litlir, og í útrýmingarhættu. Fáir gera sér grein fyrir að Þing- vallaurriðinn er ekki aðeins langstærsti urriði á Íslandi, heldur í heiminum. Meðalþyngd hans eru 11 pund sem er ívið meira en meðalþyngd stærstu laxastofna á Íslandi. Stærsti ur- riðastofn sem þekkist utan Íslands, í Noregi, er fullorðinn að meðaltali um 8 pund. Fyrir virkjunina 1959 veidd- ust upp í 32 punda urriðar. Á síðustu árum, eftir að urriðinn hefur blómgast á ný vegna verndunaraðgerða, hugsan- lega samfara hlýnandi veðurfari, hafa margir stórurriðar komið aftur fram í veiðinni. Sl. vor veiddist í fyrsta skipti í 70 ár urriði sem var um 30 pund. Lífsferill Þingvallaurriðans er líka einstakur. Hann verður kynþroska mjög seint miðað við aðra urriða, og miklu eldri. Elstu urriðarnir sem veiðst hafa, eða endurheimst merktir, eru 16 ára, en líklega verður hann nokkuð eldri. Síðbúinn kynþroski veldur því að hann er orðinn stórvax- inn þegar hann hrygnir í fyrsta sinn, og hluti stofnsins tekur sér hvíld frá hrygningu, eitt eða fleiri ár, og nær þá gjarnan að vaxa mjög hratt til viðbótar. Það eru metfiskarnir sem veiðast. Frábær ákvörðun OR Nú vill svo til, að það er fjármagn fyrir hendi, sem hægt væri að nýta til að rannsaka sérstaklega þá stofna sem lifa fyrir löndum Reykvíkinga. Orkuveitan hefur síðustu ár leigt frá sér réttinn til að veiða urriða fyrir löndum sínum við Þingvallavatn, fyrst og fremst hinn s.k. Ós, en svo nefnist veiðistaður, frægur að fornu og nýju, þar sem Ölfusvatnsáin fellur í vatnið. Fyrir veiðiréttinn á þessu ári galt ÍON Hótel 4 milljónir króna. Góðu heilli lýsti OR því yfir að afgjaldinu eigi að verja til að rannsaka urriðann í Þing- vallavatni. Það var frábær ákvörðun og bæði OR og borgarstjórninni til mikils sóma. Ég tel hins vegar mikilvægt að ganga skrefinu lengra, og að OR – eða borg- arstjórnin – eigi fyrsta kastið að eyrna- merkja þetta fjármagn til rannsókna eingöngu á þeim stofnum, sem hrygna fyrir landi borgarinnar við Þingvalla- vatn. Fyrir því eru mörg rök. Tvenn tel ég hér: Í fyrsta lagi var það rafmagnsfram- leiðsla fyrir Reykvíkinga, sem leiddi til þess að skrúfað var fyrir útfall Þing- vallavatns, Efra-Sogið, og vatnið tekið til orkuframleiðslu í Steingrímsstöð. Afleiðingin varð sú að stærsti og mik- ilvægasti urriðastofninn, sem tengdist Efra-Sogi, gjöreyddist. En í kjölfarið urðu líka breytingar, m.a. hækkun vatnsborðs og um hríð miklar og ónáttúrulegar sveiflur á yfirborðinu, sem höfðu verulega slæm áhrif á litla stofna sem hrygna við Nesjahraunið. Sumir eyddust líklega. Reykjavík á því þessum stofnum skuld að gjalda. Hvaða skoðun sem maður getur haft á „leiðréttingunni“ svokölluðu og hugmynda- fræðinni þar að baki, breytir því ekki að hún er staðreynd. Alþingi hefur samþykkt lög um þetta og þegar er búið að ráðstafa tugum milljarða til þessa. Í stað þess að hrægammasjóðirnir hans Sigmundar Davíðs fjármagni þetta, hefur verið lagður á bankaskattur. Féð fer inn í ríkissjóð eins og allir aðrir skattar al- mennings, og þaðan í „leiðréttinguna“. Ókei. Kannski er ekkert vond hugmynd að bankaskatturinn standi undir þessu. Kannski er það bara frábært … nema. Arion banki hefur ákveðið að hækka vexti á hluta lána sinna. Þetta mun óhjá- kvæmilega hafa í för með sér að éta upp „leiðréttinguna“ að hluta eða öllu leyti hjá þeim sem kannski fengu. Bankinn réttlætir vaxtahækkun í löngu máli á heimasíðu sinni og segir svo þetta: „ Að auki er ekki hægt að líta framhjá því að bankaskatturinn sem hjá Arion banka er áætlaður tæpir þrír milljarðar króna fyrir árið 2014 hefur áhrif til hækkunar vaxta þar sem hann leggst á allar skuldir, m.