Reykjavík - 10.01.2015, Side 10

Reykjavík - 10.01.2015, Side 10
10 10. Janúar 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Minjastofnun vill vernda Umferðarmiðstöðina „Minjastofnun Íslands telur að Umferðarmiðstöðin hafi ótvírætt varðveislu- gildi og mun leggjast gegn því að hún verði rifin, komi slík tillaga fram,“ segir í umsögn Minjastofnunar Íslands til umhverfis- og skipulagssviðs Reykja- víkurborgar, vegna fyrirspurnar borgarinnar um afstöðu stofnunarinnnar. Stílhrein og látlaus „Umferðarmiðstöðin er að stofni til stílhrein og látlaus bygging og gott dæmi um framsækna byggingarlist 6. áratugarins. Listrænt gildi hennar felst einkum í stílhreinu ytra útliti og innra rými afgreiðslusalarins, þar sem rökrétt og einföld uppbygging hússins kemur skýrt fram. Þá hefur Umferða- miðstöðin menningarsögulegt gildi sem opinber bygging sem lengi hefur þjónað sem ein helsta samgöngumið- stöð Reykjavíkur,“ segir Minjastofnun. Um leið er bent á að byggingin er farin að láta töluvert á sjá sökum viðhalds- leysis. Má byggja við Þótt Minjastofnun leggist gegn niður- rifi miðstöðvarinnar er ekki gerð athugasemd við byggt verði við hana. „Hins vegar mælir ekkert á móti því að byggingin verði endurnýjuð og stækkuð, mögulega sem hluti af stærri byggingarheild líkt og hugmyndir voru um í upphafi. Burðarkerfi hússins er einfalt og mögulegt er að breyta nýt- ingu og skipulagi innan dyra án þess að raska eiginleikum rýmisins. Hið sama á við um ytra byrði hússins. Mikilvægt er þó að allar endurbætur og viðbyggingar verði hannaðar með næmni og virðingu fyrir listrænum einkennum hins upphaflega húss.“ Endurómun á eldra áliti Í raun er umsögnin endurómun á 15 ára gamalli umsögn Árbæjarsafns um menningarlegt verðmæti byggingar- innar. „Reykjavíkurborg óskaði þá álits safnsins til verndun hússins. Þar segir að æskilegt sé að húsið sé endurnýjað og helst stækkað þannig að það verði hluti af stærri heild líkt og hugmyndin var í upphafi. Um leið er bent á að húsið hafi raunar ekki náð að festast í sessi sem hluti af stærri bæjarheild og því ekki gerð athugasemd við að reiturinn sem húsið er á taki miklum breytingum meðfram skipulagi. „Sé það mat Borgarskipulags [forvera um- hverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur- borgar] að mikilvægum umbótum í framtíðarskipulagi miðborgarinnar verði ekki náð fram nema með niður- rifi hússins mun minjavarlsan ekki gera skilyrðislausa kröfu um varðveislu byggingarinnar. Niðurrif verðu þó að telja afarkost sem eingungis er unnt að réttlæta ef í staðinn koma nýbyggingar í mjög háum gæðaflokki er hafi veruleg jákvæð áhrif á þróun og ásýnd borgar- innar,“ segir í umsögninni frá því rétt fyrir aldamót. Byggingalist eftirstríðs Umferðarmiðstöð BSÍ við Vatnsmýrar- veg var teiknuð af Gunnari Hanssyni árið 1960. Upphaflega var gert ráð fyrir viðbótarálmum til beggja enda og var byggingin þannig hugsuð sem hluti af stærri húsasamstæðu. Ekki varð af þessum viðbyggingum. Árið 1987 var gert milliloft í hluta afgreiðslusalar eftir teikningu Gunnars Hanssonar. „Þetta tímabil eftirstríðsáranna það hefur hingað til ekki vegið mjög þungt í um- ræðu um húsvernd hér á landi,“ segir Pétur H. Ármannsson, arkitekt í sam- tali við Reykjavík vikublað. Pétur starf- aði um árabil hjá Listasafni Reykjavíkur og skrifaði umsögn Árbæjarsafnsins um verndun Umferðamiðstöðvarinnar fyrir fimmtán árum. „Þessi hús eru nú orðin 50 ára gömul og mörg þeirra eru merkilegur arkitektúr