Reykjavík - 10.01.2015, Blaðsíða 8
8 10. Janúar 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Ár mikilla tíðinda – stiklað á stóru 2014
Fjölmargt bar til tíðinda á árinu sem rétt er liðið. Reykjavík vikublað stiklar hér á stóru í fréttum og umfjöllun
blaðsins á síðasta ári. Viðfangsefnin hafa verið af ýmsu tagi. Mikið hefur verið fjallað um pólitík, en einnig og
ekki síður menningu, menningarpólitík, mannlíf, skóla- og leikskólamál, skipulag, atvinnumál, einkavæðingu,
almannaþjónustu og margt margt fleira. Svo má ekki gleyma okkar vikulegu umfjöllun um mat og Hringborðinu,
þar sem fjölbreyttur hópur fólks úr öllum áttum hefur veitt lesendum Reykjavíkur vikublaðs mikilvægar hliðar
á þeim málefnum sem hæst hefur borið í samfélaginu hverju sinni. Fjölmargar fréttir, fréttaskýringar og úttektir
blaðsins vöktu mikla athygli og var margt „skúbbið“ tekið upp í öðrum fjölmiðlum. Eðli málsins samkvæmt
kemst ekki nærri því allt fyrir sem gjarnan ætti heima í upprifjun af þessu tagi, en þetta er með því sem okkur
á ritstjórn Reykjavíkur vikublaðs þykir hafa borið hvað hæst í okkar umfjöllun á árinu.
Janúar
Reykjavík vikublað greindi frá því í
upphafi árs, fyrst fjölmiðla, að ríkis-
saksóknari hefði mál Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur til athugunar. Leka-
málið var svo reglulega til umfjöllunar
í blaðinu það sem eftir lifði árs. Meðal
annars var rætt við flesta þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, þar á meðal Vil-
hjálm Árnason sem sakaði lögregluna
um að leka gögnum úr málinu. Einnig
var greint frá því um miðjan október
að ÖSE, alþjóðleg stofnun, hefði málið
til skoðunar. Umfjöllun hélt áfram og
sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir af
sér embætti undir lok ársins, en þá
hafði aðstoðarmaður hennar Gísli
Freyr Valdórsson verið dæmdur fyrir
að koma minnisblaði um hælisleitanda
og fólk sem honum tengdist í hendur
fjölmiðla.
Greint var frá ákærum lögreglu á
hendur níu manns sem mótmæltu
vegaframkvæmdum í Gálgahrauni
haustið áður. Fólkið var dæmt til
sektargreiðslu síðar á árinu, fyrir að
óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Mál-
inu er ekki lokið.
Febrúar
Reykjavík vikublað fjallaði ítarlega
í fréttum og fréttaskýringum um
einkavæðingu á veitufyrirtækinu HS
veitum. Meðal annars var upplýst
að tilgangur Ursusar, félags Heiðars
Más Guðjónssonar, er að fjárfesta í
innviðum hér á landi „með arðsemi
eigenda“ að leiðarljósi. Þá var upplýst
að Orkustofnun teldi þessa einkavæð-
ingu ekki samræmast ákvæðum raf-
orkulaga, auk þess að Orkuveita
Reykjavíkur, sem var meðal þeirra sem
seldu fjárfestinum sinn hlut, framseldi
arðgreiðslur við söluna.
„Jafnréttisbaráttunni er alls ekki
lokið. Ég tel að henni ljúki aldrei.
Við verðum alltaf að halda áfram og
varðveita þau réttindi sem nást,“ sagði
Nóbelsverðlaunahafinn dr. Shirin Ed-
badi í einkaviðtali við Reykjavík viku-
blað. Blaðið ræddi einnig um jafn-
réttismál við Gro Harlem Bruntland,
fyrrverandi forsætisráðherra Noregs.
Mars
Ríkisstjórnin kynnti „Evrópustefnu“
sína þegar tilkynnt var að aðildarvið-
ræðum við Evrópusambandið yrði
hætt. Reykjavík vikublað upplýsti að
stefna þessi væri ófjármögnuð með
öllu, en til stæði að vinna tillögur
um það samhliða fjárlagavinnunni
í haust. Fátt hefur frést af málinu.
Einnig greindi blaðið fra því að hátt
í 10 þúsund reglur og tilskipanir frá
Evrópusambandinu hafa tekið gildi
hér á landi, frá því að Ísland gekk í
Evrópska efnahagssvæðið. ESB gerð-
irnar sem fengið hefuð lagagildi hér
væru miklum mun fleiri en íslensk lög
sem Alþingi samþykkti.
Fjallað var um vandræði framhalds-
skólanema sem sótt höfðu um náms-
lán, vegna verkfalls framhaldsskóla-
kennara. Tækniskólinn í Reykjavík er
fjölmennasti framhaldsskóli landsins,
og fjölmargir nemendur þar reiða sig á
Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Apríl
Brennisteinsmengun frá Hellisheiðar-
virkjun er meiri en frá stærsta álveri
landsins, sagði blaðið á forsíðu í lok
apríl. Orkuveita Reykjavíkur sóttist
eftir undanþágu frá hertum reglum
um þessa mengun, og fékk að lokum
að uppfylltum skilyrðum.
Maí
Lani Yamamoto, sem tilnefnd var til
barnabókarverðlauna Norðurlanda-
ráðs, ásamt Andra Snæ Magnasyni, var
í ítarlegu viðtali í blaðinu.
Í þessum mánuði birti Reykjavík
vikublað ítarlega úttekt sem sýndi
að 90 prósent allra styrkja sjávarút-
vegsfyrirtækja til stjórnmálaflokka,
hefðu runnið til Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins.