ö.o. fjármögnun bankans, umfram 50 milljarða króna.“ Bankinn ætlar með öðrum orðum að velta bankaskattinum – skattinum sem á að borga fyrir „leiðréttinguna“ hans Sigmundar – beint yfir á viðskiptavini sína. Þeir munu borga hana úr eigin vasa. Hér hefði ef til vill verið betur heima setið en af stað farið. En tvennt vekur athygli. Annars vegar tilkynning á vef bankans frá því í nóvember. Þar segir meðal annars: „Hagnaður Arion banka á fyrstu níu mánuðum ársins 2014 nam 22,6 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 10,1 milljarð króna á sama tímabili 2013.“ Á þetta að vera einhver brandari? Nú vill svo til að bróðurparturinn í bankanum er í eigu Kaupþings sem er í slita- meðferð. Kaupþing er í eigu kröfuhafa. Þar á meðal eru hrægammasjóðirnir hans Sigmundar Davíðs. Þetta var fyrra atriðið sem vekur athygli. Hrægammasjóðirnir taka inn tugi milljarða af rekstri bankans og velta bankaskattinum yfir á viðskiptavini sína. Kannski kemur þetta ekki á óvart. Það er hins vegar annað sem gerir það. Og það er hitt atriðið. Hefur einhver heyrt múkk í forsætisráðherranum um þetta mál? Það hefur allavega farið framhjá mér. Maðurinn hefur skrifað og talað fleiri orð en tölu verður komið á um hrægammasjóði, svigrúmið og „heimilin“. Þá þegir hann, þegar loksins var tilefni fyrir hann að opna munninn. Ingimar Karl Helgason Leiðari Bankinn „leiðréttir“ 660 Forsætisráðherra bað biskup að óska eftir leiðréttingu á fé til kirkj- unnar. Þar var skorið niður eins og víða annars staðar. Rætt er um 660 milljónir króna. Ekki hefur frést af bréfaskriftum forsætisráðherrans til skóla, spítala, Ríkisúvarps og annarra stofnana, með einlægri ósk um að beðið verði um leiðréttingu á niðurskurði. Brooklyn B r e i ð h o l t i ð hefur stundum verið kallað Brooklyn, því þar sé allt á uppleið og mjög hipp og kúl. Enda hafa borgaryfirvöld lagt sig fram um að bæta umhverfið, til dæmis með fallegum listaverkum. Forgangs- röðin er þó greinilega misjöfn eftir verkefnum, því í sorphirðunni eru þessir hipp og kúl aftast í forgangs- röðinni, og vörðu jólunum með yfirfullar tunnur og sorpgeymslur. Til eftirbreytni? Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri S j á l f s t æ ð - isf lokksins í Garðabæ og framkvæmdastjóri fyrirtækis í velferðarþjónustu, vakti mikla athygli í vikunni, fyrir að segja að Ísland kæmist ekki með tærnar þar sem Albanía hefur hælana, í sumum þáttum heilbrigðisþjónustu; nefnilega einkavæðingu. Fáir telja Albaníu til eftirbreytni í heilbrigð- ismálum. J og séra J VR hefur stefnt íslenska ríkinu fyrir að stytta fyrirvaralaust tímabil at- vinnuleysisbóta. Hagur hundruða Íslendinga versnaði til muna um ára- mót þegar fólki var hent út af bótum og vísað á sveit. Þegar eftirlaunakjör ráðherra voru rædd hér um árið, þá var því haldið fram að ekki mætti skerða áunnin réttindi. Af hverju á þetta ekki við um þá sem höfðu áunnið sér rétt til þriggja ára bóta í atvinnuleysi? Fylgið fast Gallup birti könnun á fylgi flokk- anna í vikunni. Sjálfstæðisflokk- urinn mælist með 27,1%, Sam- fylking með 20,3, Vinstri græn og Björt framtíð 12,8 prósent, Fram- sóknarflokkurinn 11,1 og Píratar 10,7%. 