Reykjavík - 10.01.2015, Síða 14
14 10. Janúar 2015REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Bæjarbíó í Hafnarfirði er 70 ára:
Reykvíkingar tóku
Hafnarfjarðarstrætó í bíó
Bæjarbíó í Hafnarfirði fagnar 70 ára afmæli þessa dagana og verður með
ókeypis bíósýningar um helgina. Þegar saga þessa framtaks er skoðuð má
sjá að á sínum tíma voru bíóin í Hafnarfirði, Bæjarbíó og Hafnarfjarðarbíó,
ákaflega vinsæl hjá Reykvíkingum. Dæmi voru um að strætisvagna færu
suðureftir, troðfullir af bíógestum og komust færri að en vildu.
Bíósýningar í Bæjarbíói suður í
Hafnarfirði hafa ekki verið samfelldar
og féllu niður um margra ára skeið,
en saga framtaksins er gömul og um
margt merkileg. „Tildrögin að stofnun
Bæjarbíós voru þau að tveir menn
höfðu sótt um leyfi til bæjarstjórnar,
til kvikmyndasýninga í Hafnarfirði,
í septemberlok, árið 1941. Málið var
tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi og
ákveðið að kanna hvort bærinn gæti
ekki sjálfur komið upp bíói og var
sett nefnd í málið.“ Þetta segir meðal
annars um undirbúninginn að stofnun
Bæjarbíós í Hafnarfirði á vef Kvik-
myndasafns Íslands.
Boðið í bíó
Heimildum ber ekki að fullu saman
um nákvæmlega hvaða dag sýningar
hófust. Hins vegar buðu bæjaryfirvöld
í Hafnarfirði í bíó hinn 10. janúar 1945,
tvo daga í röð. Nú á að opna húsið fyrir
gestum á þessum tímamótum. „Það eru
liðin 70 ára frá því að Hafnfirðingar
fengu ráðhús og kvikmyndahús og
þótt Hafnfirðingar og Hafnarfjarðar-
bær haldi örugglega uppá áfangann
einhverntíman í ár, þá gátum við í
Bæjarbíó ekki láta þessa dagsetningu
fram hjá okkur fara, en þann 10. jan-
úar 1945 bauð Hafnarfjarðarbær í bíó
í fyrsta sinn,“ segir Ævar Jóhannsson,
sýningarmaður í Bæjarbíói í samtali
við blaðið.
Hagnaður til elliheimilis
Bíóið tók í upphafi 325 manns í sæti
og var ákveðið að hagnaði af sýningum
skyldi varið til elliheimilis bæjarins sem
þá var í bígerð að reisa, en það var í maí
árið 1942 sem bæjarstjórnin í Hafnar-
firði samþykkti að láta reisa kvik-
mynda- og skrifstofuhús fyrir bæinn.
Sigmundur Halldórsson húsameistari
hafði þá unnið teikningu af húsinu.
Smíðinni var lokið í árslok 1944, og
hófust sýningar skömmu síðar.
Fullir strætisvagnar úr
Reykjavík
Fyrstu árin sýndi bíóið eingöngu
myndir sem það leigði frá kvikmynda-
húsunum í Reykjavík en það gafst
illa, segir Kvikmyndasafnið, þar sem
margir Hafnfirðingar höfðu þegar séð
myndinar í höfuðborginni.
Upp úr 1950 hófust sýningar á
myndum sem fluttar voru inn sérstak-
lega fyrir Bæjarbíó. Þetta þykir hafa gef-
ist vel. „Bíóið sýndi vandaðar myndir
og voru bæði bíóin mikið sótt, ekki
síður af Reykvíkingum. Talað hefur
verið um að heilu strætisvagnarnir
hafi verið fullir af gestum sem komu
gagngert til að fara í hafnfirsku bíóin.
Stundum hafi jafnvel verið óskað eftir
aukavögnum,“ segir á vef Kvikmynda-
safns. Þannig hafi Hafnarfjörður fengið
viðurnefndið Bíóbærinn, en starfsemin
var blómleg, þar sem Hafnarfjarðarbíó
starfaði einnig í bænum og flutti inn
eigin myndir.
Hallar undan fæti
Ágóði af rekstri bíósins rann til elli-
heimilisins Sólvangs, og var það því
undanþegið 25 prósenta skemmt-
anaskatti. Reksturinn gekk vel framan
af, en eftir að sjónvarpið hóf göngu sína
árið 1966 fór að halla undan fæti, og
tap varð á rekstrinum mörg næstu ár.
Fleira skýrði þetta en sjónvarpið.
Bæði hækkaði verðið á kvikmyndum
að utan, en jafnframt varð kreppa hér
á landi á síðustu árum sjöunda ára-
tugarins og fjárráð almennings voru
minni en áður. Þá kom einnig til stór-
tæk gengisfelling. Þá var reksturinn
leigður út, en hann gekk illa.
Eins og í gamla daga
Leikfélag Hafnarfjarðar var svo með
ýmsa félags- og menningarstarfsemi
í húsinu, en frá árinu 1974 sá Laugar-
ásbíó um sýningar í Bæjarbíói um
nokkurra ára skeið. Lítil starfsemi var
í húsinu stóran hluta níunda og tíunda
áratugarsins. Skömmu fyrir aldamót
tók Kvikmyndasafn Íslands svo við
bíóinu og hefur það verið nýtt sem
safnbíó. Hluti hússins og innréttinga er
nú friðaður. Þar er nú sýningarvél með
gamla laginu, sem getur sýnt myndir
með sama hætti og gert var árið 1945.
Einkarekið Apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
w.þ if.is / www.thrif.net / netfang: th if@centrum.is
Fyrirtæki
húsFélög
Við gerum tilboð í reglubundna ræstingu
ykkur að kostnaðarlausu.sími 89 89 566
www.þrif.is / www.thrif.net / netfang: thrif@centrum.is
Bjóðum sérhæfða þjónustu fyrir
íbúðir sem eru í skammtímaleigu
Söngskólinn í Reykjavík
Í byrjun janúar verða inntökupróf í örfá skólapláss sem losna:
12. janúar byrja 7 vikna söngnámskeið:
SÖNGNÁMSKEIÐ
• Unglingadeild yngri 11-13 ára
• Unglingadeild eldri 14 -15 ára
• Almenn tónlistardeild Grunn-/ Mið-/ Framhaldsnám
• Háskóladeild Einsöngs-/ Söngkennaranám
• fyrir áhugafólk á öllum aldri
• kennt utan venjulegs vinnutíma
• raddbeiting / túlkun / tónfræði
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans
að Snorrabraut 54, sími 552-7366 kl. 10–16 alla virka daga• www.songskolinn.is
SÖNGNÁM
úr umfjöllun Þjóðviljans um opnun Bæjarbíós í ársbyrjun 1945.
Auglýsingasíminn
er 578 1190
Netfang:
auglysingar@fotspor.is.
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
www.fotspor.is.