Ítarlega var fjallað um borgar-
stjórnarkosningar, en blaðið hafði frá
því um veturinn birt ítarleg viðtöl við
oddvita allra flokka sem buðu fram í
kosningunum. Einnig voru allar kosn-
ingaskrifstofur heimsóttar og smakkað
á bakkelsinu.
Júní
Upplýst var að Landsvirkjun hefði
sjálf látið gera fjölmargar breytingar á
Wikipediu síðu um fyrirtækið. Margar
breytingarnar voru gildishlaðnar og
höfðu á sér yfirbragð „pr-mennsku“
sem ekki þykir við hæfi í þessari al-
fræðiorðabók.
Benedikt Jóhannesson, maðurinn á
bak við stjórnmálaaflið Viðreisn, sagði
sig úr Sjálfstæðisflokknum í kjölfar við-
tals við Reykjavík vikublað.
Júlí
Reykjavík vikublað greindi frá því að
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefði
ákveðið að hækka laun stjórnarmanna.
Laun stjórnarmanna höfðu þá hækkað
um 16,5 prósent á tveimur árum.
Ítarleg úttektir voru birtar á markaðs-
hlutdeild fyrirtækja í smásöluverslun í
Reykjavík. Fram kom að sjóðir á vegum
Arion banka og nokkrir lífeyrissjóðir,
áttu hlut í tveimur stærstu fyrirtækjum
á matvörumarkaði, sem samanlagt
væru með 4/5 markaðshlutdeildar.
Ráðherra samkeppnismála hefur ekki
sinnt ítrekuðum óskum blaðsins um
viðtal um þessa stöðu frá því í sumar.
Ágúst
Greint var frá 600 milljóna króna út-
gjöldum borgarinnar til Knattspyrnu-
sambands Íslands vegna þjóðarleik-
vangsins í Laugardal.
September
„Þessum áformum þarf að breyta“ sagði
í forsíðufyrirsögn blaðsins um miðjan
september. Þá var ítarlega fjallað um
þau áform ríkisstjórnarinnar að skerða
bótatímabil atvinnuleysisbóta og hvaða
áhrif þessar aðgerðir myndu hafa á bæði
fjárhag Reykjavíkurborgar, og ekki síður
á afkomu hundruða Reykjavíkinga.
Október
Málefni Strætó voru mjög áberandi
í Reykjavík vikublaði á haustdögum.
Greint var frá því að þáverandi fram-
kvæmdastjóri hefði hótað starfsfólki
brottrekstri, ef að vildi neyta andmæla-
réttar vegna fyrirhugaðra breytinga á
vögnum byggðasamlagsins. Einnig að
útboðum hefði verið hótað til þess að
halda launum niðri. Framkæmdastjóri
Strætós lét af störfum síðar á árinu.
Vopnamálið rataði einnig á síður
Reykjavíkur vikublaðs, en blaðið átti
frumkvæði að því að sækja lykilupp-
lýsingar í málinu til norskra yfirvalda.
Umræða um hvort lögregla skyldi bera
vopn var einnig áberandi. Jafnframt
var upplýst, þvert á yfirlýsingar, að til
hefði staðið að greiða Norðmönnum
fyrir vopn.
Nóvember
Reykjavík vikublað greindi frá því að
ríkissaksóknari hefði krafist opinna
réttarhalda í 40 málum þar sem karlar
voru ákærðir fyrir vændiskaup. Kröfu
ríkissaksóknara var hafnað. Ritstjóri
Reykjavíkur vikublaðs setti einnig
fram slíka kröfu og fékk nei, eins og
saksóknarinn. Aðstoðarlögreglustjóri
höfuðborgarsvæðisins gagnrýndi dóm-
stóla í viðtali við blaðið. Taldi að þessi
réttarhöld ættu að vera opin og að dóm-
stólar og fleiri þyrfti að fræði betur um
mál sem tengdust mansali og vændi.
„Á ég þá líka að vinna á nóttunni,“
sagði Kristín Lárusdóttir, sellóleikari og
tónlistarkennari í verkfalli í viðtali við
blaðið. Þá höfðu tónlistarkennarar veri
í verkfalli vikum saman, en yfirvöld í
Reykjavík voru harðlega gagnrýnd í
málinu. Einnig var vísað á ríkið sem
ekki stóð við framlög til tónlistar-
kennslu.
Desember
Tíu milljarða króna fyrirhugð lán-
taka Orkuveitu Reykjavíkur var
ein af meginfréttum blaðsins í jóla-
mánuðinum, en samkvæmt áætlun um
endurreisn fyrirtækisins, má það ekki
taka lán fyrr en á árinu 2016.
Rækilega var fjallað um stefnu ríkis-
stjórnarinnar eins og hún birtist í frum-
varpil til fjárlaga þessa árs. „Niður-
skurður, brauðmolar, nýfrjálshyggja“
voru orð sem fræðimenn notuðu til
að lýsa stefnunni.
Hanna Birna sagði af sér ráðherraembætti. aðstoðarmaður hennar var dæmdur
í fangelsi vegna lekamálsins. Mynd: Pressphotos.biz.
Svona fór Vegagerðin að í Gálgahrauni. 40 voru handtekinir en 9 ákærðir
og dæmdir.
réttarhöld í vændiskaupamálum eru
lokuð. Mynd: Pressphotos.biz.
Þrátt fyrir miklar rigningar í sumar kom þó einn og einn dagur þar sem sólin
skein og allir gátu notið sín.
Kristín Lárusdóttir við vinnu sína.
Kaffið á kosningaskrifstofum var
vegið og metið.
Síðasta lagi fyrir fréttir var skipt út fyrir auglýsingar og var hart deilt um
málið. alvarlegar deilur voru einnig innan Strætó bs.