36,6 prósent segjast styðja ríkisstjórnina, sem er litlu minna en samanlagt fylgi stjórnarflokkanna. Aðeins þrír af hverjum fjórum sem spurðir voru nefndu flokk. Íslendingur í Guantanamo Grapevine upplýsti í vikunni að fyrirtæki sem er að hluta í eigu Ís- lendings sjái um alla birgðaflutninga til herstöðvar Bandaríkjamanna í Guantanamo. Guðmundur Kærne- sted er aðstoðarforstjóri fyrirtæk- isins og annar stofnenda TransAtl- anticLines LLC. Fjölda manns hefur verið haldið án ákæru í fjöldamörg ár í fangabúðum Bandaríkjahers í Guantanamo. Í fréttumUmmæli með erindi: „Við erum enn slegin yfir því sem gerðist, en við fórnum aldrei gildum okkar. Okkar svar er aukið lýðræði, aukin heilindi og aukin mennska.“ - Jens Stoltenberg, for- sætisráðherra Noregs, eftir hryðjuverk Anders Behring Breiviks í Útey og Osló, 2011. Loftárás innan frá Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins skrifaði mikla grein í DV á dögunum, þar sem hún fjallaði um framlög til tækjakaupa á Landspítala. Í greininni fer hún yfir dásemdirnar í heilbrigðiskerfinu eftir að núverandi stjórnarflokkar tóku við. Áhugavert er samt sem áður að hún blæs á orð forsætisráðherra og for- manns síns um sjöföldun á framlögum núverandi ríkisstjórnar til tækjakaupa. Hún sýnir svo ekki verður um villst, að framlögin hafa sannarlega aukist lítillega, en ekki er hægt að kalla það margföldun, heldur væri réttara að tala um nokkur prósent, nokkrar millj- ónir króna sem hvergi nærri dugar til. Minna mætti það ekki vera ef rík- issjóður er rekinn með tugmilljarða afgangi. Sennilega mun forsætisráðherrann enn kvarta undan loftárásum, enda þótt í þetta sinn hafi atlagan komið innan frá. Dæmi Sigmundur Davíð talaði annars um leka í áramótaþætti Stöðvar 2 á dögunum og dylgjaði um að persónuupplýsingum væri oft lekið úr stjórnsýslunni og talaði um síðasta kjörtímabil. Enn hefur hann ekki nefnt dæmi. Annars var hlegið að því í heitum potti eftir áramótin að forsætisráðherr- ann væri enn að berjast við Jóhönnu Sigurðardóttur, en hún er sem kunnugt er hætt í stjórnmálum fyrir nokkrum misserum. Ósýnileg hönd Hin ósýnilega bláa hönd markaðarins komst aftur í umræðuna, en hana hafa sjálfstæðismenn ekki nefnt frá því fyrir hrun. Að þessu sinni var það innan- ríkisráðherrann nýi, Ólöf Nordal, sem vill láta „markaðnum“ og ósýnilegri krumlu hans um að fylgjast með því að verslunin skili verðlækkunum til almennings. Ríkisútgerðin Formaður Samtaka sjávarútvegsfyrir- tækja kallar ríkið þriðju stærstu útgerð landsins, og kallar línuívilnun, byggða- kvóta og strandveiðar sér til vitnis. Þetta stenst enga skoðun, þótt Fréttablaðinu þyki gaman að rifja ummælin upp. En með formúlu formannsins má sosum segja að fólk sem kemst fyrir í hálfum strætisvagni fái megnið af fiskveiði- kvótanum gefins og sú fámenna klíka sé stærsti útgerðarmaður landsins. Og með sömu formúlu verða það líklega fáir fiskar sem hver hinna rúmlega 320 þúsunda íbúa landsins fengju í sinn hlut. Og fáar krónur. héðan og þaðan … Reykjavík vikublað 1. Tbl. 6. áRganguR 2015 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími: 659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com, Blaðamaður: Atli Þór Fanndal. Netfang: atli@ thorfanndal.com. Menningarblaðamaður: Hildur Björgvinsdóttir. Netfang: hildurbjorgvins@gmail.com. Matarblaðamaður: Svavar Halldórsson. Sími. 869-4940. Netfang. svavar@islenskurmatur.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Landsprent, 50.000 eintök. dreifing: Fríblaðinu er dreiFt í 50.000 e intökum í allar íbúðir í reykjavík. Höfundur er Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík Framhald á bls. 12

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.