fyrir sinn tíma. Gunnar, höfundur Umferðamiðstöðv- arinnar, er kannski kunnastur fyrir að hafa teiknað Morgunblaðshöllina en hefur líka teiknað mörg falleg íbúahús og til dæmis kirkju Óháða söfnuðarins sem er mjög falleg bygging. Hans eigið hús, í Sólheimum 5 í Reykjavík, hefur verið friðlýst vegna listræns gildis,“ segir Pétur. Módernistarnir Byggingalist sú er þróaðist á ár- unum eftir stríð er gjarnan kölluð módernismi. Hugtakið lýsir tímabili og byggingalist sem er undir miklum áhrifum frá þeim hröðu tækninýjum í byggingaiðnaði, eins og flestum öðrum geirum, og gríðarlegri tiltrú manna á framtíðinni. Tímabilið eftir stríð er markað örri þróun á flestum sviðum samfélagsins, aukinni velferð og kröfu um umbætur. Byggingar tímabilsins byggja á hreinum formum og mik- illi áherslu á notagildi, fremur en skreytingar. „Þetta var tími þar sem skreyting húsana var frekar í innri gerð þeirra og strúktúrnum en ekki endi- leg af því að verið væri að setja skraut utan á þau,“ segir Pétur. Hann bendir líka á að Umferðamiðstöðin sé raunar lestastöðvarígildi, byggð sem slík og af miklum metnað. „Þetta er líka tími þegar menn höfðu mikla trú á framtíð- inni og voru þess vegna ekki að hugsa mikið um það sem hafði verið áður, í fortíðinni. Þess vegna var það mjög í anda tæknilegra mannvirkja, eins og umferðamiðstöðvar, að húsið væri nú- tímalegt og tæknilegt í uppbyggingu.“ Fegurð í tækninni Fegurðaskyn módernista er ekki allra og gjarnan er deilt um fegurðin. Hvað segir Pétur við þá sem telja Umferða- miðstöðina ekki nægilega fallega til að njóta sérstakrar verndar? „Þessi bygging má muna sinn fífil fegri. Ef hún væri gerð upp af virðingu og upp- haflegum stíl þá gæti hún verið mjög falleg. Á þessum tíma voru oft notaðir sterkir andstæðulitir. Það er að segja: úttekt Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Hrafnkell Á. Proppé Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir fundaröð um þróun og mótun borgarinnar með Hjálmari Sveinssyni, formanni ráðsins. Fundunum er ætlað að víkka og dýpka umræðu um skipulagsmál. Yfirskrift raðarinnar er Heimkynni okkar, borgin. Þriðjudaginn 13. janúar verður fundur með yfirskriftinni „Á að sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu?“. Þar verður spurt hvort samkeppni sveitarfélaganna sé góð, hver áhrif sameiningar yrðu á almenningssamgöngur, stjórnsýslu og skipulags-, umhverfismál. Einnig verður fjallað um hvað það myndi þýða fyrir ríki og landsbyggðina ef 65% landsmanna tilheyrðu einu og sama sveitarfélagi. Framsögu hafa, auk Hjálmars, þau Svandís Svavarsdóttir alþingismaður, Bryndís Haraldsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ og formaður Strætó bs. og Hrafnkell Á. Proppé, svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins. Skemmtileg stemning mun skapast á kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum við Klambratún klukkan 20.00–21.30. Allir velkomnir. Svandís SvavarsdóttirHjálmar Sveinsson Bryndís Haraldsdóttir Á AÐ SAMEINA SVEITARFÉLÖGIN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU? 1 5 -0 0 6 1 / H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er Í dag er Umferðamiðstöðin töluvert þekkt fyrir hefðbundinn íslenskan matseðil. alþýðublaðið hélt varla vatni yfir byggingunni sem var líkt við erlendar flugstöðvar Húsið tók nokkuð langan tíma að byggja og voru margir óþreyjufullir. - Morgunblaðinu, fimmtudagurinn 4. júlí 1963

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.